Fréttablaðið - 06.04.2021, Blaðsíða 30
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056:
Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
www.husgagnahollin.is
Sími: 558 1100
AFSLÁTTUR AF ÖLLU
M20%
DÖNSKUM VÖRUM
*
www.husgagnahollin
.is
V
E F V E R S L
U
N
KEEP
Sófar og skammel.
Sjá nánar hér
DANSKIR
DAGAR
REYKJAVÍK AKU
REYRI ÍSAFIRÐI
* Gildir ekki af sérpön
tunum eða vörum frá
Skovby.
HEFJAST Í DAG
ÞÚ FINNUR NÝJAN
124 SÍÐNA BÆKLING
FYRIR DANSKA DAGA
Á husgagnahollin.is
SKRÁÐU ÞIG Á
PÓSTLISTANN
Fáðu blað dagsins
sent rafrænt
Froskur útgáfa gaf nýlega út fyrri hluta myndasög-unnar um perlukafarann Maram í snoturri bók sem höfundurinn Magnús Björn Ólafsson og franski
teiknarinn Adrroc, Adrian Roach,
hafa nostrað við á síðustu þremur
árum.
Útgefandinn Jean Posocco segist
strax hafa hrifist af sögunni þegar
Magnús Björn bar hana undir hann
og ákveðið að hafa bókina sem veg-
legasta en hún er fáanleg á íslensku
og ensku.
„Bókin fjallar um ungan perlukaf-
ara sem stelst inn í drauma gamals
einbúa á afskekktri Kyrrahafseyju
og þá upphefst voveifleg atburðarás
sem virðist samofin löngu gleymd-
um harmleik úr grárri forneskju,“
segir Jean og bætir við að í sögunni
mætist töfraveröld undirdjúpanna
og speglasalur draumheims þar sem
upp spretta spurningar um eðli til-
verunnar í veruleika sem er við það
að gliðna í sundur.
Mantran um Maram
„Þetta byrjaði allt saman á því að
ég var á milli verkefna og langaði að
skrifa sögu,“ segir Magnús Björn um
nokkuð sérstaka tilurð bókarinnar.
Hann segir að þrátt fyrir sterka
löngun til þess að skrifa fallega sögu
hafi hann ekki fundið hana innra
með sér.
„Þannig að konan mín, sem er
jógakennari, gaf mér möntru sem
er sérhönnuð til þess að virkja sköp-
unarkraftinn. Ég fór að kyrja þessa
möntru eins og brjálæðingur og
áður en ég vissi af þá fór ég bara að
sjá, hvort sem augun voru opin eða
lokuð, einhverjar svona myndir,
glefsur og senur úti um allt.“
Hann segir þessi leiftur hafa orkað
svo sterk á hann að hann hafi ekki
getað annað en byrjað að skrifa út frá
þeim. „Bæði til þess að koma þessu
út og fanga þetta. Bara losna við
þetta hreinlega.“
Möntruhamagangur
Magnús Björn segist strax hafa áttað
sig á að um myndasögu væri að ræða.
„Vegna þess að ég sá þetta bara í raun
og veru ljóslifandi,“ segir hann og
bendir á að í bókinni sé ein sena, sem
hann sá í öllum „þessum möntru-
hamagangi“ eins og hún leggur sig.
Út frá þessari senu byggði hann
síðan beinagrind sögunnar á eigin
reynslu. Bæði á ferðalögum sínum
og því sem hann hefur upplifað
innra með mér og ytra. „En á end-
anum varð ég alltaf að spyrja mig að
því hvaða sögu mig langaði að lesa
og skrifaði svo bara þá sögu. Fyrir
sjálfan mig og til að leyfa öðrum að
heyra.“
Magnús Björn fiktaði við að
teikna myndasögur í æsku en kennir
misskildum fordómum um að hann
sneri baki við listforminu á mennta-
skólaárunum. Hann hafi þó alltaf átt
sér þann draum að gera sína eigin
sögu. „En þá var vandamálið að ég
kunni ekki lengur að teikna,“ segir
hann um stöðuna, loksins þegar
sagan kom til hans.
Perluvinir
„Og þá eiginlega féll þetta um sjálft
sig. Vegna þess að það er svo erfitt að
finna teiknara á Íslandi sem hefur
helgað sig þessu listformi og er þá á
lausu,“ segir myndasöguhöfundur-
inn, sem fór með óklárað handritið
til Berlínar þar sem honum var bent
á franska teiknarann Adrian Roach,
Adrroc.
„Við hittumst nokkrum mánuð-
um síðar þegar ég keyrði til Frakk-
lands og það neistaði einhvern
veginn þannig á milli okkar að við
erum búnir að vera perluvinir og
samstarfsfélagar síðan.
Ég get alveg lofað þér því að við
verðum ekki ríkir af þessu en þetta
er alveg ægilega gaman og það að
finna einhvern sem var tilbúinn að
skuldbinda sig allan þennan tíma.
Það er í raun og veru bara guðs gjöf.“
Magnús Björn segist aðspurður
hafa fengið góð viðbrögð við Maram.
„Ég veit ekki hvernig hún er að seljast
en fólk hefur sagt mjög fallega hluti
við mig um þessa bók. Kannski er ég
svona hégómagjarn en það er ótrú-
lega gott að fá klapp á bakið þegar
maður er búinn að leggja svona
mikla vinnu í eitthvað eins og þetta.“
toti@frettabladid.is
Perlukafarinn Maram
kom upp í jógamöntru
Draumur Magnúsar Björns Ólafssonar um að gera myndasögu
rættist þegar konan hans kenndi honum sérstaka möntru og
rammar í sögu perlukafarans Maram framkölluðust í huga hans.
Magnús Björn
segir þá Adrroc
hafa tekið sér þrjú
ár til að klára fyrri
hluta Maram en
gerir sér vonir um
að seinna bindið
komi út eftir eitt ár
þótt þeir hafi því
miður að mestu
þurft að gera það
í fjarvinnu vegna
COVID. FRÉTTABLAÐ-
IÐ/ANTON BRINK
Perlukafarinn Maram fer djúpt ofan
í töfraveröld undirdjúpanna.
OG ÞÁ EIGINLEGA FÉLL
ÞETTA UM SJÁLFT SIG.
VEGNA ÞESS AÐ ÞAÐ ER SVO
ERFITT AÐ FINNA TEIKNARA Á
ÍSLANDI SEM HEFUR HELGAÐ
SIG ÞESSU LISTFORMI OG ER ÞÁ
Á LAUSU.
6 . A P R Í L 2 0 2 1 Þ R I Ð J U D A G U R18 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð