Fréttablaðið - 30.04.2021, Blaðsíða 27
Bakaríið Brauð & Co hefur
ákveðið að flytja inn lífrænt
vottað hveiti til endursölu.
Þannig fá viðskiptavinir
tækifæri til að baka úr sama
gæðahveiti og er notað í vörur
bakarísins.
Brauð & Co varð fimm ára í mars
en frá því að bakaríið var opnað
hefur það ávallt notað lífrænt
ræktað hveiti frá Ítalíu. Nú stendur
til að f lytja inn til landsins hágæða
hveiti í neytendaumbúðum, sama
hveiti og Brauð & Co notar í vörur
sínar. Sigurður Máni Helguson,
framkvæmdastjóri Brauðs & Co,
segir að hveitið hafi nú þegar
fengið Tún-stimpilinn, íslenska
vottun um lífræna framleiðslu.
„Við höfum verið í ferli með
stofnuninni Tún um að fá þennan
íslenska stimpil á erlenda vöru.
Vottunin er komin í gegn, en
hveitið er f lutt inn frá Ítalíu og
er líka vottað lífrænt þar. Núna
erum við bara að klára hönnunina
á pakkningunum og erum að
undirbúa innflutning. Ég býst við
að hveitið verði fáanlegt um mitt
sumar,“ segir Sigurður Máni.
Hann segir að ástæða þess að
Brauð & Co hafi ekki farið út í að
fá lífræna vottun á sínar vörur
sé sú að þau noti íslenskt smjör
í baksturinn en hér á landi er
ekki framleitt lífrænt smjör. Öll
brauðin frá bakaríinu eru þó alveg
lífræn þar sem þau innihalda
ekkert smjör.
„Grunnurinn í þeim er bara
hveiti, vatn og salt. Við búum til
súrinn úr vatni og hveiti. Þegar
við fórum í ferlið með Túni, að fá
vottun á hveitið, þá fannst þeim
galið að við værum ekki að sækja
um vottun fyrir brauðin okkar.
Þannig að við ætlum núna með
haustinu að sækja um vottun fyrir
nokkrar vörutegundir hjá okkur,“
segir Sigurður Máni.
Hveiti frá Norður-Ítalíu
Hveitið sem verður flutt inn kemur
frá myllu á Norður-Ítalíu sem
heitir Molino Sima. Hveitið er úr
undirflokki sem kallast Sima Bio.
„Þetta er tvenns konar hveiti.
Annað heitir Manitoba og er
próteinríkt sterkt hveiti. Það
er yfirleitt notað í brauðmeti.
Brauð, beyglur og annað slíkt. Hin
tegundin er Tipo 00 sem er mýkra
hveiti. Ítalir nota það í allt, pitsu-
gerð, eftirrétti og kökur. Það má
nota þetta hveiti í brauðbakstur
líka en það er betra að nota
sterkara hveiti í brauð,“ útskýrir
Sigurður Máni.
„Við ætlum að byrja á þessum
tveimur tegundum. Við erum líka
að skoða möguleikana á að flytja
inn spelt, en við ætlum að sjá fyrst
hverjar undirtektirnar verða á
hveitinu.“
Sigurður Máni segist spenntur
fyrir að leyfa viðskiptavinunum að
prófa þessar hveititegundir.
„Það komst svolítið í tísku í
COVID að baka heima. Sérstak-
lega súrdeigsbakstur. Við fengum
fjölda fyrirspurna um hvaða hveiti
við værum að nota. Við sáum þess
vegna tækifæri í að flytja þetta
hveiti inn. Við notum þetta góða
hveiti og núna getum við gefið
viðskiptavinunum tækifæri til
að nota það líka. Samhliða því
getum við miðlað okkar þekkingu
til viðskiptavinanna og leiðbeint
þeim um hvernig best er að nota
vöruna,“ segir hann.
„Með þessu móti fáum við líka
annars konar tengingu við við-
skiptavininn.“
Flytja inn lífrænt vottað hveiti
Sigðurður Máni stefnir að því að flytja inn lífrænt vottað hveiti í neytendaumbúðum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Við notum þetta
góða hveiti og
núna getum við gefið
viðskiptavinum tæki-
færi til að nota það líka.
FEGURÐIN FELST Í
EINFALDLEIKANUM
FÖSTUDAGUR 30. apríl 2021 LÍFR ÆN VOTTUN kynningarblað 7