Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2021, Blaðsíða 2
Óheppileg tímasetning
Tímasetningin skiptir höfuðmáli. Þessa línu höfum við heyrt marg
oft. Svarthöfði beitti þessu í
framkvæmd strax sem lítill
krakkaskítur. Mamma var
eitt sinn froðufellandi ösku
reið eftir að Binni bróðir hafði
skapað abstrakt listaverk á
stofuveggnum og brúkað til
verksins allar rándýru Ori
flamesnyrtivörurnar sem
mamma hafði keypt á rauð
vínsmarineruðu saumaklúbbs
kvöldi. Þá sá Svarthöfði rétta
tækifærið til að játa að hann
hafði borðað allt suðusúkku
laðið úr bökunarskúffunni.
Þessi velhugsaða tíma
setning varð til þess að Svart
höfði fékk engar skammir,
enda brot Binna mun alvar
legra.
Að sama skapi veit Svart
höfði vel að hann falast ekki
eftir samförum við spúsuna
þegar hún er nýbúin að missa
ástvin og veit líka að besti
tíminn til að gefa konunni
blóm er eftir að vinkonurnar
hafa komið í heimsókn og
kvartað yfir sínum mökum.
Tímasetningin skiptir höf
uðmáli. Þetta vitum við öll,
meðvitað eða ómeðvitað, og
högum lífi okkar samkvæmt
því.
Eitthvað fór þetta þó fram
hjá dómsmálaráðherranum
okkar. Nánast korteri eftir að
tilkynnt var um að níu kon
ur hefðu stefnt ríkinu fyrir
Mannréttindadómstól Evrópu
vegna þess að ákærur þeirra
gegn ofbeldismönnum höfðu
verið felldar niður, kemur í
ljós að hún fékk hinn umdeilda
Jón Steinar Gunnlaugsson
til að endurskoða málsmeð
ferðarkerfið í sakamálum. Jón
Steinar hefur ýmislegt sér til
frægðar unnið. Ást og aðdáun
þolenda í ofbeldismálum er
ekki eitt af því.
Greyið dómsmálaráðherra.
Af veikum mætti reyndi hún
að bera hendur fyrir sig og
benda á allt það góða sem hún
hefur í embætti sínu gert í hag
þolenda og kvenna. En Áslaug
veit líka að í slaufunarmenn
ingunni sem nú ríkir lifa allir
í núinu. Þú getur ekki réttlætt
slæma ákvörðun með því að
hafa áður tekið réttar. Þetta
er ekki heimilisbókhald. Þó þú
styrkir björgunarsveitirnar
mánaðarlega, flokkir ruslið,
aðstoðir eldri borgara yfir
götu og farir í messu á sunnu
dögum máttu samt ekki keyra
fullur.
Líklega ætlaði Áslaug ekk
ert að tilkynna sérstaklega
um þetta fyrirkomulag. Sam
kvæmt samningnum sem var
gerður er áætlað að vinnan
fari fram í febrúar, mars og
apríl. Hefði Áslaug bara til
kynnt þetta strax, væntan
lega í janúar þegar ákvörð
unin hafði verið tekin. Þá
hefði þetta sloppið til. Helst
hefði hún átt að tilkynna þetta
á aðfangadag þegar þjóðin
var upptekin af viðveru fjár
málaráðherra við mögulegt
sóttvarnabrot í Ásmundar
sal. Það hefði verið sérdeilis
frábær tímasetning. Alveg
í anda Svarthöfða litla sem
hafði borðað allt súkkulaðið
úr bökunarskúffunni hennar
mömmu.
Nei, alveg rétt, þá var hún
upptekin við að hringja í lög
reglustjóra að spyrjast fyrir
um „verklag“ en alls ekki að
skammast yfir því að for
maður flokks hennar væri
kominn í eldlínuna. n
SVART HÖFÐI
Aðalnúmer: 550 5060
Auglýsingar: 550 5070
Ritstjórn: 550 5070
FRÉTTA SKOT
550 5070
abending@dv.is
Það er hjálp að fá
H
eimilisofbeldi er alvarlegt vandamál
og stórt lýðheilsumál. Lengi vel var
öll umræða um heimilisofbeldi tabú
en sem betur fer hafa nú fjölmargir
stigið fram og sagt frá reynslu sinni
sem þolendur heimilisofbeldis. Yfir
leitt eru þetta konur, þó að karlar séu líka þolendur,
og hafa margar þeirra skammast sín mikið fyrir að
vera of lengi í sambandi með manneskju sem beitti
ofbeldi.
Hingað til höfum við þó ekki heyrt í mörgum ger
endum en það er hjá þeim sem vandinn liggur. Hér
í blaðinu er úttekt á heimilisofbeldi þar sem rætt
er við Andrés Ragnarsson sálfræðing sem rekur
verkefnið Heimilisfrið sem er ætlað gerendum í
heimilis ofbeldismálum.
Vissulega er mörgum vísað til Heimilisfriðar eftir
að hafa orðið uppvísir að því að beita ofbeldi í nánu
sambandi en þangað kemur líka fólk að
eigin frumkvæði því það hefur ein
lægan vilja til að hætta að beita ofbeldi
og er tilbúið til að taka við hjálp.
Andrés segir þó marga gera lítið
úr ofbeldinu í byrjun eða segjast
jafnvel ekki muna eftir því. Það
vekur athygli að hann segir þetta
eðlilegt: „Fólk kemur hingað upp
fullt af skömm og þarf að verja sig
með einhverjum hætti því annars
er nánast ógjörningur að horfast
í augu við sjálfan sig.“ Það vill
enginn vera manneskja sem
beitir ástvini sína ofbeldi.
Samt er það staðreynd að
fjöldi fólks gerir það.
Verkefnið Heimilisfriður
hét í upphafi Karlar til
ábyrgðar en nafninu var
breytt árið 2013 enda alls
ekki bara karlar sem beita
ofbeldi í nánum sam
böndum. Af þeim sem
koma til Heimilisfriðar
eru um 75% karlar, 25%
konur og einstaka trans
fólk. Það eru sannarlega
ekki allir sem hafa beitt
heimilisofbeldi sem þangað koma en þetta ætti að
geta gefið einhverja hugmynd.
Kvennaathvarfið er með mjög áhugaverða vefsíðu
þar sem hægt er að sækja sér ýmsan fróðleik. Þar er
meðal annars fjallað um ólíkar tegundir ofbeldis en
flestir tala almennt bara um andlegt, líkamlegt og
kynferðislegt ofbeldi.
Þar er hins vegar líka fjallað um stafrænt ofbeldi
og fjárhagslegt ofbeldi. Stafrænt ofbeldi er þegar
ofbeldi er beitt með notkun tækni, til dæmis að
senda skilaboð gegnum samfélagsmiðla, síma eða
tölvupóst. Eitt dæmi um það er þegar maki stýrir
því hverja þú mátt tala við gegnum samfélags
miðla eða í síma. Fjárhagslegt ofbeldi er leið til að
stjórna makanum í gegnum fjárhag. Dæmi um slíkt
er þegar maki tekur launin þín af þér, skammtar
þér peninga eða eyðileggur persónulega muni þína
viljandi.
Nú hvetjum við ekki bara þolendur til að leita sér
hjálpar, við hvetjum gerendur til að leita sér hjálpar.
Það er hjálp að fá! n
Fólk kemur
hingað upp-
fullt af skömm.
UPPÁHALDS
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Þorbjörg Marinósdóttir, tobba@dv.is
AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Erla Hlynsdóttir, erlahlyns@dv.is FRÉTTASTJÓRI: Ágúst Borgþór Sverrisson, agustb@dv.is AUGLÝSINGAUMSJÓN: Hrafn Norðdahl, hrafn@dv.is
PRENTUN: Torg prentfélag DREIFING: Póstdreifing. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. DV, Kalkofnsvegi 2, 101 Reykjavík Sími: 550 7000.
Ágústa Arna Sigurdórs-
dóttir félagsfræðingur er
þekkt fyrir sinn einstaka
húmor. Hún hefur líka mjög
gaman af goðsagnakenndu
sjónvarpsþáttunum Fóst
bræðrum sem fyrst fóru í
loftið árið 1997. Hún segir
hér frá uppáhalds atriðunum
sínum úr þáttunum.
1 Sá vægir sem vitið
hefur meira
Sigurður beturviti er svo viss
um að Anthony Hopkins leiki
í myndinni The Plummer að
hann hringir í Hopkins og
reynir að sannfæra hann um
að hann hafi leikið í mynd
sem hann lék alls ekki í.
2 Maðurinn sem vildi
bara kaupa það sem
byrjaði á N / Konan sem
kunni bara að elda bjúgu
Þar sem þessir tveir sketsar
skarast verð ég að taka þá
sem eina heild. Stuttu síðar
er dagurinn eyðilagður fyrir
honum þar sem svartar ólífur
voru settar í innkaupakörf
una. Og svartar ólífur byrja
svo sannarlega ekki á N!
3 Óviðeigandi tengda-
mamman (Litli strákurinn
minn bara byrjaður að ríða)
Sonurinn kemur með nýju
kærustuna sem er komin
fimm mánuði á leið í heim
sókn til móður sinnar.
Tengdadóttirin er fljót að
komast að því að tengda
móðirin er vægast sagt
óviðeigandi enda spyr hún
vægast sagt mjög óviðeigandi
spurninga.
4 Og það er komið ljós
Finnur og spúsa hans voru
að flytja í nýja íbúð. Finnur
er sérstaklega ánægður með
lýsinguna sem hann getur
stjórnað með einu handtaki.
Eitt handtak og það er komið
ljós!
5 Gamalt fólk og tölvur
Í þessu atriði fara Helga
Braga og Jón Gnarr á kostum
sem eldri hjón sem eru laf
hrædd við tækninýjungarnar
sem fylgja nútímanum. Sonur
inn kemur færandi hendi í
heimsókn með tölvu en gömlu
hjónin vilja ekki sjá slíkt
apparat inni á sínu heimili!
FÓSTBRÆÐRA
SKETSAR
2 LEIÐARI 12. MARS 2021 DV