Fréttablaðið - 19.05.2021, Síða 4

Fréttablaðið - 19.05.2021, Síða 4
Það sem þátttakendur uppskera: • Aukið sjálfstraust, sterkari sjálfsmynd og trú á eigin getu • Hugrekki til að rétta upp hönd og taka þátt í umræðum • Leiðir til að kynnast nýju fólki, bæta samskipti og styrkja sambönd • Þor til að koma hugmyndum sínum á framfæri og hafa áhrif • Betra skipulag og skýrari markmið • Jákvætt viðhorf og kvíða/streitustjórnun Námskeið hefjast: 9 til 12 ára Leiðtogabúðir 21. júní 8.45-17.00 4 dagar í röð 9 til 12 ára Leiðtogabúðir 9. ágúst 8.45-17.00 4 dagar í röð Uppselt- 10 til 12 ára 14. júní 9.00-13.00 átta dagar í röð 10 til 12 ára 21. júní 9.00-13.00 átta dagar í röð 10 til 12 ára 4. ágúst 9.00-13.00 átta dagar í röð 13 til 15 ára 14. júní 13.30-17.00 átta dagar í röð 13 til 15 ára 4. ágúst 13.30-17.00 átta dagar í röð 16 til 19 ára 4. ágúst 18.00-22.00 tvisvar í viku, 9 skipti 20 til 25 ára 27. maí 18.00-22.00 tvisvar í viku, 9 skipti 20 til 25 ára 3. ágúst 18.00-22.00 tvisvar í viku, 9 skipti Sumarnámskeið fyrir ungt fólk Skráning á dale.is eða 555 7080 Ókeypis kynningartími dale.is/ungtfolk Copyright © 2021 Dale Carnegie & Associates, Inc. All rights reserved. Youth_Ad_050321 Koltvísýringur verður fluttur til landsins frá Danmörku með sérhönnuðum skipum sem ganga fyrir vistvænu elds- neyti til förgunar í móttöku- og förgunarmiðstöðinni Coda Terminal. Hvert skip mun flytja um 12–24 þúsund tonn af koltvísýringi í vökvaformi. benediktboas@frettabladid.is LOFTSLAGSMÁL „Það skiptir okkur miklu máli að fá með okkur í þetta verkefni aðila sem sýna í verki að þeir ætla að taka þátt í að berjast gegn loftslagsvánni,“ segir Edda Sif Pind Aradóttir, framkvæmdastýra Carbfix,. Móttöku- og förgunarmiðstöðin Coda Terminal, sem verður sú fyrsta sinnar tegundar á heimsvísu þar sem Carbfix-tækninni verður beitt til steinrenningar á koltví- sýringi, hefur samið við danska skipafélagið Dan-Unity CO2 um flutning á koltvísýringi til förgunar í stöðinni í Straumsvík. Skipafélagið sem hefur áratuga reynslu í f lutningi á ýmsum gas- tegundum á sjó mun f lytja koltví- sýring á sérhönnuðum skipum sem ganga fyrir vistvænu eldsneyti. Kol- efnissporið sem hlýst af f lutningun- um verður aðeins um 3 til 6 prósent af því sem farga á og minnkar síðan. Gert er ráð fyrir að fyrstu skipin byrji að sigla hingað til lands frá Norður-Evrópu árið 2025. Undirbúningsfasi er hafinn. Gert er ráð fyrir að hægt verði að farga allt að þremur milljónum tonna árlega í Straumsvík árið 2030. Eins og Fréttablaðið greindi frá í apríl mun Coda Terminal skapa 600 bein og afleidd störf. Stöðin verður sú fyrsta sinnar tegundar á heimsvísu. Dan-Unity CO2 er fyrsta skipa- félagið í heiminum sem einsetur sér að tengja saman föngunar- og förg- unarstaði með stórtækum flutningi á koltvísýringi. Félagið varð til við samruna Evergas og Ultragas, tveggja reynslumestu skipafélaga í Danmörku, sem bæði eru leiðandi á heimsvísu þegar kemur að flutningi á jarðgasi og jarðgasvökvum. Hvert skip mun f lytja um 12 til 24 þúsund tonn af koltvísýringi í vökvaformi en áætlaður kostnaður við flutning og förgun í Straumsvík er 30 til 65 evrur á hvert tonn. Til samanburðar kostar um 100 evrur að flytja og farga hverju tonni í sam- bærilegu verkefni í Noregi sem kall- ast Northern Lights. „Við hjá Dan-Unity CO2 teljum samstarf okkar við Carbfix vera stórkostlegt tækifæri til að lækka magn gróðurhúsalofttegunda í and- rúmsloftinu,“ segir Steffen Jacobsen, forstjóri Evergas. „Sem leiðtogi á sviði alþjóðlegra sjóf lutninga hefur Danmörk ein- stakt tækifæri til að gegna leiðtoga- hlutverki sem byggir á reynslu og nýrri tækni. Danskar loftslagslausn- ir eru nú þegar þekktar á heimsvísu, má þar nefna græna orkugjafa sem knýja munu f lutningaskip. Því er ljóst að saman getum við styrkt stöðu okkar.“ Edda Sif er ánægð með samning- inn enda félagið rótgróið fyrirtæki með áratuga reynslu í gasflutningi. „Danmörk er að leggja mikla áherslu á loftslagsmálin og vonandi er þetta aðeins byrjunin á samstarfi Íslands og Danmerkur í baráttunni gegn loftslagsvánni,“ segir hún. Flutningur á koltvísýringi til landsins verður að sögn Eddu bæði umhverfisvænni og arðbærari sem sé mikið fagnaðarefni. n Samið um umhverfisvæna og ódýra förgun á koltvísýringi frá Danmörku Við hjá Dan-Unity CO2 teljum samstarf okkar við Carbfix vera stórkostlegt tækifæri til að lækka magn gróður- húsalofttegunda í andrúmsloftinu. Steffen Jacobsen, forstjóri Evergas. Vonandi er þetta aðeins byrjunin á samstarfi Íslands og Danmerkur í baráttu gegn loftslagsvánni. Edda Sif Pind Aradóttir, framkvæmda- stýra Carbfix. Gert er ráð fyrir að hægt verði að farga allt að þremur milljónum tonna ár- lega í móttöku- og förgunarmiðstöðin Coda Terminal árið 2030. MYND/CARBFIX arib@frettabladid.is MENNING Málverk sem listamaður- inn Max Denison Pender fargaði í eldgosinu í Geldingadölum mun seljast fyrir minnst 120 þúsund pund, eða rúmar 20 milljónir króna. Pender fór að eldgosinu í apríl síðastliðnum og málaði þar sjálfs- mynd og notaði svo dróna til að henda verkinu í gýginn. Stafrænt eintak af verkinu er nú á uppboði sem lýkur eftir þrjár vikur, hæsta boðið er nú 120 þúsund pund. Tilgangurinn er að vekja athygli japanska milljarðamæringsins Yus aku Maesawa sem hyggst bjóða átta manns með sér í ferð í kringum tunglið í ferð SpaceX árið 2023. Maesawa hyggst taka ákvörðun fyrir lok mánaðarins um hverjir fara með honum. Pender er bjartsýnn á að gjörn- ingurinn veki nógu mikla athygli, ætlar hann að mála nokkur verk í ferðinni ef hann kemst með. Listaverki með tunglryki yrði ekki kastað í eldgos Listamaðurinn með verkið áður en því var hent í eldgosið. „Sá sem kaupir verkið mun eiga inni verk sem ég mun mála þegar ég flýg í kringum tunglið. Þó að ég komist ekki með Maesawa þá mun ég fara til tunglsins einn daginn,“ fullyrðir Pender bjartsýnn. Það er ekki regla hjá Pender að eyða eintökum af verkum sínum. „Ef ég verð svo heppinn að fá að stíga fæti á tunglið þá ætla ég að blanda tunglryki í málninguna, því verki ætla ég alls ekki að henda í eld- fjall.“ n benediktboas@frettabladid.is FJARSKIPTI Ísland heldur topp- sæti sem það Evrópuland þar sem hæst hlutfall heimila nýtir ljós- leiðaratengingu. Þetta kemur fram í skýrslu Fibre to the Home Council Europe. Í september 2020 nýttu 70,7 prósent heimila hér ljósleiðarateng- ingu. „Þessi árangur Íslands skýrist af metnaðarfullri uppbyggingu ljós- leiðara undanfarin ár,“ segir Erling F. Guðmundsson, framkvæmda- stjóri Gagnaveitu Reykjavíkur, í til- kynningu. n Á toppnum í ljósleiðaramálum Stefnan er að Ísland verði að fullu ljósleiðaravætt árið 2025. benediktboas@frettabladid.is ALÞINGI Bjarni Benediktsson, fjár- mála- og efnahagsráðherra, svaraði fyrirspurn frá Ólafi Ísleifssyni, þing- manni Miðflokksins, um raunveru- lega eigendur Arion banka á Alþingi í gær. Svar ráðherra var að hægt væri að sjá eigendur bankans á heima- síðu hans. Þar sé listi yfir aðila sem eiga að minnsta kosti eitt prósent hlutafjár og einstaklinga sem eiga 10 prósent eða meira, hvort sem er beint eða óbeint. n Sagði eigendur á heimasíðu Arion 4 Fréttir 19. maí 2021 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.