Fréttablaðið - 19.05.2021, Side 27
Frír prufutími
„Við bjóðum upp á fría prufu
tíma fyrir alla. Þetta er ný
hugmynd og það er gaman
að geta sýnt fólki hvað við
gerum. Flestir koma til okkar
með margar spurningar en
fara frá okkur spenntir,
glaðir og með skýra sýn á það
hvernig OsteoStrong getur
hjálpað þeim,“ segir Örn.
Útivistar á Íslandi verður
best notið með öruggum
undirbúningi, áreiðanlegum
búnaði og í góðum félags-
skap. Undirbúningurinn felst
ekki síst í því að æfa sig fyrir
viðeigandi hreyfingu og líða
vel í eigin líkama. Til þess
að flýta fyrir góðum árangri
og minnka líkur á meiðslum
hefur OsteoStrong reynst
fjölda fólks einstaklega vel.
Með tíu mínútna ástundun, einu
sinni í viku, tekst meðlimum
OsteoStrong að auka styrk sinn og
jafnvægi hraðar en annars staðar
án þess að finna fyrir harðsperrum
eða öðrum fylgifiskum. Meðlimir
auka styrk vöðva, beina, sina og lið-
banda umtalsvert auk þess að losa
sig við verki. Sérhæfð tæki bjóða
notendum að nýta vöðva í hámarks
aflstöðu.
Njóttu útiveru til fulls
„Það er svo gaman að fylgjast með
fólki á vorin og sumrin. Þá haldast
von og vor í hendur og allir svo
spenntir að takast á við spennandi
verkefni úti við, hvort sem það er
að klífa fjall, hjóla, spila golf eða
synda í sjónum. Við vitum hins
vegar að það getur verið erfitt að
komast almennilega af stað eða að
fólk finnur mikið fyrir átökunum
í kroppnum daginn eftir. Þar getur
OsteoStrong hjálpað verulega til.
Við viljum endilega styrkja fólk
í því að njóta íslenska sumarsins
sem best. Það langar engan að
vera bundinn inni á sumrin og
því er heppilegt að heimsókn í
OsteoStrong tekur í heildina um
20 mínútur einu sinni í viku og þá
fær fólk enn meira út úr útiverunni
og hreyfingunni,“ segir Svanlaug
Jóhannsdóttir, annar eigandi
OsteoStrong, og bætir við að þau
leggi áherslu á gott viðmót og nota-
legt umhverfi. „Við erum mjög stolt
þegar við heyrum það út undan
okkur að það hafi tekist.“
Flestir geta nýtt sér það sem
OsteoStrong býður upp á, fólk á
öllum aldri óháð líkamlegri getu.
Meðlimir geta átt von á að:
n Auka styrk
n Minnka verki í baki og liða
mótum
n Minnka líkur á álagsmeiðslum
n Bæta líkamsstöðu
n Auka jafnvægi
n Lækka langtíma blóðsykur
n Auka beinþéttni
73% sterkari á ári
„Enginn annar möguleiki sem
við þekkjum býður upp á svona
mikinn styrk á jafn stuttum æfinga-
tíma,“ segir Örn Helgason, hinn
eigandi OsteoStrong. „Athuganir á
árangri meðlima sýna að þeir eru
að meðaltali að styrkja sig um 73%
á ári.“
Hvetjandi upplýsingar
„Notendur gera æfingar undir
handleiðslu þjálfara í fjórum
tækjum sem reyna á allan líkam-
ann,“ segir Svanlaug. „Munurinn á
venjulegum líkamsræktartækjum
og þessum er að hreyfingin er örlítil
og hefst þar sem útlimirnir eru nær
full útréttir. Tækin veita mótstöðu
sem síeykst eftir því sem notandinn
reynir meira á sig. Það þarf aðeins
örstutt átak, eða um 15 sekúndur,
fyrir hverja æfingu. Þá hefur
líkaminn fengið skýr skilaboð um
að þörf sé á uppbyggingu og hefst
handa við að styrkja vöðva, liðbönd
og sinar ásamt því að þétta bein.“
Þegar notandi stígur á tækið
ber hann kort með örflögu upp
að skjánum og tækið stillir sig í
rétta stöðu fyrir viðkomandi, að
sögn Svanlaugar. „Notandinn sér á
skjánum hver árangurinn var þegar
hann hóf fyrst notkun á tækjunum,
Gakktu lengra – klífðu hærra með OsteoStrong
Nær sjötug og ætlar að ganga 2.554 kílómetra
Þegar ég fór í prufutíma hjá OsteoStrong fyrir sléttum tveimur
árum var ég með smá verk í baki og hné sem ég hafði fundið fyrir af
og til, sérstaklega eftir áreynslu. Þann sama dag fór ég í fjallgöngu.
Þar sem ég var verkjalaus um kvöldið og næsta morgun, ákvað ég
strax að fá mér árskort. Á þessum tveimur árum sem liðin eru hef ég
fundið jafnt og þétt að ástundun hjá OsteoStrong gefur mér meiri
orku og kraft, jafnvægið hefur sjaldan verið betra sem er nauðsyn
legt, sérstaklega þegar aldur færist yfir.
Ég verð sjötug á þessu ári og af því tilefni hef ég sett mér það
markmið að ganga 2.554 km eða um það bil 7 km á dag. Þetta mun
mér takast vel og það sem ég fæ út úr því að mæta í OsteoStrong
vikulega hjálpar vissulega. Sú orka, kraftur og jafnvægi sem hér fæst
skapar vellíðan sem er mikils virði. Starfsmenn stöðvarinnar taka á
móti öllum með hlýju, fagmennsku og virðingu. Ég er afar þakklát
fyrir OsteoStrong og verð hér svo lengi sem ég get.
Lísbet Grímsdóttir, lífeindafræðingur,
náttúruunnandi, göngumaður
Með tíu mín
útna ástundun,
einu sinni í viku,
tekst meðlim
um OsteoStrong
að auka styrk
sinn og jafn
vægi hraðar en
annars staðar
án þess að finna
fyrir harðsperr
um eða öðrum
fylgifiskum.
Hjónin Örn og
Svanlaug eru
eigendur Osteo
Strong sem
flutti nýlega í
Hátún.
Nýi salurinn er rúmgóður og hentar vel fyrir reksturinn.
hver besti árangurinn er og hver
síðasti árangur var í kílóum. Þessar
upplýsingar eru sérlega hvetjandi
til þess að gera betur í hvert sinn
sem notandi æfir.“
Betra jafnvægi
„Fólk sér fyrst mun á jafnvæginu.
Eftir aðeins fimm skipti er fólk að
meðaltali búið að bæta það um
77%. Fyrir suma þýðir það að þeir
eru betri í golfi, eða stöðugri í fjall-
göngu. Fyrir aðra þýðir þetta að
þeir geta sleppt göngugrindinni,
eða átt auðveldara með að ganga,“
segir Örn.
Reddaði lúxuskokki
á Hornstrandir
„Við Örn höfum gert svo margt
skemmtilegt saman tengt úti-
vist. Vorið áður en að við kynnt-
umst hafði ég skráð mig í göngu
á Hornstrandir með einstaklega
skemmtilegum hópi. Ég tók að mér
að sjá um kostinn marga mánuði
fram í tímann – en ég hef engan
skilning á eldamennsku og var
ekki alveg búin að sjá hvernig ég
myndi redda því. Svo kynnist ég
Erni og það kemur í ljós að hann er
listakokkur. Hann var meira en til
í að koma með í gönguna og redda
mér í þessum vandræðum þannig
að við burðuðumst með alls kyns
gúmmelaði í gönguna, til dæmis
ferska lúðu. Ég hafði frekar hugsað
núðlusúpu og kex en með Erni eru
allar máltíðir fimm stjörnu,“ segir
Svana og hlakkar sérstaklega til
þess að komast loksins í Ódáða-
hraun á þessu ári. n
Frekari upplýsingar má fá á
osteostrong.is og í síma 419 9200
OsteoStrong er í Hátúni 12.
Lísbet Grímsdóttir lífeindafræðingur hefur sett sér markmið um að ganga 7 kílómetra á dag en hún fagnar sjötíu ára afmæli á þessu ári. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
7MIÐVIKUDAGUR 19. maí 2021 ÚTIVIST