Hinsegin dagar í Reykjavík - Aug 2017, Page 37
Fred Hersch:
Hver eru stærstu verkefnin þessa stundina?
Ég er með nokkuð mörg járn í eldinum
þessa stundina. Það helsta er útgáfa áttundu
breiðskífu minnar Open book sem kemur
út 8. september. Nokkrum dögum síðar
kemur út sjálfsævisaga mín, Good things
happen slowly: A life in and out of Jazz. Bæði
verkefnin eru nokkuð persónuleg og fjalla
um uppvöxt minn sem djasslistamanns, sem
samkynhneigðs manns, hvernig það var að
búa í New York seint á áttunda áratugnum,
áskoranir sem ég hef glímt við vegna heilsu
minnar og baráttu mína við fíkn. Ég tel
bókina vera ærlegt uppgjör við líf mitt fram
til dagsins í dag.
Hvernig var ferlið að skrifa ævisöguna?
Það er frekar flókið að skrifa ævisögu um
sjálfan sig og lýsa ýmsum viðburðum
úr fortíðinni í smáatriðum sem enginn
þekkir til nema ég. Ég var sem betur fer
með samstarfsmann mér til aðstoðar við
uppsetningu bókarinnar og færan ritstjóra
sem tryggði að framvinda hennar yrði
áreynslulaus og læsileg.
Það getur verið sársaukafullt að
endurupplifa vissar minningar úr fortíðinni,
líkt og fyrstu ár alnæmisfaraldursins í New
York þar sem svo margir létu lífið, en ég
hef talað um þá lífsreynslu í mörg ár á
opinberum vettvangi og reynt að ræða
hispurslaust um hvernig það var í raun og
hinsegin
aktívismi
37