Fréttablaðið - 12.03.2021, Blaðsíða 8
Aðalfundur Marel hf. verður haldinn 17. mars 2021 klukkan 16:00 og er fundurinn
eingöngu rafrænn. Hluthöfum er bent á að nauðsynlegt er að skrá þátttöku á
aðalfundinn fyrirfram. Skráning fer fram á www.smartagm.com vegna hlutabréfa sem
skráð eru á Nasdaq Íslandi og hjá viðkomandi vörsluaðila vegna hlutabréfa sem skráð
eru á Euronext Amsterdam.
Nánari upplýsingar og fundargögn má nálgast á aðalfundarvef Marel,
www.marel.com/agm
Rafrænn
aðalfundur
Marel
BRETLAND Lögreglan í Lundúnum
hefur haldið áfram yfirheyrslum
yfir lögreglumanni sem var hand-
tekinn í Kent síðastliðinn þriðju-
dag vegna hvarfs Söruh Everard.
Maðurinn var f luttur á sjúkra-
hús í gær til aðhlynningar vegna
höf uðáverka sem hann hlaut
í varðhaldi en f luttur aftur í varð-
hald eftir að hlúð var að sárum hans.
Hann hefur einnig verið yfirheyrður
vegna gruns um blygðunarsemis-
brot sem tengist ekki máli Everard.
Ekkert hefur spurst til Söruh Ever-
ard frá því hún yfirgaf heimili vinar
síns miðvikudagskvöldið 3. mars
í Clapham í suðurhluta Lundúna.
Everard, sem er 33 ára markaðs-
stjóri frá York, var klædd í grænan
regnjakka, dökkbláar buxur með
hvítu demantamunstri og túrkís-
og appelsínugula íþróttaskó þegar
hún hvarf.
Síðustu ummerki um hana eru
öryggisupptaka úr dyrasíma þar
sem hún sést ganga niður götu
nálægt Clapham klukkan 21.30 en
lögregla segir það ekki ljóst hvort
hún hafi náð heim til sín í Brixton.
Ríkislögreglustjórinn Cressida
Dick tilkynnti það í sjónvarps-
yfirlýsingu að líkamsleifar hefðu
fundist í skóglendi við Kent á mið-
vikudag en ekki er búið að staðfesta
hvort þær tilheyri Söruh Everard.
„Ég tala fyrir hönd allra minna
samstarfsmanna innan lögreglunn-
ar þegar ég segi að okkur er gjörsam-
lega of boðið vegna þessara hörmu-
legu frétta,“ sagði Dick um handtöku
lögreglumannsins.
„Hvarf Söruh í þessum hræðilegu
og grimmilegu aðstæðum er versta
martröð hverrar fjölskyldu,“ bætti
hún við.
Lögreglumaðurinn sem situr
í varðhaldi hafði meðal annars
umsjón með eftirliti á opinberum
byggingum á borð við heimili for-
sætisráðherrans að Downingstræti,
þinghúsinu í Westminsterhöll og
ýmsum erlendum sendiráðum í
Lundúnum. Hann var á frívakt
kvöldið sem Everard hvarf.
Kona á þrítugsaldri var einn-
ig handtekin í Kent á þriðjudags-
kvöldið grunuð um að hafa verið í
slagtogi við brotamann.
Lögreglan lýsti eftir Söruh Ever-
ard á Twitter þann 5. mars og biðlaði
til almennings um ábendingar. Degi
síðar steig fjölskylda hennar fram
og sagði það verulega ólíkt henni að
láta sig hverfa.
Hundruð lögreglumanna hafa
aðstoðað við leitina að Everard en
lögreglunni hafa nú þegar borist
yfir 120 ábendingar og hafa yfir 750
heimili verið heimsótt vegna rann-
sóknarinnar.
Boris Johnson, forsætisráðherra
Bretlands, sagðist vera sleginn og
virkilega miður sín vegna fram-
vindunnar í máli Söruh Everard.
„Rétt eins og hjá landsmönnum
öllum er hugur minn hjá fjölskyldu
hennar og vinum. Við verðum að
hafa hraðar hendur til að leita svara
í þessum hryllilega glæp,“ bætti
Johnson við.
Fjölmargar vökur verða haldnar
víða um Bretland á laugardag og í
Clapham, í grennd við svæðið þar
sem Everard sást síðast. Viðburðirn-
ir eru hugsaðir til að sýna Everard og
fjölskyldu hennar stuðning en einn-
ig til að vekja athygli á þeim fjölda
breskra kvenna sem upplifa sig ekki
öruggar á götum úti.
Skipuleggjendur segja það „rangt
að viðbrögðin við of beldi gagnvart
konum skuli krefja konur til að
hegða sér á annan hátt“.
thorvaldur@frettabladid.is
Ekki upplýst hvort líkið er af Everard
Ekki er ljóst hvort líkamsleifar sem fundust í Kent fyrr í vikunni tilheyri Söruh Everard sem hvarf í Lundúnum 3. mars. Lögreglu-
maður sem er í haldi vegna hvarfsins var fluttur á spítala í gær með höfuðáverka. Hann hefur verið yfirheyrður ítrekað í vikunni.
Líkamsleifarnar fundust í Kent á þriðjudag. Ekki ljóst er ljóst hvort þær tengjast hvarfinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Rétt eins og hjá
landsmönnum
öllum er hugur minn hjá
fjölskyldu hennar og vinum.
Boris Johnson, forsætisráðherra
ÞÝSK AL AND Lögregluyf irvöld í
bænum Schwelm í Þýskalandi
leystu níu ára gamalt innbrotsmál
eftir að erfðaefni sem greindist á
hálfétinni pylsu samræmdist erfða-
efni manns sem handtekinn var í
Frakklandi vegna ótengds máls.
Innbrotið átti sér stað í mars 2012
en lögreglan telur að innbrotsþjóf-
urinn, sem er 30 ára gamall Albani,
hafi fengið sér bita af pylsu í eigu
fórnarlambsins á meðan hann lét
greipar sópa.
Ekki er ljóst um hvers lags pylsu
er að ræða, lögreglan sagði hana
þó hafa verið af stærri gerðinni
en slíkar pylsur kallast „Wurst“ í
Þýskalandi.
Rannsakendur málsins fengu
nýlega tilkynningu um að frönsk
lögregluyfirvöld hefðu greint sam-
svarandi sýni úr erfðaefni manns
sem grunaður er um of beldisglæp
þar í landi.
Lögreglan í Schwelm segir þó að
maðurinn sé að öllum líkindum
laus allra mála og verði ekki fram-
seldur til Þýskalands þar sem brot
hans sé fyrnt. Það verður því að
teljast harla ólíklegt að hann muni
þurfa að svara fyrir pylsuþjófnað-
inn á næstunni. – þsh
Pylsa kom upp um þjóf
Ef til vill hefur stolnu pylsunni svipað til einhverra hér. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
EVRÓPUSAMBANDIÐ Evrópuþingið
hefur sent frá sér ályktun þar sem
því er lýst því yfir að öll lönd Evr-
ópusambandsins séu svokallað
hinsegin-frelsissvæði. Ályktunin er
hugsuð sem andsvar við ákvörðun
pólskra svæðisyfirvalda sem lýst
hafa því yfir að vissar borgir og bæir
séu laus við LGBT-hugmyndafræði.
Pólsk yfirvöld lýstu yfir fyrirætl-
unum sínum um nýja lagasetningu
sem mun gera samkynhneigðum
einstaklingum ókleift að ættleiða
börn, einungis nokkrum klukku-
stundum áður en Evrópuþingið
kunngjörði ályktun sína.
Samkynhneigð sambönd eru ekki
lagalega viðurkennd í Póllandi og
ættleiðingar samkynhneigðra para
eru bannaðar með lögum. Hins
vegar hafa sumir samkynhneigðir
komist fram hjá lögunum með því
að sækja um ættleiðingu sem ein-
stæðir foreldrar, en einstaklingum
er leyfilegt að ættleiða í Póllandi.
Nýju lögin myndu hins vegar gera
ættleiðingar einstæðra samkyn-
hneigðra foreldra refsiverðar.
Í ályktun Evrópuþingsins segir
að „hinsegin-manneskjur um allt
sambandið skulu búa við frelsi til
að lifa opinberu lífi innan síns kyns
og sinnar kynhneigðar án þess að
þurfa að óttast fordóma, mismunun
eða ofsóknir. Yfirvöld skulu vernda
og stuðla að jafnrétti og mannrétt-
indum alls fólks, þar á meðal hin-
segin fólks.“ – þsh
Evrópa lýst hinsegin frjáls
1 2 . M A R S 2 0 2 1 F Ö S T U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð