Fréttablaðið - 30.04.2021, Blaðsíða 26
Á Heilsustofnun í Hveragerði
hefur frá upphafi verið lögð
áhersla á holla og góða nær-
ingu. Þar hefur farið fram lífræn
ræktun í áratugi og ýmsar
tegundir sem boðið er upp á eru
ræktaðar á staðnum.
Að sögn Inga Þórs Jónssonar,
markaðsstjóra hjá Heilsustofnun,
var stofnunin einn af frumkvöðl
unum hérlendis í lífrænni ræktun.
„Frá upphafi hafa sjálfbærni
sjónarmið einnig verið mjög
ríkjandi í starfseminni þó það hafi
ekki verið búið að finna upp þetta
hugtak,“ segir Ingi Þór, en Heilsu
stofnun NLFÍ í Hveragerði hefur
starfað frá árinu 1955.
„Það skiptir miklu máli til fram
tíðar að tileinka sér sjálfbærni.
Við höfum gert það meðvitað og
ómeðvitað frá upphafi. Við erum
það heppin að við búum yfir okkar
eigin orku að hluta til, sem eru
tvær borholur sem hita upp öll
húsin okkar, samtals 12.000 fer
metra. Þar með talin gróðurhús,“
segir hann.
„Á Heilsustofnun koma árlega
um 1.350 einstaklingar í endur
hæfingu og dvelja hér í fjórar vikur
að meðaltali. Í grunninn er boðið
upp á mjög fjölbreytt og heilsu
samlegt grænmetisfæði, myndar
legan salatbar ásamt girnilegum
aðalréttum og súpum. Þetta er
mjög hrein fæða og við notum
ekki hvítan sykur eða hvítt hveiti,
þannig hefur það alltaf verið hér.
Fjölbreyttur, bragðgóður matur
úr heilnæmu hráefni og fiskur er á
boðstólum tvisvar í viku.“
Næring mikilvæg
Ingi Þór segir að lífræn ræktun og
endurhæfing fari vel saman.
„Kjörorð okkar er að bera
ábyrgð á eigin heilsu. Í því felst að
sinna bæði líkamlegri og andlegri
heilsu. Við erum með fjölbreytta
endurhæfingu hér á Heilsustofnun.
Geðendurhæfingu, gigtarendur
hæfingu, hjarta og lungnaendur
hæfingu, krabbameinsendur
hæfingu, öldrunarendurhæfingu,
tauga og bæklunarendurhæfingu,
offitu og efnaskiptameðferð,
streitumeðferð og verkjameðferð.
Næringarþátturinn er mjög stór
þáttur í heilsu og mikilvægur í allri
endurhæfingu,“ segir hann.
„Undanfarin ár höfum við lagt
áherslu á að rækta fleiri tegundir
af grænmeti til að bjóða upp á hér
á Heilsustofnun, en við erum ekki
að framleiða á markað eins og
áður. Hugsunin bak við það er að
geta boðið upp á fjölbreyttara, líf
rænt ræktað grænmeti fyrir okkar
dvalargesti. Við höfum meðal ann
ars verið að bæta við ýmiss konar
salati, hnúðkáli, kúrbít og fleiri
tegundum sem henta vel í matar
gerð. Einnig er leitast við að kaupa
íslenskt grænmeti í heimabyggð.
Fólk er sífellt að verða meðvitaðra
um það hvað góð og holl næring
skiptir miklu máli. Lífræn ræktun
spilar stórt hlutverk þar.“
Ingi segir að auk heilnæmrar,
lífrænnar fæðu spili umhverfi
Heilsustofnunar stórt hlutverk í
endurhæfingunni.
„Fólk nýtur þess að vera úti
í náttúrunni, en við erum með
skipulagðar gönguferðir sem hluta
af endurhæfingunni. Hér á lóðinni
hafa verið gróðursettar þúsundir
trjáa og umhverfið er aðlaðandi.
Hér er því kjörið að næra bæði
líkama og sál.“
Lífrænt vor í lofti
Á Heilsustofnun í Hveragerfði hefur verið lögð mikil áhersla á sjálfbærni
frá upphafi og grænmeti til matargerðar er ræktað á staðnum.
Allt grænmetið
er lífrænt rækt-
að og boðið er
upp á fjölbreytt
grænmetisfæði
á staðnum.
Ingi segir að Heilsustofnun hafi verið einn frumkvöðlanna hérlendis í lífrænni ræktun. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Hollvinasamtök Heilsustofnunar hafa stutt Heilsustofnun og fjármagnað kaup á ýmsum tækjum og búnaði. Hér
taka Aðalheiður Einarsdóttir, sjúkraliði, Stefanía Sigurjónsdóttir, deildarstjóri hjúkrunar, Þorkell Guðbrandsson,
hjartalæknir og Ingi Þór Jónsson, markaðsstjóri, við ABPM sólarhringsblóðþrýstingsmæli frá Welch Allyn.
6 kynningarblað 30. apríl 2021 FÖSTUDAGURLÍFR ÆN VOTTUN