Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2013, Blaðsíða 14
14
Þegar gleðiganga Hinsegin daga kemur á áfangastað laugardaginn 10. ágúst
hefst mikil útiskemmtun í Lækjargötu við Arnarhól. Á stóra sviðinu undir
hólnum troða upp íslenskir skemmtikraftar, nokkrar íslenskar hljómsveitir
sem slegið hafa í gegn á liðnum misserum, ýmsir vinsælir söngvarar og að
sjálfsögðu gleymum við ekki börnum okkar sem líka þurfa sitt hátíðarkrydd í
tilveruna. Útitónleikarnar við Arnarhól hafa á liðnum árum verið fjölsóttasta
útiskemmtun í Reykjavík. Þar hafa allt að 90 þúsund gestir skipað sér á
hólinn þennan dag og efst trónir Ingólfur að vanda, elstur Reykvíkinga, en
lætur sig þó ekki vanta þegar hinsegin fjör er á ferðinni. Við bjóðum okkar
íslensku þjóð og erlenda gesti velkomin á Arnarhól laugardaginn 10. ágúst að
lokinni gleðigöngunni um miðborgina. Tónleikarnir hefjast kl. 16.
Outdoor Concert in City Center
Once the Pride Parade has run its course on Saturday 10 August, an outdoor
show will take place at Arnarhóll in Lækjargata. Performers include well-
known Icelandic singers, bands and entertainers. The Arnarhóll concert has in
recent years been the biggest outdoor event in Reykjavík, with up to 90,000
guests. We invite both Icelandic and foreign Pride participants to join us for an
afternoon of song and spectacle. The concert begins at 4 p.m.
Útihátíð við
10. ágúst
arnarhól
14