Fréttablaðið - 30.04.2021, Blaðsíða 23
Fyrirtækið Arctic Fish var stofnað
árið 2011 og rekur tvö dótturfélög,
Arctic Sea Farm, sem sér um eldi
í sjó, og Arctic Smolt, sem sinnir
seiðaeldi á landi. Arctic Fish hefur
haft aðalskrifstofu á Ísafirði frá
stofnun en dótturfélag þess, Arctic
Smolt, er staðsett í Tálknafirði.
Þangað bárust lífræn laxahrogn
nú í mars frá Benchmark Genetics
(áður Stofnfiskur) og eftir um ár
verða svo lífræn seiði sett í Ísa-
fjarðardjúp og lífrænt eldi hafið.
Arctic Sea Farm hf. og forveri þess,
Dýrfiskur, hóf eldi í Dýrafirði árið
2009, fyrst á regnbogasilungi, en
það hefur nú fært sig alfarið yfir í
lax.
Einstök eldisstöð
„Í botni Tálknafjarðar er landið
Norður-Botn sem er í eigu Arctic
Fish og þar hafa risið stærstu
byggingar á Vestfjörðum, sem
telja um 11 þúsund fermetra,
en það er á teikniborðinu að
hefja frekari stækkun í ár,“ segir
Steinunn Guðný Einarsdóttir,
gæðastjóri Arctic Fish. „Stöðin er
einstök á heimsvísu, en í henni
er nýttur bæði jarðvarmi ásamt
100% endurnýjanlegri raforku úr
Mjólká.
Allt vatn sem nýtt er í stöðinni
kemur úr borholum á landareign
Arctic Fish, en stöðin er einnig
vatnsendurnýtingarstöð þar sem
yfir 90% vatns eru endurnýjuð
og lífrænn úrgangur fjarlægður
áður en affallsvatn er leitt út í sjó,“
útskýrir Steinunn. „Eldisstöðin er
einnig ein tæknivæddasta eldis-
stöð landsins og það er gaman
að segja frá því að núna erum við
einmitt í verkefni þar sem verið er
að finna bestu leiðina til að nýta
þennan lífræna úrgang.
Í eldisstöðinni eru laxahrognin
klakin og seiði alin í að meðaltali
rúmt ár áður en þau eru tilbúin
til að fara í áframeldi í sjó,“ segir
Steinunn. „Þau lífrænu hrogn sem
eru nú í klakstöðinni verða því
tilbúin til útsetningar í Ísafjarðar-
djúp á næsta ári, en þar er fyrir-
tækið með leyfi til lífræns eldis í
sjó.“
Lífrænt eldi fyrir umhverfið
„Það vantar oft inn í umræðuna
um sjóeldi á laxi að á um helmingi
tíma eldisferlisins er laxinn á
landi sem og að þetta er umhverf-
isvæn starfsemi. Fyrir fimm
árum síðan fékk Arctic Fish, fyrst
íslenskra eldisfyrirtækja, vottun
frá ASC – Aquaculture Steward-
ship Council, sem er ströng
umhverfisvottun og stór hluti
starfs míns fer í að viðhalda þeirri
vottun,“ segir Steinunn. „Háværar
raddir eru gegn laxeldi í sjó en
þeir sem þekkja starfsemina vita
hversu umhverfisvæn fram-
leiðslan er og hvað það er mikið
eftirlit, bæði innra og ytra, sem
þarf að vinna með.
Með því að fá lífræna vottun
á laxinn okkar stígum við skrefi
lengra, bæði hvað varðar umhverf-
ið og dýravelferð, en það eru bæði
mjög mikilvæg málefni í huga
starfsfólks og í stefnu fyrirtækis-
ins,“ segir Steinunn. „Með aukinni
vitundarvakningu hafa neytendur
líka fengið mikinn áhuga á að
vita hvaðan vörur þeirra koma
og hvernig þær eru framleiddar.
Það er töluverð eftirspurn eftir
lífrænum vörum og lífræn vottun
aðstoðar neytendur við að gera
upplýst kaup.
Þegar stundað er lífrænt eldi
er þéttleiki laxa hafður undir 10
kg á rúmmetra, en eldisleyfi á
Íslandi gera að jafnaði ráð fyrir að
þéttleiki megi fara í 25 kg sem er
almennt séð það viðmið sem notað
er annars staðar í heiminum,“ segir
Steinunn. „Arctic Fish hefur sett
stefnuna á að halda sig undir 15 kg
áður, en það er byggt á reynslu á
eldi laxa í sjó við Ísland. Með þessu
skrefi erum við því að fara lengra
en áður í að byggja upp sjóeldið
þannig að fiskurinn sé í lágum
þéttleika út eldisferilinn. Áfram-
eldið í sjó krefst ekki ytri orkugjafa
líkt og við þurfum á landi nema
það sem snýr að fóðruninni, en þar
erum við í samstarfsverkefni með
Bláma og Orkubúinu um rafvæð-
ingu fóðurpramma okkar.“
Lífræn seiði í Djúpinu á næsta ári
„Eldið hjá Arctic Fish er í stöðugri
þróun og bæði tækni og þekking
eykst með hverju árinu, en Arctic
Fish hefur öðlast mikla þekkingu
á sínu umhverfi í gegnum árin
og tekist á við ýmsar áskoranir í
íslenskri náttúru,“ segir Steinunn.
„Við erum ávallt með augun opin
fyrir nýjungum sem geta bætt
aðferðir, minnkað umhverfisáhrif
og bætt dýravelferð.
Við stefnum á að setja út okkar
fyrstu lífrænu seiði í Ísafjarðardjúp
á næsta ári. Það hefur verið í undir-
búningi allt frá stofnun fyrirtækis-
ins að hefja eldi þar á lífrænum
laxi. Það verður mikill sigur fyrir
fyrirtækið að geta byrjað lífræna
eldið í Djúpinu, bæði með tilliti
til vottunar, sögu fyrirtækisins og
staðsetningar,“ segir Steinunn að
lokum.
Hefja lífrænt eldi í Djúpinu
Steinunn Guðný
Einarsdóttir
er gæðastjóri
Arctic Fish
og stór hluti
starfs hennar
fer í að við-
halda ströngu
umhverfis-
vottuninni frá
Aquaculture
Stewardship
Council.
MYND/AÐSEND
Eldisstöð Arctic Fish í botni Tálknafjarðar er ein tæknivæddasta eldisstöð landsins. MYND/AÐSEND
Arctic Fish
fékk lífræn
laxahrogn frá
Benchmark
Genetics í mars
og eftir um
ár verða svo
lífræn seiði sett
í Ísafjarðardjúp
og lífrænt eldi
hafið þar. MYND/
AÐSEND
Arctic Fish sinnir eldi á laxi í sjó
og er að undirbúa lífrænt eldi
í Ísafjarðardjúpi á næsta ári.
Hafist var handa við að klekja út
lífrænum hrognum og ala lífræn
seiði í síðasta mánuði í eldis-
stöð Arctic Fish, sem er sérlega
umhverfisvæn og ein sú tækni-
væddasta á landinu.
kynningarblað 3FÖSTUDAGUR 30. apríl 2021 LÍFR ÆN VOTTUN