Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2021, Blaðsíða 20
B a r navör uversluni n Barnaloppan hefur notið mikilla vinsælda
en þar eru eingöngu seldar
notaðar vörur, svo sem notuð
föt, leikföng og bækur. Eig
endur Barnaloppunnar leggja
áherslu á umhverfisvernd og
samfélagslega ábyrgð, og
þeir vinna að Heimsmark
miðum Sameinuðu þjóðanna
um ábyrga vatnsnotkun og
nýtingu náttúruauðlinda.
Hjá Barnaloppunni getur
fólk leigt bás til að selja not
aðar barnavörur. Þegar það
er búið að panta bás fær það
aðgang að innri vef þar sem
búnir eru til verðmiðar og
skráð inn lýsing á vöru, en
fólk ákveður sjálft á hvaða
verði það vill selja vörurnar.
Það setur síðan sjálft upp bás
inn en starfsfólk Barnalopp
unnar sér um að selja vöruna
og standa þar vaktina.
„Við gefum fólki ýmis sölu
ráð, til dæmis að verðleggja í
hófi og ekki troða of miklu í
básana heldur fylla frekar á,“
segir Guðríður Gunnlaugs
dóttir sem á og rekur Barna
loppuna ásamt manni sínum,
Andra Jónssyni. Þá eiga
hlutir að vera heilir og í góðu
ásigkomulagi og ekki er
ætlast til þess að verið sé að
selja óhreinan fatnað. Hjónin
opnuðu verslunina eftir að
þau fluttu heim frá Dan
mörku þar sem þau kynntust
svokölluðum loppuverslunum.
Barnaloppan var fyrst opn
uð í Skeifunni 11d en verslun
arrýmið var nýlega stækkað
um helming og verslunin
færð í Skeifuna 11a, og deilir
þar inngangi með Bónus.
„Við vorum búin að sprengja
húsnæðið utan af okkur. Ekki
síst vildum við auka plássið
þannig að fólk hefði betra
rými til að mætast. Þá var
líka kominn þriggja til fjög
urra mánaða biðlisti eftir bás.
Við opnuðum á nýja staðnum
2. janúar og bundum vonir við
að það yrði kannski tveggja
vikna bið eftir bás en hún er
nú strax orðin mánuður, sem
þó er betra en það sem var
áður. Íslendingar vilja bara
oft gera hlutina strax,“ segir
hún.
Fannst það fyrst skrýtið
Guðríður segir það hafa auk
ist mikið síðan þau opnuðu
fyrst að fólk kaupi notaðar
barnavörur til að gefa. „Fyrst
fannst fólki það svolítið skrýt
ið. Það var hins vegar aukning
þarsíðustu jól og núna síðustu
jól var mikil söluaukning þar
sem fólk var að kaupa gjafir.
Fólk er frekar að kaupa notuð
leikföng en fatnað til að gefa
og mest eru þetta foreldrar
að kaupa gjafir handa sínum
börnum. Sumum finnst enn
óþægilegt að gefa notað í af
mælisgjafir og slíkt en það er
alltaf að aukast að fólki finn
ist það sjálfsagt.
Við sjáum vel þessa aukn
ingu og margir segja okkur að
þeir séu að kaupa gjöf. Fólk er
KAUPA NOTAÐ TIL AÐ GEFA
Verslanir með notaðar vörur njóta síaukinna vinsælda og er Barna-
loppan þar engin undantekning. Mun umhverfisvænna er að endurnýta
föt og leikföng en að kaupa alltaf nýtt, það minnkar losun koldíoxíðs.
að kaupa tækifærisgjafir og
afmælisgjafir. Fólk fær svo
mikið meira fyrir peninginn
þegar það kaupir notað. Það
er kannski hægt að fá dót hér
á 500 krónur sem kostar 5 þús
und krónur nýtt. Hingað kom
ein mamma og keypti sex af
mælisgjafir á tvö þúsund kall.
Við höfum reynt að auglýsa að
hér sé tilvalið að kaupa gjafir
og vekjum athygli á því á sam
félagsmiðlum en það er líka
að aukast að fólk kaupi gjafa
bréf,“ segir hún.
Þá tekur hún fram að þau
gefi sjálf mikið af notuðu enda
sé varla ætlast til annars af
þeim.
Endursalan er
umhverfisvænni
Á síðasta ári lét Barnaloppan
verkfræðistofuna Eflu reikna
út fyrir sig „loftslagsávinning
af rekstri Barnaloppunnar“.
Samkvæmt útreikningum frá
mars 2020 segir í skýrslu frá
Eflu að reikna megi með því
að miðað við fjölda seldra ein
inga í versluninni frá upphafi,
snemma árs 2018, jafngildi
það því að komið hafi verið í
veg fyrir losun á 2.600 tonnum
CO2ígilda með endursölu á
notuðum vörum í stað þess að
nýjar vörur hefðu verið keypt
ar og þar með framleiddar.
Þá segir í skýrslunni:
„Meðal losun fólksbifreiðar
sem keyrir 15.000 km á ári
eru tæp 2 tonn CO2ígildi á
ári. Sú losun sem búið er að
koma í veg fyrir með endur
sölu og endurnotkun á not
uðum vörum í Barnaloppunni
jafngildir þannig losun gróð
urhúsalofttegunda frá 1.300
bifreiðum á einu ári.“
Andri Jónsson, rekstrar
stjóri og annar eigenda Barna
loppunnar, segir að frá því
skýrslan var gerð hafi salan
rúmlega tvöfaldast og því sé
hægt að áætla að tölurnar
megi rúmlega tvöfalda. Því
má segja að sú endurnýting
sem hefur átt sér stað með
verslun með notaðar barna
vörur í Barnaloppunni frá
opnun hafi komið í veg fyrir
það sem jafngildir árlegri
losun gróðurhúsalofttegunda
frá minnst 2.600 bifreiðum.
Tekið skal fram að í skýrsl
unni segir: „Þess skal getið
að ofangreindir reikningar
eru einfaldaðir og eingöngu
til þess gerðir að sýna fram á
þá stærðargráðu losunar sem
að endursala og endurnotkun
á vörum kemur í veg fyrir.
Í hvert skipti sem að valinn
er sá kostur að kaupa notaða
vöru í stað þess að kaupa nýja
er verið að draga úr fram
leiðsluþörf á nýrri vöru og
nýta hráefni jarðar betur.“
Eftirspurn fyrir fullorðna
Guðríður segir almenning
alltaf að verða meðvitaðri um
umhverfisþátt þess að kaupa
notað. Mest er af litlum fata
stærðum í Barnaloppunni
enda eru það föt sem börn
vaxa fljótt upp úr og sér því
varla á þeim. Þó er boðið upp
á að selja upp í táningastærðir.
Það var síðan snemma árs
2019 sem þau opnuðu Extra
loppuna í Smáralind ásamt
Erla
Hlynsdóttir
erlahlyns@dv.is
20 FÓKUS 12. MARS 2021 DV