Fréttablaðið - 30.04.2021, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 30.04.2021, Blaðsíða 6
COVID-19 „Við erum búin að vera með teymi í COVID-tengdum verk- efnum frá því að faraldurinn skall á,“ segir Guðjón Vilhjálmsson, for- stöðumaður heilbrigðislausna hjá upplýsingatæknifyrirtækinu Origo. Fyrirtækið hannaði í samstarfi við Embætti landlæknis kerfi sem sér um utanumhald varðandi bólu- setningu við COVID-19. Kerfið myndar gagnagrunn að lausnum við bólusetningar og heldur meðal annars utan um fólk í for- gangshópi og boðar í bólusetningu með SMS-skilaboðum jafnóðum og bóluefni berst til landsins. Þá eru allar bólusetningar skráðar í kerfið þar sem haldið er utan um það hverj- ir hafa fengið bólusetningu. „Við höfðum áður þróað gagna- grunn fyrir allar bólusetningar á Íslandi og þetta kerfi tengist því verkefni en það sem snýr að skipu- lagningu COVID-19 bólusetning- anna og boðun þurftum við að þróa alveg frá grunni,“ segir Guðjón. Að sögn Guðjóns hefur Origo einnig unnið náið með Embætti landlæknis að sýnatökum bæði á landamærunum og á heilbrigðis- stofnunum. Sú þekking hafi einnig nýst vel við bólusetningarkerfið. Guðjón segir ánægjulegt að fleiri séu að átta sig á tækifærum varð- andi tækni í faraldrinum, áður fyrr hefði líklega verið farin önnur leið í skipulagningu bólusetninga. „Þá hefði líklega verið sett fólk í að hringja út og gera allt og græja en með því að nýta tæknina með þess- um hætti er hægt að straumlínulaga þetta svo gríðarlega,“ segir Guðjón. Í SMS-skilaboðunum sem send eru þeim sem boðaðir eru í bólu- setningu er strikamerki sem skann- að er á bólusetningarstað, þannig er fólk skráð á einu augnabliki. „Víða erlendis þarf fólk að gefa upp nafn og kennitölu og svo þarf að leita að því í kerfinu. Hver skráning tekur kannski eina til tvær mínútur. Það var mikill fókus á það hjá okkur að gera skráninguna á bólusetningarstað eins einfalda og mögulegt er,“ segir Guðjón Þá minnir Guðjón á mikilvægi þess að hver og einn sé sem stystan tíma á bólusetningarstað. Í þessari viku var stefnt á að bólusetja um 25 þúsund manns, ein auka mínúta á hvern einstakling á bólusetningar- stað sé því fljót að telja klukkutíma. Guðjón segir kerfið hafa reynst afar vel en að það geti reynst f lókið að halda utan ýmsa hluti. „Fólk er náttúrulega að mæta í fyrri og seinni sprautu og það er búið að búa til forgangshópa. Svo koma upp dæmi þar sem einhver mætir ekki eða má ekki fá ákveðið bóluefni vegna undirliggjandi sjúk- dóms og þá þarf að eiga sérstak- lega við það,“ segir Guðjón.Tekist hafi afar vel að halda utan um allt saman. „Við höfum ekki lent í vandamál- um tengdum skipulagningu eins og eru að koma upp víða um heim.“ birnadrofn@frettabladid.is Skipulag bólusetninga sagt hafa virkað vel Guðjón Vilhjálmsson, forstöðumaður heilbrigðislausna hjá Origo, segir kerfi sem heldur utan um bólusetningar vegna COVID-19 hafa virkað vel. Lögð var áhersla á að gera skráningu einstaklinga á bólusetningarstað sem einfaldasta. Stefnt var að því að bólusetja um 25 þúsund manns gegn COVID-19 í þessari viku. Skipulagning hefur gengið vel og skiptir þar miklu máli að hver og einn sem bólusettur er sé ekki of lengi á bólusetningarstað. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Það sem snýr að skipulagningu COVID-19 bólusetninganna og boðun þurftum við að þróa alveg frá grunni. Guðjón Vil- hjálmsson, forstöðumaður heilbrigðislausna hjá Origo HEILBRIGÐISMÁL Halldóra Mogen- sen, þingmaður Pírata, segir mikla viðhorfsbreytingu landsmanna gagnvart afglæpavæðingu neyslu- skammta á skömmum tíma, sýna hversu mikilvæg upplýst og opin umræða um málaflokkinn sé. Hall- dóra lagði fyrst fram frumvarp um afglæpavæðingu árið 2019. Í gær greindi Fréttablaðið frá nýrri könnun Félagsvísindastofn- unar þar sem kemur fram að 60 prósent styðji nú afglæpavæðingu neysluskammta, miðað við rúmlega 30 prósent í könnunum árin 2015 til 2019. Þá telja f lestir nú kynferðis- brot alvarlegustu af brotin fyrir samfélagið en fíknibrot hafa verið efst áratugum saman. Halldóra segir að hugsa þurfi kerfið upp á nýtt þegar kemur að því að taka á fíkniefnamálum. „Ég er á þeirri skoðun að það eigi ekki að refsa fólki sem er veikt,“ segir hún. „Burðardýr fíkniefna og smásalar eru oft fólk sem er sjálft í neyslu og við leysum engan vanda, hvorki samfélagslegan né vanda þeirra, með refsingum.“ En eins og Fréttablaðið greindi frá um miðjan apríl sker Ísland sig frá nágranna- þjóðum þegar kemur að refsihörku í fíkniefnamálum og óvenju margir fíknifangar eru hér í varðhaldi. „En þetta eru líka skref,“ segir Halldóra. „Afglæpavæðing er mikil- vægt skref til að viðurkenna að núverandi nálgun hefur ekki virkað. Fólk er ekki að hætta í neyslu af því að hún er ólögleg og refsingar hjálpa því ekki að ná bata.“ Segist hún sann- færð um að þegar árangur afglæpa- væðingar komi í ljós verði fleiri skref stigin til þess að minnka refsihörk- una í fíkniefnamálum. – khg Afglæpavæðing fyrsta skrefið til að minnka refsihörku í fíkniefnamálum Burðardýr fíkni- efna og smásalar eru oft fólk sem er sjálft í neyslu og við leysum engan vanda, hvorki samfélags- legan né vanda þeirra, með refsingum. Halldóra Mogen- sen, þingmaður Pírata STJÓRNSÝSLA Umsókn Íslands um aðild að Geimvísindastofnun Evr- ópu hefur velkst um í kerfinu í hart- nær fimm ár og er komin í hendur mennta- og menningarmálaráðu- neytisins frá utanríkisráðuneytinu. Þingmaður Samfylkingarinnar, Guðjón S. Brjánsson, spurði Guð- laug Þór Þórðarson utanríkisráð- herra hvað tefði umsóknina. Lilju Dögg Alfreðsdóttir, sem þá var utanríkisráðherra, var falið að sækja um aðild að Geimvísinda- stofnuninni í október árið 2016. Níu mánuðum síðar var óskað eftir tilnefningum í starfshóp um aðild Íslands að stofnuninni og fyrsti fundur fór fram í desember 2017. Í febrúar 2019 var svo fundur með fulltrúum Geimvísindastofnunar Evrópu. Niðurstaðan var að stofnunin sendi stjórnvöldum vegvísi að því hvernig undirbúa skyldi svonefnt fyrsta stigs samstarf. Vegvísirinn barst í febrúar 2019 og 11. júní lá fyrir samþykki á næsta skrefi í ferlinu í samræmi við veg- vísinn, sem fólst í því að ráðherra málefna geimsins ritaði stofnun- inni bréf þar sem leitast væri eftir að hefja viðræður um aðild. Þá kom í ljós að starfsemi stofnunarinnar er á sviði vísinda, menntamála og rannsókna og var málið lagt í hendur mennta- og menningarmálaráðuneytis 7. apríl 2020. – bb Geimurinn var fjögur ár í röngu ráðuneyti á Íslandi Auglýsing um þátttöku í samráðsvettvangi um jafnrétti kynja – Jafnréttisráð. Í 24. grein laga nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna er gert ráð fyrir að ráðuneyti sem fer með jafnréttismál kalli saman samráðsvettvang um jafnrétti kynjanna, Jafnréttisráð og gefi aðilum tækifæri á að óska eftir þátttöku. Rétt til þátttöku eiga fulltrúar frá samtökum sem vinna að jafnrétti kynjanna samkvæmt lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna og fulltrúar frá aðilum vinnumarkaðarins og fræðasamfélaginu. Samkvæmt reglugerð Jafnréttisráð – samráðsvettvangur um jafnrétti kynjanna nr. 460/2021 eiga fulltrúar sveitarfélaga og samtaka þeirra einnig rétt til þátttöku. Lögaðilar sem starfa að jafnrétti kynjanna samkvæmt lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna önnur en þau sem tilgreind eru hér að ofan geta óskað eftir þátttöku en gerð er sú krafa að um sé að ræða lögaðila með stjórn og skráða kennitölu. Umsóknir um þátttöku sendist á skrifstofu jafnréttismála í forsætisráðuneytinu á netfangið for@for.is fyrir 14. maí nk. merkt Samráðsvettvangur. REYK JANESBÆR Íþrótta- og tóm- stundaráð Reykjanesbæjar skoðar að atvinnuleitendur fái tímabundið frítt í sund. Tímabilið sem ráðið leggur til er 15. maí til 1. ágúst í ár svo fremi sem samkomutakmark- anir hindri ekki framkvæmdina. Tillagan var borin upp á fundi ráðsins í vikunni. Áætlaður kostn- aður er 250 þúsund krónur en á fundinum kom einnig fram að mjög misjafnt er á milli bæjarfélaga hvort boðið sé upp á frítt í sund fyrir atvinnuleitendur. Árborg, Garða- bær, Reykjavík og Vestmannaeyjar bjóða upp á sund og Akranes býður atvinnuleitendum upp á helmings afslátt. – bb Skoða að hafa frítt í sund Atvinnuleitendur í Reykjavík fá frítt í sund. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Lilja Dögg Alfreðsdóttir 3 0 . A P R Í L 2 0 2 1 F Ö S T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.