Fréttablaðið - 19.05.2021, Qupperneq 32
n Skotsilfur Bolsonaro gerir tilraun til að smala saman fylgismönnum
Jair Bolsonaro, forseti Brasilíu, tók þátt í göngu á vegum Kristinna fjölskyldna fyrir frelsi um helgina. Stuðningsmenn hans hafa efnt til fjöldafunda í ljósi
dvínandi vinsælda forsetans í von um að blása í glæður. Óánægja ríkir um hvernig Bolsonaro hefur tekist á við Covid-19 heimsfaraldurinn og hann hæðist að
þeim sem halda sig heima við. Hann var kjörinn forseti fyrir tveimur árum. Í þeirri kosningabaráttu vildi hann taka hart á glæpamönnum. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
Undanfarin 100 ár hefur reglu-
lega verið ráðist í átak við upp-
byggingu húsnæðis á Íslandi, oft
í tengslum við alvarlegan hús-
næðisskort. Sveiflur hafa einkennt
byggingariðnað en þær eru sam-
félaginu kostnaðarsamar og því er
til mikils að vinna að uppbygging
húsnæðis verði stöðug og í takt við
þarfir markaðarins hverju sinni.
Sú umgjörð sem stjórnvöld – bæði
ríki og sveitarfélög – hafa mótað,
ýtir undir óstöðugleika og því
verður að breyta. Skortur á yfirsýn
og á eignarhaldi á málaflokknum
leikur stórt hlutverk en kjarni máls
er sá að núverandi starfsumhverfi
byggingarmála er að óskilvirkt og
óhófleg reglubyrði eykur flækjustig
sem hækkar kostnað. Boðleiðir eru
of langar og ferlið að fyrstu skóflu-
stungu er of tímafrekt. Niðurstaðan
er sú að húsnæði er dýrara en það
þyrfti að vera og þetta hefur ekki
einungis áhrif á efnahagslífið –
enda er byggingariðnaður um 8%
af landsframleiðslu – heldur hefur
þetta mikil áhrif á vinnumarkaðinn.
Umgjörð byggingarmarkaðarins er
því beinlínis áhættuþáttur í hag-
stjórn á Íslandi og því þarf að breyta.
Og það er hagur allra að við breytum
þessu í sameiningu því stöðugleiki á
húsnæðismarkaði kæmi hinu opin-
bera ekki síst vel sem stórum launa-
greiðanda á Íslandi.
Enginn má láta sitt eftir liggja
Átakshópur stjórnvalda og aðila
vinnumarkaðarins um aukið fram-
boð á íbúðum og aðrar aðgerðir til
að bæta stöðu á húsnæðismarkaði
skilaði 40 tillögum að úrbótum í
janúar árið 2019. Í tengslum við
undirritun Lífskjarasamninga
nokkrum mánuðum síðar lýsti svo
ríkisstjórnin yfir vilja til að vinna
að innleiðingu tillagnanna. Með
sameiningu málaflokka hjá ráðu-
neytum og stofnun Húsnæðis- og
mannvirkjastofnunar hefur margt
jákvætt gerst og stór skref verið
tekin í rétta átt. Stór vandamál
eru þó enn til staðar, ekki síst sem
Síðasta átakið í húsnæðismálum
Halldór
Benjamín
Þorbergsson
framkvæmda-
stjóri Samtaka
atvinnulífsins
Sigurður
Hannesson
framkvæmda-
stjóri Samtaka
iðnaðarins
Vandinn er
að það
vantar
fleiri íbúðir
á markað-
inn og
hann
verður
einungis
leystur til
lengri tíma
með því að
ráðast að
rót vand-
ans sem
liggur í
umgjörð-
inni.
lúta að eftirfylgni sveitarfélaganna
sem fara með skipulagsvald, leyfis-
veitingar, vinnslu húsnæðisáætl-
ana og lóðamál. Vonandi verður
þetta síðasta átaksverkefnið í hús-
næðisuppbyggingu en til þess að svo
megi verða þurfa stjórnvöld, aðilar
vinnumarkaðarins og sveitarfélög
að vinna saman að nauðsynlegum
og tímabærum umbótum. Til við-
bótar þessum tillögum vann OECD
tillögur til úrbóta varðandi bygg-
ingarmarkaðinn hér á landi og á
eftir að hrinda þeim tillögum í
framkvæmd.
Þjóðhagsráð fjallar um stöðuna
Staðan á húsnæðismarkaði ein-
kennist af skorti á íbúðum með
tilheyrandi verðhækkunum. Þjóð-
hagsráð fjallaði um húsnæðismál
á nýlegum fundi sínum en aðilar
vinnumarkaðarins, ríki, sveitarfélög
og Seðlabanki eiga aðild að þeim
vettvangi. Þar eru því samankomnir
þeir aðilar sem hafa það í hendi sér
að koma á langþráðum stöðug-
leika á húsnæðismarkaði. Það fór
vel á því enda snúa húsnæðis- og
byggingamál að efnahagslegum
og félagslegum stöðugleika sem er
viðfangsefni Þjóðhagsráðs. Á þeim
fundi kynnti Húsnæðis- og mann-
virkjastofnun eftirfylgni við tillögur
átakshópsins og greiningu á stöð-
unni á húsnæðismarkaði. Samtök
iðnaðarins og Samtök atvinnulífs-
ins hafa fylgt þessum málum ötul-
lega eftir og unnu greinargerð um
stöðuna. Þar má finna 36 tillögur
í heildstæðri nálgun til að tryggja
stöðuga uppbyggingu húsnæðis og
voru þær tillögur kynntar Þjóðhags-
ráði. Vandinn er að það vantar fleiri
íbúðir á markaðinn og hann verður
einungis leystur til lengri tíma með
því að ráðast að rót vandans sem
liggur í umgjörðinni.
Tíminn er núna
Eftir höfðinu dansa limirnir. Með
því að sameina þá málaflokka sem
snúa að uppbyggingu í einu ráðu-
neyti fæst yfirsýn og skýr ábyrgð
á málaflokknum. Það er best gert
með því að færa húsnæðis- og
byggingamál yfir í samgöngu- og
sveitarstjórnarráðuneyti og færa
skipulagsmál yfir í sama ráðuneyti.
Í kjölfar kosninga er tækifæri til
þessara breytinga. Þannig yrði til
öflugt innviðaráðuneyti sem bæri
ábyrgð á uppbyggingu húsnæðis,
vega og mannvirkja, fjarskiptum
og sveitarstjórnarmálum. Samhliða
þessu þyrfti að huga að auknu sam-
starfi eða sameiningu stofnana sem
hafa með þessi mál að gera. Sveitar-
félögin þurfa að taka aukna ábyrgð,
innleiða stafrænar lausnir, hraða
leyfisveitingum og auka framboð á
lóðum. Auka þarf yfirsýn á markað-
inn með greinargóðum rauntíma-
upplýsingum um íbúðir í byggingu
og einfalda regluverkið enn frekar.
Vandinn er ljós, afleiðingar hans eru
ljósar og lausnirnar liggja fyrir. Það
er ekki eftir neinu að bíða. n
Vopnahlé
Hörður
Arnarson
forstjóri
Landsvirkjunar.
Landsvirkjun og
Samtök iðnaðarins
hafa um langt
skeið deilt um samkeppnishæfni
orkufreks iðnaðar með tilliti til
raforkuverðs. Deilurnar endur-
speglast í fjölmiðlum þar sem
raforkuverðið er ýmist sagt sam-
keppnishæft eða ósamkeppnis-
hæft eftir því við hvern er rætt. En
nú virðist sem sverðin hafi verið
slíðruð. Ríkisfyrirtækið og SI hafa
í þessum mánuði birt sameigin-
legar greinar í þrígang þar sem lögð
var áhersla á tækifærin sem felast
í umhverfisvænni uppbyggingu á
orkufrekum iðnaði. Og til þess að
grípa tækifærin sem felast í grænni
uppbyggingu þarf náið samstarf
atvinnulífsins, stjórnvalda og ann-
arra haghafa. n
Á ferð og flugi
Ívar J.
Arndal
forstjóri
ÁTVR.
Nú er ljóst að ÁTVR
mun berjast með
kjafti og klóm fyrir tilvist sinni.
Ríkisfyrirtækið undirbýr beiðni
um lögbann á hendur vefversl-
unum sem selja áfengi í smásölu
hér á landi en tilefnið er vefverslun
Santewines sem býður lægri verð
og afhendingu samdægurs. Fyrir-
ætlanir ÁTVR eru mjög óskýrar.
Santewines er skráð í öðru landi,
Frakklandi, eins og aðrar vefversl-
anir sem senda áfengi til neytenda
á Íslandi. Munu lögmenn ÁTVR
flakka á milli heimshorna til að
angra vefverslanir og vínrækt-
endur sem dettur í hug að senda
áfengi til Íslands? Enn bætist við
kostnaðinn sem fellur á neytendur
vegna einokunartilburða ÁTVR. n
Samfélagsábyrgð
Davíð
Rúdólfsson
forstöðumaður
eignastýringar Gildis.
Í aðdraganda
útboðs Síldar-
vinnslunnar veltu sumir lífeyris-
sjóðir fyrir sér hvort orðspors-
áhætta fælist í því að fjárfesta
í félaginu í ljósi þess að stærsti
eigandinn, Samherji, er sakaður
um alvarleg brot. Sjóðirnir hafa
jú tileinkað sér hin svokölluðu
UFS-gildi í síauknum mæli og
Gildi er þar engin undantekning
og því gæti komið sumum á óvart
að sjóðurinn hafi fjárfest fyrir 10
milljarða í útboðinu. Aftur á móti
var skráningin einkum til þess
fallin að svara kalli um dreifðara
eignarhald í sjávarútvegi. Það næst
sumpart með aðkomu lífeyris-
sjóða að útgerðarfélögum og að því
leytinu til gæti fjárfesting Gildis
flokkast sem samfélagslega ábyrg
fjárfesting frekar en hitt. n
MARKAÐURINN10 19. maí 2021 MIÐVIKUDAGUR