Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2021, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2021, Blaðsíða 8
S ex bátar voru í höfninni á Flateyri er flóðið féll á varnarveggi sem reistir voru fyrir ofan bæinn. Varn­ arveggirnir bægðu flóðinu frá bænum og út í höfnina. Al­ tjón varð á flestum bátunum. Eiður var stærstur þeirra og reyndist heilmikil aðgerð að koma honum upp úr höfn­ inni. Honum hvolfdi í flóðinu og maraði hann á floti í höfn­ inni í um tvær vikur. Síðar meir tókst köfurum að koma böndum á hann, snúa honum við og sökkva honum. Þá gátu kafararnir loks hafist handa við að þétta hann til þess að hægt væri að dæla vatni úr honum og ná honum á flot. Kostnaðurinn við aðgerðirnar féll á tryggingafélag hvers báts fyrir sig, nema eins sem reyndist ótryggður. Eiður var loks dreginn til Ísafjarðarhafnar þar sem hann lá bundinn við bryggju þar til um síðustu helgi. Á hádegi laugardags 6. mars fylgdust Ísfirðingar svo með því er björgunarskipið Gísli Jóns dró Eið út Skutulsfjörð. Lá leiðin inn Djúpið og að landi Garðsstaða. Þar var sett lína í bátinn og hann dreginn með jarðgröfu upp á land þar sem stendur til að rífa hann. Þorbjörn á Garðsstöðum alræmdur safnari Landeigendur á Garðsstöðum hafa legið undir gagnrýni undanfarin ár vegna fjölda bíl­ hræja sem á jörðinni standa. Eigandi jarðarinnar, og bíl­ hræjanna, segist stunda nið­ urrifsstarfsemi og partasölu. Í viðtali við Fréttablaðið árið 2019 var haft eftir ábúendum á Ögri, næsta bæ við Garðsstaði, að þeir áætluðu að um 650­700 bílhræ stæðu á jörðinni, auk mikils magns af öðru rusli. Ábúendurnir á Ögri skrif­ uðu árið 2019 harðort bréf til ýmissa stofnana ríkis og sveitarfélaga, auk stjórn­ málamanna þar sem þeir sök­ uðu Þorbjörn Steingrímsson, ábúanda á Garðsstöðum, um að hafa staðið að ólögmætri starfsemi. Samkvæmt upplýsingum frá Umhverfisstofnun gildir reglugerð umhverfis­ og auð­ lindaráðuneytis um endur­ vinnslu skipa og segir þar að starfsemi þar sem endur­ vinnsla skipa fer fram skuli vera starfsleyfisskyld. Í þeim tilfellum þar sem skipið er undir 500 brúttótonnum skal leyfisveitingin vera á hendi heilbrigðisnefnda sveitar­ félaga. DV kannaði hvort leyfi fyrir niðurrifi og endurvinnslu bátsins á landi Garðsstaða hefði verið gefið út og er skemmst frá því að segja, að svo er ekki. Í skriflegu svari við fyrir­ spurn DV segir Anton Helga­ son frá Heilbrigðiseftirliti Vestfjarða að engin starfsleyfi hafi verið gefin út „enn sem komið er“. Hann segir jafn­ framt að skoðað hafi verið að taka bátinn á land á Ísafirði en fyrir því hafi ekki verið áhugi. Anton segir að Eiður hafi verið of stór og þungur til þess að hægt væri að taka hann upp úr sjónum með krana og sé þess utan of stór til að hægt sé að koma honum í gegnum göngin. „Báturinn lá á hafsbotni um tíma og er því vel skolaður. Eins hefur Terra yfirfarið bátinn og var öllum spilliefnum dælt úr.“ Anton segir að brotamálms­ fyrirtækið Fura mun sinna niðurrifi bátsins á landi Garðsstaða og flytja leifarnar í endurvinnslu. Bragi Þór Thoroddsen, sveitarstjóri í Súðavíkur­ hreppi, sagðist ekkert kannast við málið. Lítið eftirlit með eftirlitinu DV sendi enn fremur fyrir­ spurn á björgunarsveitina á Ísafirði, sem sagði að þessi notkun á björgunarskipi væri hluti af reglubundinni tekju­ öflun björgunarsveitarinnar. „Þetta var fjáröflunarverkefni og það koma af og til slík verk­ efni og er þá samið um þjón­ ustugjald fyrir fram. Rekstur björgunarbátasjóða sem okkar, þar sem á bilinu 15­30 útköll berast á ári, er fjárfrekur og því eru fjáröflunarverkefni yfirleitt kærkomin, auk þess sem slík verkefni geta verið góð æfing fyrir áhöfn skips­ ins,“ sagði Gauti Geirsson, for­ maður björgunarbátasjóðsins á Ísafirði. Hann kvaðst ekki geta veitt DV upplýsingar um hver greiddi fyrir aðgerðina eða hvað drátturinn kostaði. Í svari Friggjar Thorlacius, lögfræðings hjá sviði efna, eftirlits og veiðistjórnunar hjá Umhverfisstofnun, við fyrirspurn DV um viðurlög við brotum á áðurnefndri reglu­ gerð, segir hún að heilbrigðis­ nefndir sveitarfélaganna hafi eftirlit með atvinnurekstri sem þessum. „Þau þvingun­ arúrræði sem heilbrigðis­ nefnd hefur í þessu tilviki, til að koma á reglufylgni, eru áminning, dagsektir og verk á kostnað aðila og stöðvun til bráðabirgða.“ Það er því sama heilbrigðisnefnd sem vissi af ætluðu niðurrifi skipsins á landi Garðsstaða og taldi ekki þörf á að veita fyrir því leyfi sem á að hafa eftirlit með því að leyfi séu veitt og refsa þeim sem fara af stað í leyfisskylda starfsemi án tilskilinna leyfa. Umhverfisstofnun er þó heimilt að beita stjórnvalds­ sektum „í vissum tilfellum“, sem og að kæra brot á lögunum og reglugerðum til lögreglu, að því er fram kemur í svari Friggjar. DV spurði Umhverfisstofnun að því hvort niðurrif Eiðs á landi Garðsstaða í leyfisleysi væri til skoðunar og hvort stofnunin hygðist kæra fram­ kvæmdina, en svör höfðu ekki borist þegar blaðið fór í prent­ un. Svörin verða birt á vefnum DV.is ef og þegar þau berast. n Heimir Hannesson heimir@dv.is MYND/SKJÁSKOT MAP.IS ENN BÆTIST Í SAFN ALRÆMDS RUSLASAFNARA Í DJÚPINU Báturinn Eiður sem fórst í snjóflóðinu á Flateyri aðfaranótt 15. janúar 2020 var um síðustu helgi dreginn upp á strönd á landi Garðsstaða í Ísafjarðardjúpi þar sem til stendur að rífa hann. Engin starfsleyfi liggja fyrir aðgerðinni þó að Heilbrigðiseftirlit Vestfjarða viti af henni. Báturinn Eiður fórst í snjó- flóðinu á Flat- eyri í janúar í fyrra. MYND/HEIMIR SAFNARINN Í DJÚPINU Nágrannar Garðsstaða áætla að um 700 bílhræ séu á jörðinni. 8 FRÉTTIR 12. MARS 2021 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.