Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2013, Blaðsíða 18

Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2013, Blaðsíða 18
18 „Ég var alin upp í tveimur heimum, íslenskum og dönskum. Afi minn fór ungur til náms í Kaupmannahöfn og gekk þar að eiga danska stúlku. Þar fæddist faðir minn og ólst upp í Kaupmannahöfn til sextán ára aldurs. Þá fluttist fjölskyldan til Íslands því afi átti jörðina á Úlfljótsvatni. Þar hittust foreldrar mínir í fyrsta sinn því að ráðsmaður fjölskyldunnar á býlinu átti unga dóttur. Með þeim föður mínum tókust síðar ástir og fyrstu hjúskaparárin bjuggu þau á Úlfljótsvatni. Ég fæddist á jörð ættarinnar árið 1936. Þegar ég var fimm ára fluttumst við yfir Sogið að Brúarlandi því að jörðin okkar hafði verið tekin undir Sogsvirkjun, og þar starfaði pabbi. Ég á góðar minningar um bernsku mína, við krakkarnir bjuggum við mikið frelsi og mikla ást á heimili sem var miklu heldur danskt en íslenskt. Þar var aldrei vitnað í Íslendingasögurnar en þeim mun oftar í það sem stóð í Kaupmannahafnarblöðunum. Eins og lög þeirrar tíðar gerðu ráð fyrir byrjaði ég tíu ára í skóla, en hafði þá auðvitað löngu lært að lesa, skrifa og reikna. Þetta var afskaplega akademískt nám ef svo má segja, hálfur mánuður í skóla og hálfur mánuður heima. En ég var aldrei nema þrjá vetur í skólanum, lauk aldrei fullnaðarprófi svo kannski eru öll mín síðari próf ógild ef út í það er farið.“ Þrettán ára hélt Nanna norður í Reykjaskóla í Hrútafirði og þar lauk hún bæði gagnfræðaprófi og landsprófi miðskóla. Þar voru nemendurnir á ólíkum aldri, þau elstu komin undir tvítugt, „nokkurs konar bjarg okkar yngri, traust bjarg“. Í fóstbræðalag á Laugarvatni „Ekki var nú kynhneigðin að trufla mig þarna. Ég velti henni aldrei fyrir mér enda var þetta orð ekki til árið 1950. Aldrei varð ég ástfangin á Reykjum og fannst það ekkert skrýtið, ég var með allan hugann við að mennta mig. Hinu get ég ekki neitað að strákarnir urðu sumir hverjir skotnir í mér, en samt hef ég aldrei þurft að verjast ágangi karlmanna, strákar hafa alltaf verið ljúfir við mig. Einn af strákunum varð reyndar yfir sig ástfanginn af mér, en það var saklaust samband sem þróaðist seinna í vináttu og virðingu fyrir æskuástinni. Aldrei heyrði ég minnst á það á Reykjum að til væru hommar, hvað þá lesbíur, en ég man að eitt sinn heyrði ég orðið „tvítóla“ út undan mér þegar einhver var að gaspra um frávik sköpunarverksins. Bíddu nú aldeilis við! Hvað er það?“ Svo lá leiðin í Kennaraskólann því að auraráðin leyfðu ekki menntaskólanám og Nönnu þótti skynsamlegast að verða sér úti um kennaramenntun til fá að sömu laun og strákarnir. Því næst hélt hún í Íþróttakennaraskólann á Laugarvatni því lengi hafði áhuginn beinst í þá átt, „og þetta varð kjarninn í menntun minni, þess vegna er ég vel varin gegn alls konar heilsuáróðri og veit að íþróttir eru ekki til að slá annan út af laginu heldur til að efla eigin líkama og heilsu.“ Þá var Nanna 21 árs. „Við vorum tólf nemendur í Íþrótta- kennaraskólanum og í þeim hópi var 18 ára stúlka úr Reykjavík, Jónína Tryggvadóttir. Við drógumst hvor að annarri og um vorið vorum við óaðskiljanlegar vinkonur – án þess þó að vita hvað var að gerast. Eitt kvöldið þetta vor fann Unna eins og Jónína var alltaf kölluð upp á því að sverjast við mig í „fóstbræðralag“. Hún dró upp lítinn vasahníf og svo var rist á handlegg og blandað blóði með skólasystur okkar að vitundarvotti. Nokkrum vikum síðar héldum við svo á Þingvelli þar sem landsmót ungmennafélaganna var haldið. Við Unna vorum illa búnar, án svefnpoka og bara með fáeina túkalla í vasanum, en fengum inni í tjaldi hjá skólasystur okkar. Á þessum árum hafði ég varla smakkað vín en fyrsta kvöldið á Þingvöllum hittum við Unna stráka, syni betri borgara úr Reykjavík, sem færðu okkur útlendan bjór. Við smökkuðum á og það losaði um einhverjar hömlur. Alkohólið hefur auðvitað sína galla en hvar væri ástarlífið án þess! Því þessa nótt kysstumst við Unna í fyrsta sinn – í tjaldi á Þingvöllum.“ What are we doing, my love? „Upp frá þessu vorum við óaðskiljanlegar og þegar við komum til Reykjavíkur og út á vinnumarkaðinn var mér boðið að búa með Unnu heima hjá foreldrum hennar. Svo kom að því að við létum kossana ekki nægja og gengum lengra. Þá man ég að hún leit á mig eina nóttina og sagði: „What are we doing, my love?“ Hún var betur upp alin en ég og sér meðvitaðri um kvaðir samfélagsins, öll óskráðu lögin, en ég kærði mig kollótta. Samt töluðum við aldrei um sektarkenndina, og eftir á að hyggja fann ég ekki neina sektarkennd innra með mér. Fyrir mér er það að skammast sín að brjóta gegn því sem manni er helgast og þar var ég með hreina samvisku. En um tilfinningarnar töluðum við ekki, það var þegjandi samkomulag að þetta væri bara okkar á milli. Auðvitað gerðum við okkur grein fyrir því að við höfðum farið yfir óleyfileg landamörk en litum á ástarsambandið sem okkar einkamál. Þetta var rétt fyrir 1960 og við höfðum ekkert til að miða okkur við – nema fordóma! Það auðveldaði okkur Unnu lífið að fjölskylda hennar studdi vináttu okkar. Valgerður móðir hennar tók mér eins og öðrum tengdabörnum sínum og seinna meir sá ég að hún skildi fullkomlega hvernig í málunum lá. En við Valgerður ræddum það aldrei einu orði hvers eðlis sambandið væri. Samt var hún alltaf nálæg til að styðja okkur og vernda.“ Nanna og Jónína voru kappsfullar og stefndu hærra. Þær dreymdi um að fara utan, læra íþróttafræði og setja upp heilsuræktarstöð, löngu áður en slíkar stofnanir urðu hluti af daglegu lífi Íslendinga, og heilan vetur dvöldu þær á Englandi við tungumálanám. Þegar heim kom kunni vinkona þeirra að segja þeim
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.