Fréttablaðið - 12.03.2021, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 12.03.2021, Blaðsíða 6
SKÓLAMÁL Samræmd próf eru ekki höfð til hliðsjónar þegar ákveðið er hverjir komast að sem nýnemar í framhaldsskólum. Kennarar fá ekki upplýsingar um efni prófanna og geta þar af leiðandi ekki aðstoð- að nemendur við undirbúning þeirra, að sögn grunnskólakennara sem Fréttablaðið ræddi við. Niður- staða prófsins sýni hvort nemandi er góður að taka krossapróf en ekkert annað. „Leikskólabörn geta fengið 2,5 í þessu prófi og jafnvel 10 ef þau giska alltaf á rétt enda er þetta bara krossapróf,“ sagði kenn- ari sem Fréttablaðið ræddi við. Skólastjórnendur í Kópavogi telja ótækt að fresta prófunum í kjölfar mistaka mánudagsins. Það geti aukið álag og kvíða hjá nem- endum og gert prófin ómarktæk sem samræmdan mælikvarða. „Ákvörðun um frestun prófanna er óviðunandi inngrip í skipulag skólastarfs og sýnir lítilsvirðingu gagnvart því sem þar er verið að vinna,“ segir í yfirlýsingu skóla- stjóra Kópavogs. Skólastjórarnir leggja til að frekari próftöku verði af lýst meðan ekki er búið að finna viðunandi prófakerfi sem ræður við álagið. Umboðsmaður barna hafði einn- ig sagt að að hans mati væri það algörlega óásættanlegt að ítrekað séu lögð fyrir samræmd próf í prófakerfi sem af skipuleggjendum sé metið algjörlega ófullnægjandi eins og reynslan hefur sýnt. Fræðsluráð Hafnarfjarðar lagði til á fundi sínum á miðvikudag að prófin yrðu ekki lögð fyrir nem- endur þetta árið. Ráðið leggur einnig áherslu á að samræmd próf sem lögð eru fyrir í grunnskólum séu skoðuð í heild sinni og framtíð þeirra endurmetin. Foreldraráð grunnskólabarna í Hafnarfirði harmaði framkvæmd- ina á fundi fræðsluráðsins. Í bókun ráðsins segir að lengi hafi gagnsemi prófanna verið dregin í efa en mögulega hugnist nemend- um að kanna stöðu sína og því beri að gefa þeim sem það kjósa færi á að taka prófin. „Að auki er mikilvægt að ganga úr skugga um að breytt staða þar sem skólar hafa tvær vikur til að ljúka prófum, raski ekki enn frekar skipulögðu skóladaga- tali. Næg hefur röskunin á skóla- starfi verið undanfarna mánuði.“ Birgir Örn Guðjónsson, fulltrúi Bæjarlistans í Fræðsluráði Hafnar- fjarðar, segir í bókun að staðan sé ekki boðleg, hvorki fyrir skólana né nemendur. „Það eina rétta í stöð- unni er að taka þá ákvörðun sem er væntanleg til að vera börnunum fyrir bestu. Þeirra velferð og líðan skiptir meira máli en samræmd könnunarpróf.“ Þegar skóladagatöl skólanna eru skoðuð er ljóst að inngripið í skipu- lagt skólastarf er mikið til að taka prófið sem flestir eru sammála um að sé barn síns tíma, eins og skóla- stjórar í Kópavogi orðuðu það. Vandséð er hvar eigi að koma próf- unum fyrir. Margir skólar eru með þemavikur og árshátíð skömmu fyrir páska. Ásta Bjarney Elíasdóttir, skóla- stjóri Breiðholtsskóla, segir að rætt hafi verið við nemendur og ákveð- ið að taka prófin síðustu viku fyrir páska í samráði við þá. „Við erum með þemadaga og árshátíð og mikið húllum hæ í næstu viku og við ákváðum bara að einbeita okkur að því og skemmta okkur.“ Sömu sögu er að segja af f leiri skól- um. Reyna eigi að hafa gaman þrátt fyrir að prófin séu enn yfirvofandi. benediktboas@frettabladid.is Það eina rétta í stöðunni er að taka þá ákvörðun sem er væntan- leg til að vera börnunum fyrir bestu. Birgir Örn Guð- jónsson, fulltrúi Bæjarlistans í Fræðsluráði Það er algjörlega óásættanlegt að ítrekað séu lögð fyrir samræmd próf í prófakerfi sem er metið algjörlega ófullnægjandi. Salvör Nordal, um- boðsmaður barna Prófin eru inngrip inn í skipulagt starf Vandséð er hvernig skólar landsins eigi að koma samræmdum prófum inn í skólastarf næstu vikur. Það á þó að reyna. Margir skólar eru með þemavikur og árshátíð. Foreldraráð grunnskólabarna í Hafnarfirði segir að gagnsemi prófanna hafi lengi verið dregin í efa. Prófin eru krossapróf og eru barn síns tíma að mati skólastjórnenda og fræðsluráðs Hafnarfjarðar. Gríðarleg ónægja er meðal skólastjórnenda með að raska enn frekar skipulögðu skólastarfi þetta skólaár. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY 100 rampar fyrir bætt aðgengi Haraldur Þorleifsson, stjórnandi hjá Twitter og stofnandi hönnunarfyrirtækisins Ueno, er hvatamaður og helsti styrktaraðili verkefnisins Römpum upp Reykjavík sem kynnt var í gær. Hann ræðir hér við Guðna Th. Jóhannesson, forseta Íslands, á kynningarfundi sem haldinn var af þessu tilefni. Hefja á átakið í miðborg Reykjavíkur þar sem þörfin er mest en þar eru bæði elstu húsin og aðgengið verst. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI LÖGREGLUMÁL Ríkislögreglustjóri telur þörf á að rannsaka sérstaklega ofbeldi gegn öldruðum. Rannsóknir benda til að það sé falið, sjaldan til- kynnt og einkenni þess oft ekki þekkt. Tímabært er að skoða stöðu þessa hóps að mati greiningardeildar Ríkislögreglustjóra. Í nýrri skýrslu greiningardeildarinnar segir að erf- iðara sé að meta umfang of beldis í garð aldraðra, vegna ólíkra viðhorfa milli kynslóða, en í skýrslunni segir að aldraðir skilgreini of beldi öðru- vísi en yngri kynslóðir. Tölulegar upplýsingar um ofbeldi gagnvart eldri borgurum á Íslandi eru af skornum skammti. Í skýrsl- unni kemur fram að meðalfjöldi brota á mánuði árin 2015-2020 sé á bilinu 67 til 77 brot en á tímabilinu janúar til apríl 2020 voru þau að meðaltali 83 á mánuði. Tilkynnt var um 103 brot í apríl- mánuði 2020 og er það mesti skráði fjöldi í sögunni. Segir í skýrslunni að miðað við reynslu annarra þjóða megi ætla að fjölgun tilvika heim- ilisof beldis á þessum tíma tengist þeirri ákvörðun yfirvalda að leggja bann við samkomum á Íslandi vegna COVID-19 faraldursins. – bb Ofbeldi gegn öldruðu fólki síður tilkynnt Lögreglan telur þörf á rannsókn. 1 2 . M A R S 2 0 2 1 F Ö S T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.