Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2021, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2021, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR UMDEILDUR Í TVO ÁRATUGI Jóni Steinari Gunnlaugssyni hefur verið falið að taka þátt í endurskoðun laga um meðferð sakamála. Hins vegar telja margir að hann sé ekki rétti maðurinn í verkið vegna umdeildrar afstöðu hans til kynferðisbrotamála. Á slaug Arna Sigurbjörns-dóttir dómsmálaráð-herra hefur falið Jóni Steinari Gunnlaugssyni lög- manni að aðstoða við vinnu ráðuneytisins til að stytta málsmeðferðartíma í refsi- vörslukerfinu. Þessi ákvörðun ráðherra hefur verið harðlega gagn- rýnd. Rósa Björk Brynjólfs- dóttir, þingmaður Samfylk- ingarinnar, sagði ákvörðunina blauta tusku í andlit brotaþola og Kvenréttindafélag Íslands ásamt Stígamótum sagði ráð- herra senda konum kaldar kveðjur. Gagnrýnin á rætur að rekja til þess að Jón Steinar hefur í gegnum tíðina verið umdeildur fyrir afstöðu sína til sönnunar- mats í kynferðisbrotamálum. Í rúmlega tvo áratugi hefur Jón Steinar ítrekað vakið máls á því á opinberum vettvangi að hann telji dómstóla á Íslandi hafa slakað of mikið á sönn- unarkröfum í málaflokknum. Þótti þessi afstaða hans enn fremur kristallast í störfum hans sem hæstaréttardómara á árunum 2004-2012. Saklausir dæmdir Jón Steinar hefur lengi verið þeirrar trúar að íslenskir dómstólar hafi slakað svo mikið á kröfum til sönn- unarfærslu í kynferðisbrota- málum að jafna megi því við að sönnunarbyrðinni sé snúið við. Samkvæmt meginreglu sakamálaréttarfars eru menn saklausir uns sekt er sönnuð. Öfug sönnunarbyrði myndi því fela í sér að menn þyrftu að sanna sakleysi sitt fremur en að ákæruvaldið þyrfti að færa sönnur á sekt. „Afleiðingin af þessum vinnubrögðum er sú að svo og svo margir saklausir hafa verið ranglega dæmdir. Þess- ar kringumstæður eru m.a. til þess fallnar að gera fólki kleift að ná sér niðri á öðrum með því að bera fram rangar sakargiftir á hendur þeim.“ skrifaði Jón Steinar í Morgun- blaðinu árið 2019. Þessi afstaða Jóns Steinars hefur verið gagnrýnd bæði af lagaprófessorum og öðrum fagaðilum sem hafa aðkomu að kynferðisbrotamálum. „Það er ekki hægt að bera saman kröfur hvað sönn- unargögn varðar í kynferðis- brotum og öðrum brotum, til dæmis auðgunarbrotum,“ sagði Hulda Elsa Björgvins- dóttir lögfræðingur í samtali við DV árið 2003 og vísaði þar til greinaskrifa Jóns Steinars. „Það er eðli þessara brota að hvorki líkamlegir áverkar né bein vitni finnast. Þá líður oft langur tími frá því að brotið er framið þar til kært er,“ sagði Hulda. Tekur ekki mark á sálfræðingum „Nú liggur það auðvitað í hlutarins eðli að sjaldnast er unnt með vissu að vita hvað það er sem veldur þeirri van- líðan eða röskun sem mæld er. […] Í stöku tilvikum kann meira að segja kæra um brot og sú niðurlæging sem ætl- aðir brotaþolar upplifa oft í framhaldinu að valda röskun á andlegri líðan,“ skrifaði Jón Steinar í grein árið 2008. Sönn- unargögn á borð við skýrslur sálfræðinga, greiningar á áfallastreitu og mat geðlækna eru dæmi um óbein sönnunar- gögn í kynferðisbrotamálum sem hafa nokkuð mikið vægi þar sem eðli brotanna er slíkt að sjaldnast er sjónarvottum fyrir að fara. „Svona greinargerð skiptir að mínum dómi yfirleitt ekki máli fyrir sönnunarfærsluna, enda kemur sú frásögn brota- þola, sem greinargerð byggist á, venjulega fram í því sem brotaþolinn ber sjálfur fyrir dóminum,“ skrifaði Jón Steinar enn fremur. „Menn verða að sætta sig við að afbrot, sem engin vitni eru að verða yfir- leitt ekki sönnuð með því að láta kunnáttumenn fara inn í heilabú fórnarlambs eða sak- bornings og kanna sannleiks- gildi frásagna þeirra. Réttmæt þrá eftir því að afbrotamenn sleppi ekki við refsingu má ekki valda því að búnar séu til aðferðir af þessu tagi við sönn- unarfærslu.“ Vildi létta refsingu barnaníðings Sératkvæði Jóns Steinars í máli Jóhanns Sigurðarsonar, sem sakfelldur var fyrir barnaníð árið 2008, vakti mikla athygli. Jóhann var fundinn sekur um að hafa brotist inn í hús og brotið kyn- ferðislega á fimm ára stúlku með því að sleikja kynfæri hennar. Jóhann hafði verið dæmdur í fjögurra ára fang- elsi í héraði en Jón Steinar vildi lækka refsinguna í þrjú ár. Í sératkvæði sínu taldi Jón Steinar að trúverðug frásögn stúlkunnar um að „skegg- broddar mannsins sem mis- bauð henni snertu kynfæri hennar“ benti til þess að Jó- hann væri sekur, en hins veg- ar væri ekki sannað að hann hefði sleikt kynfæri hennar þar sem munnvatn hafði ekki fundist við sýnatöku. Í öðru kynferðisbrotamáli gegn barni árið 2005 skilaði Jón Steinar sératkvæði. Í því máli var maður sakfelldur fyrir að hafa misnotað dóttur sambúðarkonu sinnar um ára- bil. Jón Steinar vildi þar ekki taka mark á vitnisburði aðila sem brotaþoli hafði sagt frá brotunum. „Hann felur aðeins í sér endursögn á frásögn annars manns og skiptir því ekki máli um sönnun sakargift- anna.“ Þetta sératkvæði Jóns Steinars varð tilefni ritdeilna milli hans og prófessorsins Eiríks Tómassonar sem benti á að meðal sönnunargagna hefðu verið þrjú vitni og vitn- isburður frá forstöðumanni Barnahúss. Taldi Eiríkur Jón Steinar ekki taka tillit til þess að kynferðisbrot séu þess eðl- is að sönnunargögn séu metin með öðrum hætti en í öðrum brotaflokkum. Vitlaust gat Ofangreind dæmi eru aðeins brot af þeim tilfellum þar sem afstaða Jón Steinars til kynferðisbrota hefur komið fram. Sökum þessa freistaði ríkissaksóknari þess árið 2008 að fá Jóni Steinari vikið til hliðar í dómsmáli sem varðaði kynferðisbrot gegn unglings- stúlku. Af því tilefni sagði Bragi Guðbrandsson, þáver- andi forstjóri Barnaverndar- stofu, í samtali við DV: „Mér liggur við að taka það djúpt í árinni að sjónarmið Jóns Steinars séu svo sérstök og svo langt frá því sem nú- tímaleg þekking segir okkur að mér myndi ekki líða vel með að hann væri dómari í þessum málum yfir höfuð ef ég væri ákæruvaldið.“ Jóni Steinari var þó ekki gert að víkja í málinu og kom það fáum á óvart að hann skilaði sératkvæði og vildi sýkna ákærða. Taldi hann ósannað að gerandinn hefði getað vitað að brotaþoli væri mótfallin samförunum þar sem hún hefði frosið og „lét hún ekki í ljós við hann með látbragði eða í orðum að hún væri andvíg kynmökum við hann. Þar með er ósann- að að honum hafi verið slík andstaða hennar ljós. Þetta þýðir að ekki hefur verið sannaður ásetningur ákærða til að þvinga kæranda til kynmaka.“ Í málinu lá fyrir áverkavottorð sem bar með sér að gerandi hefði þrengt sér inn í endaþarm unglings- stúlkunnar en Jón Steinar taldi þó að skýring geranda, að hann hefði óvart hitt í vit- laust gat, vera trúanlega, en meirihluti dómsins taldi þá skýringu „fjarstæðukennda“. Það vakti einnig úlfúð þegar Jón Steinar sagði árið 2017 að brotaþolar níðingsins Róberts Downey ættu að fyrirgefa ger- anda sínum. „Ég fullyrði það að þeim sem brotið er gegn, þeim myndi líða miklu betur ef þeim tækist að þróa með sér fyrirgefningu, gegn alvar- legu broti. Stundum eru brot miklu alvarlegri en þetta.“ Jón Steinar hefur þó ítrekað tekið fram að hann sé enginn talsmaður kynferðisbrota- manna. Afstaða hans markast af íhaldssömum skoðunum um hvernig sönnunarfærsla eigi að fara fram í saka- málum og hefur hann hafnað því að sönnunarfærsla í kyn- ferðisbrotamálum eigi að njóta sérstöðu vegna eðlis brotanna. Hins vegar vekur það óneitanlega athygli þegar jafn umdeildur maður er fenginn í það verkefni að endurskoða lög um meðferð sakamála, þegar það er einmitt á því sviði sem hann hefur helst verið gagnrýndur. n Jón Steinar Gunnlaugsson hefur lengi verið um- deildur. MYND/GVA Erla Dóra Magnúsdóttir erladora@dv.is 12. MARS 2021 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.