Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2021, Blaðsíða 35
Hildur Vala Einarsdóttir
6. febrúar 1982
Vatnsberi
n Frumleg
n Sjálfstæð
n Mannvinur
n Framsækin
n Fjarlæg
n Sveigjanleg
Frikki Dór söngvari er alltaf að gera það gott í tónlistinni. Nýja lagið hans „Segðu mér“ hljómar afar ljúft í eyrum lands-
manna. Friðrik kemur einnig fram í þáttum
sem heita „Hver drap Friðrik Dór?“ sem hægt
er að fylgjast með í Sjónvarpi Símans.
Frikki Dór er fæddur í Vogarmerkinu. Vogin
þarf að hafa jafnvægi í kringum sig til þess
að funkera. Hún er mikill fagurkeri og vill
hafa fínt í kringum sig. Hún hefur gaman af
hreiðurgerð. Hún er sterk á listrænum sviðum
og mikill sáttasemjari innan fjölskyldu sinn-
ar. Hún á erfitt með að taka ákvarðanir og
er dagdreymin. Vogin er rómantísk en getur
stundum skapað ólgu með réttlætiskennd sinni.
Fimma í sverðum
Átök | Ágreiningur | Samkeppni | Samningar
Þetta spil er ekki alveg eins dramatískt og það hljómar.
Það bendir þó til þess að ákveðnir samningar sem þú
gerðir ráð fyrir, eða vonaðist eftir, fara ekki alveg að
óskum. En ekki örvænta því þegar einar dyr lokast þá
eru alltaf fleiri til. Við vitum að þú deyrð ekki ráðalaus.
Það er oft þannig að ákveðnir hlutir eiga ekki að gerast
og maður skilur það betur eftir á þegar önnur hentugri
tækifæri koma til manns. Þetta reynir vissulega á þolin-
mæðina en góðir hlutir gerast hægt.
Ás í bikurum
Ást | Ný sambönd | Samkennd | Sköpun
Hér sjáum við strax að það sem gekk ekki upp hér á
undan heldur ekki aftur af þér. Það er mikil breyting
innra með þér, þú leyfir sjálfum þér að kafa inn í mýktina
og sleppa tökum á því sem þú ræður ekki yfir. Því fylgir
frelsistilfinning og í kjölfarið færðu innblástur og mikið
af nýjum hugmyndum. Mikil ást og kærleikur fylgir þessu
spili, það er allt í lagi að vera smá væminn …
Fjarki í mynt
Peningasparnaður | Öryggi | Íhaldssemi
Þú ætlar þér stóra hluti, það verður ekki af þér skafið.
Í þessu spili sérðu nýtt markmið og veist að þú þarft
að leggja mikið á þig til þess að ná því. Þetta tengist
Skilaboð frá spákonunni
Eins og kemur fram í heimildarmyndinni um „Leynd-
armálið“ þá er mikilvægt að sjá fyrir sér drauma sína
og láta eins og þeir hafi nú þegar ræst.
STJÖRNUSPÁLESIÐ Í TAROT Frikki Dór
SVONA EIGA ÞAU SAMAN
Vikan 12.03. – 18.03.
Það er bara allt í lagi að vera smá væminn…
Fjórða barnið á leiðinni
MYND/EYÞÓR
stjörnurnarSPÁÐ Í
T ónlistarhjónin Hildur Vala Einarsdóttir og Jón Ólafsson eiga von á sínu fjórða barni í sumar.
Hildur Vala sló eftirminnilega í gegn í Idol
Stjörnuleit árið 2005, þar sem Jón var dómari.
Jón hefur verið í ýmsum hljómsveitum á borð
við Sálina hans Jóns míns, Nýdönsk og Bítla-
vinafélagið.
DV lék forvitni á að vita hvernig hjónin eiga
saman ef litið er til stjörnumerkjanna.
Hildur Vala er Vatnsberi og Jón er Fiskur.
Þetta samband þrífst á gagnkvæmri virð-
ingu fyrir hugmyndum og tilfinningum hvort
annars. Þau eru bæði opin og sveigjanleg og
tilbúin að stökkva á ný tækifæri saman eða
fara á vit ævintýranna.
Þessi merki passa svo vel saman, sérstak-
lega þegar kemur að því að skapa og fram-
kvæma. Vatnsberinn er hugmyndaríkur og
Fiskurinn dagdreyminn og listrænn.
Helsti kosturinn við samband þeirra er ekki
aðeins virðingin sem þau bera hvort fyrir
öðru, heldur einnig að ofar öllu eru þau bestu
vinir og eru í þessu saman. n
MYND/STEFÁN
Hvað segja stjörnurnar um þig þessa vikuna?
Hrútur
21.03. – 19.04.
Það er svo yndislegt hvað það
þarf lítið til þess að gleðja
hrútinn. Sólargeislar helgarinnar
næra þig út alla vikuna og þér
finnst þú vera að fá orkuna þína
til baka. Þetta auka serótónín
mun vera byrjunin á góðum kafla.
Naut
20.04. – 20.05.
Einhver í kring um þig mun koma
þér skemmtilega á óvart og
sýna þér splunkunýja hlið á sér.
Þetta er góð áminning um að
dæma ekki bókina eftir kápunni.
Mögulega ný vinátta, ólíkir ein-
staklingar geta stundum átt svo
vel saman.
Tvíburi
21.05. – 21.06.
Það er svo ótrúlega spennandi að
stökkva út í djúpu laugina og taka
áhættu. Þú ert svo sannarlega á
þeim tímamótum og finnur fyrir
smá óróleika, enda finnst þér ekki
það þægilegasta að vera svona í
óvissunni. Nú er góður tími til að
skipuleggja sig.
Krabbi
22.06. – 22.07.
Þú átt það til að dreyma stórt
og þess vegna gerir þú margt
áhugavert í lífinu. Einhver glæný
hugmynd kemur til þín í vikunni
og þú pælir í því hvernig sé best
að útfæra hana þannig að þú upp-
skerir sem best. Aldrei leiðinleg
stund hjá þér.
Ljón
23.07. – 22.08.
Þig þyrstir í nýtt nám og hugurinn
er á flugi, svo margt sem þig
langar að gera. Þú nýtir vikuna
vel, hugsar upphátt og gúgglar
þig áfram um hin ýmsu námskeið
og skóla. Hverju ertu eiginlega að
fara að bæta við þig?
Meyja
23.08. – 22.09.
Sterk orka sjálfstæði um-
lykur þig. Þig langar í tíma fyrir
sjálfa/n þig og þarft ekki að stóla
á neinn fyrir neitt, þú getur þetta
allt saman sjálf/ur. Þú sperrir
upphandleggsvöðvana í spegl-
inum og segir upphátt „ég er svo
með þetta!“.
Vog
23.09. – 22.10.
Skemmtilegar fréttir koma til
þín í vikunni sem þú hefur beðið
þolinmóð/ur eftir. Þetta verður
vissulega spennandi vika og þú
mátt engan tíma missa. Nú þarftu
að undirbúa þig vel fyrir þetta
nýja og stóra verkefni.
Sporðdreki
23.10. – 21.11.
Þú færð stöðugar áskoranir í
lífinu því að alheimurinn veit
hvað þú ert dugleg/ur að yfirstíga
þær og að það mun hjálpa þér
að vaxa í hvert sinn á einn eða
annan hátt. Hafðu það hugfast ef
eitthvað fer ekki alveg að óskum
þessa vikuna.
Bogmaður
22.11. – 21.12.
Það er erilsöm vika fram undan
hjá bogmanninum. Ekki örvænta
því að komandi helgi mun færa
þér gjafir fyrir dugnað vikunnar.
Þú færð tíma til þess að næra sál
og líkama þegar þú klárar þessa
stóru viku sem fram undan er.
Koma svo!
Steingeit
22.12. – 19.01.
Þér finnst hlutirnir ganga grun-
samlega vel og nánast bíður bara
eftir að eitthvað fari úrskeiðis.
Hvernig væri bara að njóta þess
að hlutirnir ganga stundum bara
svona vel upp og að þú sért líka
búin/n að hafa fyrir því og eigir
það vel skilið? Njóttu!
Vatnsberi
20.01. – 18.02.
Mánudagar eru ekki uppáhalds-
dagarnir þínir en mundu að það
er líka bara hugarfar. Ef þér
leiðist þá er það í þínum höndum
að gera eitthvað í þeim málum.
Hvað getur þú gert til þess að
veita sjálfri/um þér drifkraft og
innblástur?
Fiskur
19.02. – 20.03.
Ég sé dekur og fögnuð í kortunum
hjá fisknum. Mikið verður gaman
að vera þú þessa vikuna. Þú gerir
vel við þig og ert ekkert að skafa
utan af því. Bara endalaus, sam-
viskubitslaus gleði og notalegheit.
Skál fyrir þér!
peningum, þú þarft að safna fyrir þessu, leggja til hliðar
og jafnvel fá þér aukatíma hjá bókaranum til þess að
uppfylla þau skilyrði sem þú þarft til þess að komast á
leiðarenda. Spennandi tímabil, það er mikil tilhlökkun.
Þetta markmið er eitthvað sem þú sérð svo vel fyrir þér
að þú getur næstum því smakkað það, þótt það sé núna
bara draumur þá er það samt eitthvað svo áþreifanlegt.
Jón Ólafsson
25. febrúar 1963
Fiskur
n Listrænn
n Blíður
n Hjartagóður
n Tilfinninganæmur
n Treystir of mikið
n Dagdreyminn
FÓKUS 35DV 12. MARS 2021