Fréttablaðið - 19.05.2021, Qupperneq 14
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Björn Víglundsson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann
Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir,
ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Guðbjörg var að fylgjast með
Gurrý Torfadóttur einkaþjálfara
á samfélagsmiðlum þegar hún sá
að hún var að fara að opna Yama
heilsurækt.
„Ég skráði mig og var á biðlista
þar sem allt var orðið fullt. Ég beið
í þrjá mánuði eftir plássinu og hef
núna verið í Yama heilsurækt í eitt
og hálft ár og þetta er besta stöð
sem ég hef kynnst,“ segir Guðbjörg.
„Það sem mér finnst vera aðal-
atriðið er að þetta heitir Yama
heilsurækt, ekki líkamsrækt. Þetta
snýst um heilsuna. Þjálfararnir eru
frábærir og hvetjandi, þeir fylgjast
með því að þú gerir æfingarnar á
réttan hátt. Þau taka einnig tillit til
dagsformsins. Ef þú hefur kannski
sofið illa eða þér er illt einhvers
staðar þá er það ekkert mál. Þá
gerirðu bara æfingarnar öðruvísi,
aðlagar þær eftir því hvernig dags-
formið þitt er,“ segir hún.
Fyrstu þrjá mánuðina var ég til
dæmis með svo mikla vöðvabólgu
að ég gat varla lyft lóðum. En í dag
er ég í besta formi sem ég hef verið
í og stefni á að bæta það.“
Guðbjörg mætir í Yama þrisvar í
viku og æfir með litlum hópi. Hún
segir að í hópnum hafi myndast
skemmtilegur og hvetjandi vin-
skapur sem sé mjög gefandi.
„Þetta er lítil og persónuleg
stöð. Hún er falleg og snyrti-
leg. Þar eru líka litlir hlutir sem
láta þér líða vel, eins og þegar þú
labbar inn þá stendur á hurðinni:
Velkomin fallega fólk! og þegar þú
ferð út þá stendur: Vel gert! Maður
tekur ekkert alltaf eftir þessu en
þegar ég geri það þá virkar það
hvetjandi.“
Alltaf ánægð eftir æfingu
Guðbjörg segist hafa fundið sig í
Yama eftir að hafa prófað margar
aðrar stöðvar.
„Persónuleg þjónusta er ein
ástæðan. En svo eru æfingarnar
líka svo fjölbreyttar, engar tvær
eins. Svo er líka mikil hvatning
á æfingu. Kannski labba ég inn
og hugsa: Ég ætla bara að hafa
þetta létt í dag. En svo fer ég út
búin að gera mitt langbesta. Það
kemur líka fyrir að mig langar
ekki á æfingu. En ég er alltaf svo
ánægð þegar ég er búin að fara og
dagurinn verður bara betri.“
Guðbjörg skráði sig í Yama
heilsurækt með það að markmiði
að ná því að vilja að mæta.
„Mig langaði aðallega að verða
sterk og gefast aldrei upp. Það
er alltaf erfitt að byrja og ég var
feimin. Það var líka mikil áskorun
þegar Covid kom og við urðum
að æfa heima í gegnum netið. En
Gurrý var svo rosalega dugleg
að setja inn myndbönd og vera
á netinu að ég hélt bara áfram,“
útskýrir hún.
„Við erum með app, Virtuagym.
Þar eru einnig æfingar fyrir okkur.
Ég er skráð í hádegishóp og fer yfir-
leitt þá. En stundum ef ég kemst
ekki í hádeginu þá fer ég í aðra
tíma sem er laust í, en það er hægt
að sjá það í appinu. Auk venjulegu
æfinganna er líka hægt að fara í
jóga á stöðinni, sem mér finnst
æðislegt. Ég hef aldrei fundið mig
svona vel á neinum stað og stefni á
að halda áfram.“
Einkaþjálfun í lokuðu umhverfi
Aðalþjálfari Yama heilsuræktar
ásamt Gurrý er Daníel Þorsteins-
son Fjeldsted en auk þess starfa
tveir aðrir þjálfarar á stöðinni.
Gurrý segir að hennar hugmynd
hafi verið að opna stöð þar sem
hægt er að hafa þjálfun í lokuðu
umhverfi með frábærum þjálf-
urum.
„Þetta er kallað einkahóp-
þjálfun eða persónuleg þjálfun.
Við þjálfum fólk í litlum hópum en
þjálfunin er einstaklingsmiðuð. Ef
Gurrý Torfa-
dóttir og Daníel
Fjeldsted,
aðalþjálfaranir
í Yama heilsu-
rækt, eru hér
ásamt Guð-
björgu Huldu
iðkanda.
Gurrý og Daníel þjálfa hópana saman og leggja áherslu á að aðlaga æfingarnar að hverjum og
einum og hafa þær fjölbreyttar. Þjálfað er í litlum hópum en þjálfunin er einstaklingsmiðuð.
Húsnæði Yama heilsuræktar er alveg sérstaklega hlýlegt
og heimilislegt. Það æfa fáir í einu og andinn er góður.
einhver er með verki í baki, slæmur
í öxl eða eitthvað annað þá höfum
við rými og þekkingu til að útfæra
æfingarnar fyrir hvern og einn.
Það er grunnhugmyndin,“ útskýrir
hún.
Gurrý segir að þegar einn hópur
æfir inni í stöðinni sé enginn
annar þar á sama tíma. Í hópunum
eru 8-12 manns en Gurrý leggur
áherslu á að hafa aldrei fleiri en
12 í hverjum hóp og að þekkja alla
með nafni.
„Þegar fólk skráir sig hjá mér þá
heyri ég oftast í þeim í síma til að
finna rétta hópinn fyrir viðkom-
andi því við aðlögum þjálfunina
hverjum hóp fyrir sig því þarfirnar
eru mismunandi. Við erum með
fólk hér sem er byrjendur. Margir
eru að fara af stað aftur eftir langan
tíma og sumir eru að glíma við
einhvers konar meiðsli. Við erum
líka með hóp af fólki sem er í góðu
formi og er búið að vera með okkur
lengi,“ segir hún.
„Það er engin keppni í æfing-
unum. Við hugsum þetta alltaf út
frá heilsu og hreysti. Við erum með
styrktaræfingar og þolæfingar
en það er aldrei keppni á milli
einstaklinga. Æfingarnar eru svo
settar upp á fjölbreyttan hátt.
Hver og einn vinnur svo algjör-
lega á sínum hraða. Við viljum
ekki að neinn fari fram úr sér þótt
allir séu hvattir til þess að gera
sitt besta og æfingarnar okkar eru
krefjandi.“
Sérstök stemning
Gurrý segir eins og Guðbjörg að
það að æfa hjá Yama heilsurækt
snúist líka að miklu leyti um
félagsskapinn.
„Þegar fólk æfir saman reglu-
lega þá myndast sérstök stemning.
Æfingarnar eru bara einn partur-
inn af Yama, en jafnstór partur er
að koma og hitta æfingahópinn.
Við höfum séð mörg dæmi um fólk
eins og Guðbjörgu, fólk sem kemur
og er kannski illt í bakinu eða ann-
ars staðar. Það er erfitt að byrja að
æfa þegar það eru verkir í líkam-
anum. En ef fólk setur sér það
markmið að mæta alltaf þrisvar
í viku sama hvað, þá sér það
árangur. Stundum er fólk illa upp-
lagt og þá er okkar að meta hvaða
æfingar henta því. Við höfum
sagt fólki að fara fyrr af æfingu og
slaka á í jógaherberginu eða fara í
infrarauða klefann. Aðalatriðið er
bara að skuldbinda sig til að mæta
alltaf, þá verður undantekningar-
laus frábær árangur en það tekur
tíma og krefst þrautseigju.“
Gurrý segir að iðkendurnir hafi
alltaf góðan aðgang að þjálfur-
unum bæði á stöðinni og á sam-
félagsmiðlum.
„Þetta er bara lítil einkaþjálf-
unarstöð svo það er góður tími til
að sinna hverjum og einum,“ segir
hún.
„Það er frábær hugmynd að
byrja núna að æfa, sérstaklega fyrir
fólk sem er að stíga fyrstu skrefin,
eða hefur lítið hreyft sig frá því
Covid byrjaði. Margir eiga erfiðan
vetur að baki og því er um að gera
að koma hreyfingunni inn í dag-
lega rútínu sem fyrst. Hreyfing
er nefnilega ein af grunnþörfum
okkar og hún gerir svo margt
miklu betra í lífi okkar. n
Fyrir áhugasama má senda póst á
gurry@gurry.is og hún hefur sam-
band til baka í gegnum síma. Yama
heilsurækt er í Ármúla 40.
Auk venjulegu
æfinganna er líka
hægt að fara í jóga á
stöðinni, sem mér finnst
æðislegt. Ég hef aldrei
fundið mig svona vel á
neinum stað og stefni á
að halda áfram.
Guðbjörg Hulda Valdórsdóttir
2 kynningarblað A L LT 19. maí 2021 MIÐVIKUDAGUR