Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.05.2021, Qupperneq 35

Fréttablaðið - 19.05.2021, Qupperneq 35
Marta Rut Pálsdóttir smitað- ist af fjalladellunni í mars í fyrra, en fyrir það segist hún ekki hafa skilið gleðina í því að vera að brölta um fjöll og firnindi bara til að labba. johannamaria@frettabladid.is Það var svo í byrjun Covid í fyrra að ein í vinnunni bauð í rosa fjallaferð á Úlfarsfellið eftir vinnu. „Að sjálfsögðu sló ég til og skellti mér með. Síðan þá var ekki aftur snúið hjá mér. Ætli það hafi svo ekki verið Sandra vinkona mín sem kom mér endanlega á bragðið. Hún sagði mér einn daginn að hún væri að fara á Snæfellsjökul og spurði hvort að ég kæmi ekki með. Ég var nýbúin að lofa sjálfri mér því að segja já við öllu sem kæmi upp og lifa svolítið villt, og sagði „já, hví ekki?“. Við tóku nokkrar vikur af „hvað í fjandanum var ég að hugsa?“ en ætli þetta hafi ekki kveikt neistann, því eftir mjög erfiða göngu (að mér fannst) var loksins toppað í miðnætursól. Það var svo geggjað og algerlega þess virði. Svona getur maður verið blindur á hvað þetta hefur upp á að bjóða, og ertu að grínast hvað við eigum fallegt land?“ segir Marta. Sálfræðitími Marta hefur gengið á fjöll allt síðasta ár. „Þetta er allt annað að ganga á sumri eða vetri en bæði er mjög skemmtilegt. Það þarf þó alltaf að fylgjast vel með veðri og það er aðeins meira á veturna sem það þarf að fresta ferðum. Ég er í dag meðlimur í fjallgönguhóp sem heitir Toppfarar og er 14 ára gamall klúbbur með yfir 100 félaga.“ Aðspurð hvað það er sem heilli svo við fjallgöngur svarar Marta að þetta sé eins og margra klukku- stunda sálfræðitími. „Þetta er svo hreinsandi og heilandi. Þegar ég er í göngu þá hugsa ég ekki um neitt annað, gleymi bara raunveruleik- anum sem er þarna fyrir utan og er bara að njóta og vera þakklát. Það má ekki gleyma því að njóta þess að vera á fjalli. Oft eru göngur krefj- andi og erfiðar, þá verður maður að hugsa um verðlaunin, sem eru að ná að toppnum og geggjaður nætursvefn eftir allt súrefnið.“ Áttu þér uppáhaldsfjall, hér á Íslandi eða annars staðar? „Ég á í frábæru ástar-haturs- sambandi við Esjuna. Hún er mjög krefjandi en líka ótrúlega falleg og það er svo mikið hægt að ganga á henni. Svo er ég með Helgafell í Hafnarfirði í bakgarðinum hjá mér svo það er alltaf svona pínu mitt.“ Alger bilun að bíða Marta segist ekki hafa tölu á því hvað hún hefur toppað marga tinda síðastliðið ár, en fjöllin eru mjög mörg. Mesti afrekstindurinn segir hún þó að hafi verið Vestari Hnappur í Öræfajökli. „Hann fór ég núna í byrjun maí og maður minn hvað ég var stolt af sjálfri mér. Þetta var alvöru jöklaferð, allir í línu og á broddum með hjálm og öxi. Það var gengið yfir sprungu- svæði og klifrað á toppinn. Ég man að ég var að rökræða við sjálfa mig hvort ég ætti nú ekki bara að bíða niðri á meðan hinir klifruðu á toppinn þegar ég heyrði einn segja það upphátt að hann ætlaði að bíða. Þá var ég fljót að skipta um skoðun og hugsaði „já, nei, það er bilun að bíða“ og skellti mér upp á topp.“ Næst á dagskrá segir Marta að sé Vatnaleiðin núna um helgina. „Það eru mögulega ekki háir tindar þar á ferð, en þetta er löng ganga sem reynir á úthald, bæði líkamlega og andlega. Svo verður líklega ein Helgafellsferð fyrir þá göngu.“ En er einhver tindur sem þig dreymir um að sigra? „Er það ekki þetta klassíska: Hvannadalshnjúkur? Svo langar mig á Sveinstind og Kerlingu, sem er hæst á Tröllaskaga.“ Lumarðu á einhverjum góðum ráðum handa þeim sem langar að rífa sig upp á tind um helgina? „Ég mæli bara með því að skunda af stað, kannski ekki í gallabuxum og lélegum götuskóm eins og ég gerði í minni fyrstu fjallgöngu. Úlfarsfell er flottur byrjunarreitur og býður upp á margar leiðir til að komast upp. Það sem ég mæli með að fólk útvegi sér eru góðir gönguskór númer 1, 2 og 3, og góð gönguföt. Og ekki gleyma að klæða sig eftir veðri.“ n Ertu að grínast hvað við eigum fallegt land? Hér er Marta í göngu á Fimm- vörðuhálsi. MYNDIR/AÐSENDAR Marta situr hér fyrir á Vestari Hnapp með Hvannadalshnjúk í baksýn. Kári Kárason slasaðist á öxl fyrir um 20 árum síðan og þjáðist í kjölfarið af lang- varandi verkjum sem höfðu hamlandi áhrif á líf hans. Kári hafði reynt ýmislegt til að vinna bug á verkjunum en það var ekki fyrr en hann byrjaði að taka inn Liði frá Protis snemma á síðasta ári sem hann segir verkina loks hafa hjaðnað. hjordiserna@frettabladid.is Kári starfar í dag sem fram- kvæmdastjóri en var áður á sjó. „Það var líklega rétt fyrir aldamótin sem ég varð fyrir slysi á sjó þegar ég datt illa í brælu og fékk högg aftan á hægri öxlina. Síðan kom ég í land árið 2000 og byrja að vinna á skrif- stofu og að keyra en þá voru þessir verkir orðnir helvíti yfirþyrmandi,“ greinir Kári frá. „Þetta lýsir sér þannig að þegar ég er að vinna með mús eða að keyra, þá hangir höndin einhvern veginn í öxlinni og ég var alltaf með verki.“ Óraunverulegur árangur Kári fór ýmsar leiðir til að reyna að vinna bug á verkjunum en án árangurs. „Ég fór í nudd, kalda bakstra og hljóðbylgjur svo eitt- hvað sé nefnt, en það dugði ekkert af því. Svo gerist það að félagi minn sem var með mér á sjó og var stöðugt með verki í hnjánum, byrjar að taka inn Liði frá Protis með góðum árangri og bendir mér á að prófa þetta. Ég byrjaði að taka þetta inn snemma í fyrra og það var í raun- inni bara óraunverulegur árangur sem náðist. Ég fór smám saman að taka eftir að ég var ekki alltaf með þennan verk í hendinni sem leiddi í hausverk.“ Hann segir árangurinn hafa komið fljótt í ljós. „Ætli það hafi ekki verið á þriðju viku sem ég tók eftir töluverðum mun. Þú tekur kannski ekki alltaf eftir batanum, en svo koma ákveðin augnablik þar sem þú áttar þig skyndilega á því hvað líðanin er betri.“ Ekkert annað en himnasending Kári rifjar upp eitt slíkt augnablik. „Þegar við konan keyrðum suður þá bauðst hún alltaf til að taka við í Baulu og við skiptum um sæti því verkurinn var orðinn svo mikill. Síðan erum við að keyra einn daginn, og hún spyr hvort hún eigi að taka við en ég segi bara: Ég er góður. Þá fatta ég hvað þetta virkar vel á mig og ég ætla aldrei að hætta að taka þetta. Kári segist einnig hafa áttað sig á árangrinum þegar hann gat ekki tekið inn Liði frá Protis um skeið. „Síðasta haust kom tímabil þar sem það var erfitt að fá Liðina þannig að ég missti úr taktinn og verkirnir byrjuðu aftur. En svo þegar þetta kom aftur í sölu á þessu ári byrjaði ég samstundis aftur og verkirnir eru farnir. Mig grunar að það sé eitthvað undraefni í þessum sæbjúgum,“ segir Kári og hlær. „Ég veit ekki hvað þau gera en Protis Liðir hefur gert það að verkum að ég er ekki með verki lengur og það nægir mér. Ég get náttúrulega ekki staðhæft neitt um það hvernig þetta virkar á aðra, en þetta virkar á mig og er í raun alveg búið að bjarga mér. Langvarandi verkjum fylgir oftar en ekki depurð og fólk verður uppstökkara. Þegar þú verður síðan verkjalaus þá finn- urðu heilmikinn mun og lundin verður öll léttari. Þannig að þetta er ekkert annað en himnasending fyrir mig.“ Verkirnir loksins farnir Kári Kárason segir Protis Liði hafa reynst sér afar vel en hann þjáðist af miklum verkjum um árabil í kjöl- far slyss. MYND/AÐSEND Öflug blanda úr íslenskum hráefnum Protis Liðir inniheldur Cucumaria frondosa extrakt sem unninn er úr skráp villtra sæbjúgna sem veidd eru í hafinu við Ísland. Skrápurinn er að mestu leyti úr brjóski og er því mjög ríkur af kollageni en einnig lífvirka efninu chondroitin sulphate. Kollagenið í Cucumaria frondosa extrakti er talið heilsu- samlegra en annað kollagen, þar sem það inniheldur hærra hlutfall af mikilvægum amínósýrum, og þá sérstaklega tryptophan. Þar að auki er skrápurinn mjög næringarríkur og inniheldur hátt hlutfall af sínki, joði og járni. Sæbjúgu eru oft kölluð ginseng hafsins vegna þess að þau innihalda lífvirka efnið sapónín. Túrmerik er ákaflega ríkt af jurtanæringar- efninu curcumin. Þorskprótínið í Protis Liðum er unnið samkvæmt IceProtein® tækni sem byggir á vatnsrofstækni þar sem prótínin eru meðhöndluð með vatni og ensímum og í fram- haldi síuð, þannig að prótínið samanstendur einungis af smáum, lífvirkum peptíðum. Fiskprótín sem hafa verið meðhöndluð með vatni og ensímum eru talin auð- velda upptöku á steinefnum eins og kalki, sem eru nauðsynleg til að viðhalda stoðkerfi líkamans. Protis Liðir er enn fremur með viðbættu C-vítamíni sem hvetur eðlilega myndun kolla- gens í brjóski, D-vítamíni sem er mikilvægt fyrir heilbrigði beina þar sem það stuðlar að frásogi kalks úr meltingarvegi og mangani sem er nauðsynlegt við myndun á brjóski og liðvökva. n Vörur Protis fást í öllum helstu stórvörumörkuðum og apótekum. ALLT kynningarblað 3MIÐVIKUDAGUR 19. maí 2021

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.