Fréttablaðið - 19.05.2021, Síða 25

Fréttablaðið - 19.05.2021, Síða 25
Árbók Ferðafélags Íslands kemur nú út í 94. skipti. Ólafur Örn Har­ aldsson, höfundur bókarinnar, samdi árbók fyrir ellefu árum um Friðland að Fjallabaki. Nú hefur hann bætt um betur og fjallar hér um gönguleiðina frá Land manna laugum til Þórsmerkur og áfram suður yfir Fimm vörðu háls ásamt aðliggjandi svæðum. Undan­ farna áratugi hafa fáar gönguleiðir notið jafn mikilla vinsælda meðal ferðamanna. Auk Ólafs rita sex sér fræðingar á Náttúru­ fræðistofnun Íslands sérstakan kafla um náttúrufar svæðisins. Ýmsir gamalreyndir göngu menn og fjöl fróðir fjall menn lögðu verkinu einnig lið. Ólafur Örn hefur mikla reynslu af ferðalögum innan lands sem utan, Hann sat á alþingi 1995–2003 og var þjóð­ garðs vörður á Þingvöllum 2010–2017. Ferða félags fólki er Ólafur Örn ekki síst að góðu kunnur sem forseti félagsins en því embætti hefur hann gegnt síðan 2004. Bókin er 263 blaðsíður með ríflega 200 ljós myndum og 18 up­ pdráttum. Guðmundur Ó. Ingvarsson teikn aði kortin og Daníel Bergmann tók lang flestar ljós myndir nar en einn og hálfur tugur annarra ljós mynd ara á myndir í bókinni. Daníel ritar auk þess hugleiðingar um fugla lífið á svæðinu. Heimildaskrá ásamt ör­ nefna­ og manna nafna skrám auka veru lega notagildi verksins sem er litprentað frá upphafi til enda. Ritstjóri árbókarinnar er Gísli Már Gíslason og ritnefnd skipa auk hans Eiríkur Þormóðsson og Guðrún Kvaran sem bæði hafa lagt árbókum Ferðafélagsins lið í áratugi. Árbækur Ferðafélags Íslands hafa komið út án upp styttu síðan 1928. Í hverri bók er oftast lýsing á af mörkuðu svæði og sögulegur og þjóðlegur fróð leikur tengdur því. Nær nú efni bókanna um landið allt, víða í annað eða jafnvel þriðja sinn. Árbækurnar eru því yfir grips mikil Íslandslýsing á meira en fimmtán þúsund blaðsíðum. Í bókarlok er greint frá starfi félagsins og deildanna á lands­ byggðinni á síðasta ári. Meðfylgjandi er greiðsluseðill fyrir árgjaldi Ferða félagsins sem er n.nnn krónur. Árbókinni verður á næstu dögum dreift til félagsmanna sem greitt hafa árgjaldið. LAUGAVEGURINN OG FIMMVÖRÐUHÁLS Með góðri kveðju, Ferðafélag Íslands ÁRBÓK FERÐAFÉLAGS ÍSLANDS Jóna Jóhannsdóttir Miklubraut 18 010120201819 105 Reykjavík Í ár verður í fyrsta skipti hægt að fá félags skírteini FÍ á rafrænu formi. Hafi félagi áhuga á slíku, þarf að senda póst á fi@fi.is með upplýsingum um kennitölu, heimilisfang og netfang. Innan viku eftir að gengið hefur verið frá greiðslu ár gjalds, fær við kom andi sendan tölvupóst frá passi@ passi.is. Í tölvu póstinum er hægt að nálgast leiðbeiningar sem skýra hvernig rafræna skírteinið er virkjað en þær eru einnig að finna á heima síðu félagsins, www.fi.is. FÉLAGSSKÍRTEINI Ferðafélag Íslands • Mörkinni 6 • www.fi.is • 568-2533

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.