Fréttablaðið - 19.05.2021, Side 12
hjorvaro@frettabladid.is
KÖRFUBOLTI Einar Árni Jóhannsson
hefur samið við körfuboltadeild
Hattar á Egilsstöðum og mun Einar
stýra karlaliði félagsins ásamt Við-
ari Erni Hafsteinssyni. Höttur féll
úr úrvalsdeildinni á dögunum.
Einar Árni kemur til Hattar eftir
að hafa stýrt karlaliði Njarðvíkur
frá 2018, en auk þess að vera í þjálf-
arateymi karlaliðs Hattar verður
hann yfirþjálfari yngri f lokka.
Þessi reynslumikli þjálfari hóf
feril sinn sem meistaraflokksþjálf-
ari þegar hann þjálfaði kvennalið
Njarðvíkur tímabilið 1996 til 1997
og 2001 til 2003.
Þá hélt hann um stjórnartaum-
ana hjá karlaliði Njarðvíkur frá
árinu 2004 til 2007 og svo aftur árið
2010 til 2014. Undir stjórn Einars
varð Njarðvík Íslandsmeistari árið
2006.
Hann hefur einnig verið við
stjórnvölinn hjá karlaliðum Breiða-
bliks og Þórs í Þorlákshöfn. n
Einar Árni söðlar
um til Egilsstaða
Einar Árni hefur undanfarin ár stýrt
uppeldisfélagi sínu í Njarðvík.
hjorvaro@frettabladid.is
ENSKI BOLTINN Talið er að Frank
Lampard sé efstur á lista forráða-
manna enska knattspyrnufélagsins
Crystal Palace til þess að taka við
stjórnartaumunum hjá karlaliði
félagsins.
Tilkynnt var í gær að Roy Hodg-
son muni láta af störfum sem
knattspyrnustjóri liðsins þegar
yfirstandandi leiktíð lýkur í sumar.
Lampard var fyrr á þessu tímabili
látinn taka pokann sinn hjá Chel-
sea, en þessi 42 ára Englendingur
hefur einnig stýrt Derby County á
stjóraferli sínum.
Crystal Palace siglir lygnan sjó
í ensku úrvalsdeildinni en liðið
situr í 13. sæti deildarinnar þegar
tveimur umferðum er ólokið. n
Lampard orðaður
við Crystal Palace
hjorvaro@frettabladid.is
FÓTBOLTI Íslenska kvennalands-
liðið í knattspyrnu mætir Írlandi í
tveimur vináttulandsleikjum í júní
næstkomandi og fara báðir leikirnir
fram á Laugardalsvelli.
Fyrri leikurinn verður spilaður
11. júní og sá síðari 15. júní.
Leikirnir við Íra verða hluti af
lokaundirbúningi íslenska liðsins
fyrir fyrstu leiki í undankeppni
HM 2023.
Ísland er þar í riðli með Hol-
landi, Tékklandi, Hvíta-Rússlandi
og Kýpur, en stelpurnar mæta Hol-
landi í fyrsta leik sínum í undan-
keppninni 21. september á Laugar-
dalsvelli. n
Ísland spilar tvo
leiki við Íra í júní
Spjótkastarinn Dagbjartur
Daði Jónsson átti lengsta kast
NCAA-tímabilsins í spjótkasti
á dögunum og tók fram úr
Sindra Hrafni Guðmunds-
syni með því. Samkeppnin og
samvinnan drífur þá áfram í
einum besta spjótkastsskóla
Bandaríkjanna.
kristinnpall@frettabladid.is
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR Í aðdraganda
NCAA-meistaramótsins í frjálsum
íþróttum eru tveir Íslendingar eftir
á lista í spjótkasti. Er þetta í fyrsta
sinn sem tveir Íslendingar leiða
NCAA í sömu grein og geta Íslend-
ingar því bundið vonir við að eiga
einstakling á verðlaunapalli í Ore-
gon í næsta mánuði þegar meistara-
mótið utanhúss í bandarískum
háskólaíþróttum fer fram.
Dagbjartur Daði Jónsson sem
keppir fyrir hönd ÍR á Íslandi og
er á sínu fyrsta ári í Mississippi
State háskólanum er efstur með
78,66 metra kast, en Sindri Hrafn
Guðmundsson sem keppir fyrir
hönd Breiðabliks er þar rétt á eftir
með 77,77 metra. Fyrst þurfa þeir
að taka þátt í úrtökumóti sem fer
fram í næstu viku, en í aðdraganda
mótsins skiptu þeir Dagbjartur og
Sindri milli sín efstu tveimur sæt-
unum í svæðismóti í SEC-deildinni
fyrir helgi, þar sem Dagbjartur átti
lengsta kast ársins í NCAA.
„Árangurinn á þessu móti var
virkilega mikil hvatning og gefur
manni sjálfstraust fyrir meistara-
mótið í Eugene. Það skemmdi ekki
fyrir að hrifsa efsta sætið af Sindra
þarna undir lokin,“ segir Dagbjartur
glottandi, aðspurður hvernig það
hafi verið að berjast við samlanda
um sigur á móti á erlendri grundu
og hafa betur.
Dagbjartur er á fyrsta ári við
Mississippi State háskólann þar sem
hann er við nám í leiklist. Skólinn
hefur getið sér gott orð fyrir afreks-
fólk í spjótkasti undanfarin ár en
ríkjandi heimsmeistari í greininni,
Anderson Peters, frá Grenada, æfði
og keppti fyrir skólann fyrir nokkr-
um árum. Fyrir vikið var heillandi
að keppa og æfa við bestu aðstæður.
„Það er mikill metnaður fyrir
íþróttum hérna í Mississippi State,
sérstaklega í spjótkasti. Skólinn er
oft kallaður JavU (Javelin Univer-
sity). Á síðasta meistaramóti tóku
þeir fyrstu þrjú sætin á mótinu.
Það gæti alveg endurtekið sig í ár.
Við Sindri erum sigurstranglegir í
aðdraganda mótsins og Tyriq sem
æfir með okkur er líka líklegur til að
berjast um verðlaunasæti.“
Dagbjartur hóf nám í janúar
og má segja að hann hafi hitt á
rétta tímasetningu, en fremsta
frjálsíþróttafólk landsins missti
æfingaaðstöðuna í Laugardalshöll
í vor. Fyrir vikið nýtur hann góðs
af æfingaaðstöðu í fremstu röð og
betri veðurskilyrðum til að æfa
spjótkast.
„Allar aðstæður hérna eru til
fyrirmyndar, sem er frábært. Þetta
tækifæri kom á hárréttum tíma-
punkti miðað við það sem gekk á
heima á Íslandi þegar æfingaað-
stöðunni var lokað. Námið er í raun
rétt að byrja en byrjunin hefur verið
framar vonum,“ segir Dagbjartur og
heldur áfram: „Veðurskilyrðin eru
líka betri til æfinga í spjótkasti, að
geta kastað úti og séð spjótið fljúga
gerir heilmikið fyrir mann. Ég sé
strax mun á því hvað ég er að kasta
betur og er kominn í betra form á
stuttum tíma.“
Samkeppnin við Sindra segir
Dagbjartur að sé bæði hvetjandi og
gefandi á sama tíma.
„Þetta hefur verið frábært að
vinna saman hérna alla daga.
Við keyrum hvor annan áfram á
æfingum og í keppnum og reynum
að draga það besta fram hvor hjá
öðrum. Við erum að eiga mjög
svipuð köst þessa dagana og það er
um leið samkeppni okkar á milli.“
Samhliða spjótkastinu gefur Dag-
bjartur út tónlist og er hægt að nálg-
ast efni eftir hann á Spotify.
„Ég hef samið tónlist í nokkur
ár samhliða íþróttunum. Þetta er
skemmtilegt þegar hugurinn þarf
að leita að öðru en spjótinu. Finnst
það mjög mikilvægt að hafa eitt-
hvað annað fyrir stafni sem hægt er
að gleyma sér í.“ Aðspurður segist
hann aðallega semja á íslensku en
fyrsta lagið á ensku kom út á dög-
unum og hefur fengið góðar mót-
tökur.
„Lögin hafa aðallega verið á
íslensku hingað til, en ég gaf út mitt
fyrsta enska lag á dögunum sem
er komið á spilunarlistann hérna.
Fengið góðar móttökur í liðinu,“
segir hann léttur að lokum. n
Skemmdi ekkert að hrifsa efsta sætið
Það er mikill metnaður
fyrir íþróttum hérna í
Mississippi State,
sérstaklega í spjótkasti.
Skólinn er oft kallaður
JavU.
Dagbjartur Daði Jónsson
Dagbjartur
nýtur góðs af
því að geta æft
við bestu að
stæður í Mississ
ippi og segist
strax sjá miklar
framfarir á þeim
mánuðum sem
hann hefur æft í
Bandaríkjunum.
MYND/MISSISSIPPI
STATE ATHLETICS
hjorvaro@frettabladid.is
COVID -19 Íslenskt afreksíþrótta-
fólk hefur síðustu vikurnar og
mun á næstunni vera á ferð og flugi
um heiminn til þess að taka þátt í
mótum og freista þess að tryggja sér
þátttökurétt á Ólympíuleikunum
sem fram fara í Tókýó.
Íþrótta- og Ólympíusamband
Íslands, ÍSÍ, og sambandsaðilar þess,
hafa undanfarna mánuði sóst eftir
því hjá sóttvarnayfirvöldum með
fundahaldi, símtölum og skrifleg-
um erindum, að afreksíþróttafólk
landsins fái forgang í bólusetningu,
að loknum bólusetningum við-
kvæmra hópa og heilbrigðisstarfs-
fólks, svo það geti með öruggari
hætti tekið þátt í alþjóðlegu móta-
haldi.
Öllum óskum um slíka fyrir-
greiðslu hefur verið neitað og vísað
til þess að forgangsröðun heilbrigð-
isyfirvalda varðandi bólusetningar
verði ekki haggað.
Af þeim sökum hefur afreks-
íþróttafólk landsins þurft að fara
óbólusett í stór og krefjandi verkefni
og í undankeppnir fyrir stórmót á
efsta stigi viðkomandi íþróttar.
Sundmaðurinn Anton Sveinn
McKee, sem er eini íslenski kepp-
andinn sem hefur tryggt sér þátt-
tökurétt á komandi Ólympíu-
leikum, benti á það í Twitter-færslu
sinni að það skyti skökku við að
hópurinn sem keppir fyrir Íslands
hönd í Söngvakeppni evrópskra
sjónvarpsstöðva hefði fengið und-
anþágu fyrir bólusetningu í ljósi
fyrrgreindra neitana sem íslenskt
afreksíþróttafólk hefur fengið frá
heilbrigðisyfirvöldum.
ÍSÍ sendi frá sér yfirlýsingu í gær
þar sem að á sama tíma og lýst sé
yfir ánægju með að keppendur fái
nú bólusetningu vegna ferða til
útlanda muni íþróttahreyfingin
krefjast þess að íþróttafólk sem
tekur þátt í alþjóðlegum verkefnum
fyrir Íslands hönd njóti sömu þjón-
ustu frá yfirvöldum og keppendur á
öðrum vettvangi.
„Alþjóðaólympíunefndin (IOC)
hefur útvegað bóluefni fyrir alla
þátttakendur í Ólympíuleikum og
Ólympíumóti fatlaðra og mun ÍSÍ
fá bóluefni fyrir þann hóp sem fer
á leikana. Sú ráðstöfun kemur til
með aðkomu IOC en ekki íslenskra
yfirvalda og nær einungis til þessa
þrönga hóps. Vonast er til að þessi
bólusetning hefjist í næstu viku í
góðu samstarfi við sóttvarnasvið
Embættis landlæknis.“ n
ÍSÍ krefst þess að afreksíþróttafólk verði bólusett
Anton Sveinn er eini Íslendingurinn sem er kominn á ÓL. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
ÍÞRÓTTIR 19. maí 2021 MIÐVIKUDAGUR