Fréttablaðið - 30.04.2021, Blaðsíða 1
20ÁRA— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —8 4 . T Ö L U B L A Ð 2 1 . Á R G A N G U R F Ö S T U D A G U R 3 0 . A P R Í L 2 0 2 1
hekla.is/skodasalur · Sími 590 5000 · Laugavegur 170 · HEKLA
ENYAQ iV
Er mættur!
RAFMAGNAÐUR
412 til 536 km drægni skv. WLTPVerð frá 5.790.000 kr.
KOMDU OG
SKOÐAÐU
REYK JAVÍK Bygging smáhýsanna
í Gufunesi reynist afar dýr fram-
kvæmd. Kostnaður við hvert hús er
nú metinn 33,4 milljónir króna.
Fulltrúar Sjálfstæðisf lokksins í
Reykjavík gagnrýndu þetta harka-
lega á fundi innkaupa- og fram-
kvæmdaráðs í gær og hversu langan
tíma hefur tekið að fá svör. Fyrir-
spurnin var send í október.
„Þessi kostnaður er galinn. Það er
mjög miður að peningarnir séu ekki
nýttir betur í þetta úrræði því þetta
málefni er gott,“ segir Björn Gísla-
son, sem situr í ráðinu ásamt Ragn-
hildi Öldu Vilhjálmsdóttur.
Hýsin eru 30 fermetrar að stærð
og fermetraverðið því rúmlega 1,1
milljón króna. Til samanburðar
er meðalsöluverð íbúða í fjölbýli í
Reykjavík 513 þúsund krónur og
sérbýlis 423 þúsund samkvæmt
Þjóðskrá.
Innkauparáð samþykkti tilboð
Yabimo í byggingu 20 hýsa í maí
árið 2019, upp á rúmlega 189 millj-
ónir króna og tæplega 60 prósent
af 320 milljóna króna kostnaðar-
áætlun. Hýsin voru smíðuð í Kraká í
Póllandi og flutt samsett til Íslands.
Sú vinna hefur nokkurn veginn
staðist áætlun, en aukakostnaður
er meðal annars vegna jarðvinnu
og lóðafrágangs.
Björn segir að ef öðru tilboði
hefði verið tekið gæti fermetra-
verðið slagað í 2 milljónir króna.
Í svari umhverfis- og skipulags-
sviðs til fulltrúa Sjálfstæðisflokks-
ins kemur fram að kostnaður við
jarð- og lagnavinnu sé 11,8 milljónir
á hvert hýsi og lóða- og umhverfis-
frágang 5,7 milljónir. Samanlagt um
helmingur kostnaðar við hvert hýsi.
Þessi kostnaður er í bréfinu
sagður tilkominn vegna lækkunar
á hæðarkvóta Gufunesvegar þegar
framkvæmdin var hafin. „Þetta
gerði að verkum að endurskoða
þurfti framkvæmdina og hafði
þessi breyting í för með sér kostn-
aðarauka við að koma smáhýsunum
fyrir, meðal annars vegna aðgengis,“
segir í bréfinu. Var lóðin þá stækkuð
til suðurs.
Á fund innkauparáðs í gær mætti
fulltrúi Innri endurskoðunar vegna
hálfs árs dráttar á svörum. Fulltrúar
meirihlutans skýrðu tafirnar með
álagi vegna faraldursins og að upp-
setningu hýsanna fimm hefði ekki
verið lokið fyrr en í desember. Björn
segir almennu regluna að fyrir-
spurnum eigi að svara innan fjög-
urra vikna og lengri tími en það sé
liðinn síðan í desember. – khg
Fermetri smáhýsa yfir milljón
Kostnaður við hvert þrjátíu fermetra smáhýsi í Gufunesi er rúmlega 33 milljónir króna. Borgarfulltrúar
Sjálfstæðisflokksins máttu bíða í hálft ár eftir svörum umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar.
Það er mjög miður
að peningarnir séu
ekki nýttir betur í þetta
úrræði því þetta málefni er
gott.
Björn Gíslason
borgarfulltrúi,
Sjálfstæðis-
flokksins
„Við vildum búa til stað þar sem hægt er að koma til að njóta,“ segir Dag ný Péturs dóttir, fram kvæmda stjóri Sky Lagoon, sem opnar nýtt bað lón á Kárs nesi í dag. Í dýrari aðganginum að
lóninu fá gestir að gang að sér klefa til að klæða sig og sér sturtu. Á vef Fréttablaðsins, frettabladid.is, eru fjölmargar myndir frá nýja lóninu og ítarleg frétt um staðinn. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
HEILBRIGÐISMÁL „Ég spyr mig að því
hvort karlmenn í áhættuhópi fengju
sömu meðferð í kerfinu,“ segir Lilja
Guðmundsdóttir, ein kvennanna
sem bíða niðurstaðna úr skimun
fyrir leghálskrabbameini.
Niðurstöður úr töku á legháls-
sýnum berast konum seint og illa
og upplýsingum er ábótavant.
„Það tekur enginn ábyrgð og heilsu
okkar er stefnt í hættu á meðan,“
segir Lilja.
Rætt er við Lilju og f leiri konur í
svipaðri stöðu í Fréttablaðinu í dag.
Á frettabladid.is er ítarlegri frásögn
að finna. – lb / sjá síðu 10
Leghálsskimun
er enn í ólestri
Lilja
Guðmundsdóttir