Fréttablaðið - 19.05.2021, Síða 22
Útgefandi: Torg ehf. Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumaður auglýsinga: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652.
2 kynningarblað 19. maí 2021 MIÐVIKUDAGURÚTIVIST
Þóra Ragnarsdóttir er útivistarkona og yfirhönnuður Cintamani. Hún
segir litríka Cintamani vera að koma til baka. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„Í gegnum árin hefur Cintamani
hannað og framleitt hágæða úti
vistarfatnað sem Íslendingar elska.
Það mun ekki breytast,“ segir Þóra
Ragnarsdóttir, yfirhönnuður Cinta
mani.
Þóra vann hjá Cintamani á ára
bilinu 2006 til 2016 og þekkir því
sögu vörumerkisins nokkuð vel.
„Litríka Cintamani er að koma
til baka. Við höfum sótt svolítið í
gamlar glæður og glæðum þær nýju
lífi. Litadýrð einkenndi vörumerkið
í langan tíma og við förum að sjá
það aftur í haust og svo enn frekar á
næsta ári,“ upplýsir Þóra.
Frá núll upp í hundrað ára
Þessi dægrin er Þóra að vinna í
Cint amanilínunni fyrir árið 2022.
„Við erum að ákveða hvaða
traustu stílar fá að lifa áfram og
hvaða nýju stílum við viljum bæta
inn í, ásamt því að velja liti sem
er alveg ótrúlega skemmtilegt og
spennandi,“ segir Þóra sem hannar
fatnað og fylgihluti Cintamani ár
fram í tímann.
„Mig klæjar í fingurna að fá þessa
liti strax inn en þróunin tekur
sinn tíma. Við hönnum allar okkar
vörur frá grunni og leggjum mikið
upp úr góðum sniðum og miklum
gæðum. Útivistarfatnaður er enda
mikil fjárfesting og því þarf hann
að endast og reynast vel,“ segir Þóra.
Cintamani á í frábæru
samstarfi við útivistarfólk
sem prófar útivistarfatnað
inn við allar aðstæður.
„Við þróum flíkur Cint a
mani með þarfir útivistar
fólksins í huga,“ segir Þóra.
„Útkoman úr því góða sam
starfi er gæða útivistarfatn
aður fyrir alla fjölskylduna,
allt frá núll upp í hundrað
ára. Það er svo heilsueflandi
fyrir líkama og sál að vera
úti við og hreyfa sig, hversu
lítið eða mikið sem það er,
og til að njóta sín í botn er
nauðsynlegt að eiga gæða
fatnað sem hlífir okkur vel
fyrir veðri og vindum.“
Ísland er leiksvæðið
Þóra sjálf er iðin í útivist og
hreyfingu.
„Mér líður hvergi betur en
úti í náttúrunni og finn mér
allar ástæður til að viðra
mig, hvort sem ég er hlaup
andi, gangandi, hjólandi,
skíðandi, prílandi á fjöll, í
golfi eða bara liggjandi í laut
að njóta. Allar árstíðir hafa
sinn sjarma og þá skiptir
máli að vera rétt búin, hvort
sem það er vetur, sumar, vor
eða haust.“
Hún segir hrein forréttindi að
Cintamani pollafötin hafa notið mikilla vinsælda á smáfólkið, enda fádæma
góð í hvers kyns votviðri, litrík, falleg og endingargóð. MYNDIR/AÐSENDAR
Maður er vel
búinn í hvaða
útivist sem er í
göngubuxunum
Trausta sem eru
léttar og liprar
og flíspeysunni
Þoku sem er
úr einstaklega
mjúku flísefni.
Dúnvestið Lægi er frábær ferða-
félagi sem hentar öllum kynjum.
búa á Íslandi og njóta alls þess
undurs og fegurðar sem landið
hefur að bjóða.
„Að hafa allt þetta leiksvæði
sem landið okkar er og oft þarf
ekki að leita langt yfir skammt
þar sem það er nóg að fara rétt
út fyrir bæjarmörkin til að
nærast.“
Framtíðin er björt
Hópurinn sem nú vinnur í
Cinta mani er samhentur.
„Við erum einstaklega dugleg
að gera eitthvað saman, fara í
göngur og slíkt, og þá gefst frá
bært tækifæri til að prófa nýjan
útivistarfatnað. Við leggjum
mikið upp úr því að þekkja
viðskiptavini okkar, og vörur
Cintamani endurspegla það sem
markaðurinn vill hverju sinni.
Stundum kvikna hugmyndir á
göngu með samstarfsfólkinu, nú
eða eftir samræður við viðskipta
vini í versluninni,“ segir Þóra, og
framtíð Cintamani er björt.
„Cintamani á yfir þrjátíu ára
sögu sem við erum enn á fullu að
skrifa,“ segir Þóra. „Vörumerkið
stendur á traustum grunni sem
margt gott fólk hefur lagt vinnu í
og við hlökkum til að halda áfram
að styrkja Cintamani enn frekar
og fá tækifæri til að skrifa söguna
áfram.“ n
Cintamani er í Austurhrauni 3 í
Garðabæ. Sími 533 3800. Skoðaðu
þig um í vefverslun Cintamani, á
cintamani.is