Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2013, Blaðsíða 3
3
Velkomin á Hinsegin daga
í Reykjavík
Welcome to Reykjavík Pride
Á hverju sumri höldum við Hinsegin daga í Reykjavík og
tileinkum hátíðina hinsegin fólki á Íslandi, baráttu þess,
frumkvæði og gleði. Dagana 6.–11. ágúst bjóðum við upp á
fjölbreytta dagskrá sem nær hámarki með göngu um miðborg
Reykjavíkur 10. ágúst þar sem þúsundir safnast saman og
baða sig í gleðinni.
Á Hinsegin dögum sameinast lesbíur, hommar,
tvíkynhneigðir og trans-fólk ásamt fjölskyldum sínum og
vinum og staðfesta þar stöðu sína sem stoltir og virkir
þátttakendur í íslensku samfélagi. Hátíðin er tækifæri
okkar allra til að ræða stöðu hinsegin fólks og minna á að
mannréttindasigrar liðinna ára unnust með sameiginlegu
átaki margra. Að sama skapi minna Hinsegin dagar á ábyrgð
Íslands, þá staðreynd að Íslendingum er skylt að tala máli
mannréttinda og verja þá sem sæta ofsóknum fyrir kynhneigð
sína eða kynvitund hvar sem er í heiminum.
Hinsegin dagar eru eitt af leiðandi öflum menningarlífsins
hér á landi, lifandi dæmi um það hvernig beisla má orkuna
sem býr í grasrótinni á jákvæðan hátt og skapa fjölsótta
menningarhátíð. En ef ekki væri fyrir framlag fjölda
sjálfboðaliða færi velgengni hátíðarinnar fyrir lítið. Við þökkum
öllum þeim sem leggja hátíðinni lið með óeigingjörnu starfi
sínu og bjóðum gesti hjartanlega velkomna til fimmtándu
hátíðar Hinsegin daga í Reykjavík.
Each summer we celebrate Reykjavík Pride, remembering
the struggle, dedication and joy that fueled the Icelandic
LGBT people’s battle for legal rights, equality and respect.
This largest small Pride in the world takes place August
6–11 in downtown Reykjavík with a variety of rainbow-
colored events including concerts, dances and exhibitions,
climaxing with the official Pride Parade on 10 August.
Reykjavík Pride is a national event where lesbian,
gay, bisexual and transgender people join their families
and friends in solidarity as proud and active members
of Icelandic society. It is a yearly reminder for Icelandic
authorities to stay committed to achieving global equality
for LGBT people and to speak on behalf of those who are
silenced for fear of oppression and violence for their sexual
orientation or gender identity.
Pride is one of the most vibrant and popular events in
Reykjavík’s cultural calendar, organized and implemented
through the dedication of hundreds of volunteers
every summer. As we thank them for their invaluable
contributions, we also welcome our Icelandic and foreign
guests to the fifteenth annual Reykjavík Pride. Thank you
for joining us. We hope you have a wonderful time.
The board and committee of Reykjavík Pride.