Fréttablaðið - 15.05.2021, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 15.05.2021, Blaðsíða 8
+ + + = 19.990 kr. A L LT ÓTA K M A R K A Ð Fjölskyldupakkinn: Fjölnir sendi inn erindi til Reykjavíkurborgar um mögu­ lega framtíðarlausn fyrir knattspyrnudeild félagsins. Knattspyrnudeild Fjölnis er sú fjölmennasta í Reykjavík. kristinnpall@frettabladid.is REYK JAVÍK Íþróttafélagið Fjölnir og fasteignafélagið Reginn sendu inn tillögu til Reykjavíkurborgar á dögunum þar sem félagið viðr­ aði hugmyndir um uppbyggingu keppnisaðstöðu Fjölnis. Samkvæmt þeim hugmyndum myndi framtíð­ arkeppnisaðstaða félagsins verða við Egilshöll þar sem félagið er nú með æfingaaðstöðu. Til þess lagði félagið fram fjögurra þrepa áfanga­ áætlun í samstarfi við Regin, sem myndi taka þátt í fjármögnuninni gegn samkomulagi um tuttugu ára leigusamning. Fyrsta skref væri að snúa gervi­ grasvellinum sem er til staðar og koma upp viðunandi keppnis­ aðstöðu sem stæðist leyfiskerfi KSÍ og UEFA með stúku fyrir allt að 1.500 manns sem væri að hluta til yfirbyggð. Næsta skref væri að byggja íþrótta­ og lýðheilsukjarna við Egilshöll sem væri samtengdur öðrum mannvirkjum sem veitti vellinum skjól. Um leið myndi kjarninn leggja grundvöll fyrir fyrirhugaða íbúðabyggð þar sem á bilinu 400­500 íbúðir gætu risið. „Félagið hefur verið í stöðugum vexti undanfarin ár og um leið vant­ ar enn löglega keppnisaðstöðu. Við erum enn að notast við keppnisað­ stöðu sem er sífellt á undanþágum og markmiðið er að finna endan­ lega niðurstöðu sem félagið getur nýtt til framtíðar. Við erum vön því að æfa úti um allt, en það væri gott að vera með heimili fyrir keppnis­ leiki og nokkurs konar hjarta fyrir knattspyrnudeild félagsins,“ segir Jón Karl Ólafsson, formaður Fjölnis, aðspurður út í erindið. „Þótt að við séum ungt félag sem er ekki með sömu sögu og hefð að baki og önnur Reykjavíkurlið erum við með flesta iðkendur í borginni. Það er ljóst af byggingaráformum næstu árin að hverfið muni stækka enn fremur. Fyrir vikið er von á fleiri iðkendum í félagið.“ Ef áformin ganga í gegn verður Fjölnir enn eitt liðið sem skiptir í upphitað gervigras, en Jón Karl segir að það hafi sýnt sig hjá öðrum félögum að nýtingin væri mun betri. „Það hefur sýnt sig hjá öðrum félögum að nýtingarhlutfallið er mun betra þegar þessi aðstaða er til staðar. Það þarf ekki að fara lengra en að sjá muninn hjá Fylki og Val. Félögin hafa dregið úr tímunum inni í Egilshöll,“ segir Jón Karl og bætir við að með því að tengja þessi mannvirki saman gæti það reynst hagstætt. „Þetta ætti að vera ódýrari kostur enda ertu ekki að byggja frá grunni heldur að hengja stúkuna við bygg­ inguna. Um leið eykst notagildið þar sem það ætti að vera hægt að nýta mannvirkin betur þegar þau eru hluti af stærri heild.“ n Vilja löglega keppnisaðstöðu fyrir fjölmennustu deild borgarinnar Samkvæmt áætlunum verður gervigrasvöllurinn færður að Egilshöll við stúku sem á að reisa þar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Við erum enn að notast við keppnisað- stöðu sem er sífellt á undanþágum og markmiðið er að finna endanlega niðurstöðu sem félagið getur nýtt til framtíðar. benediktboas@frettabladid.is KJARAMÁL Starfskjaranefnd Haga leggur til að laun stjórnarformanns­ ins hækki um 40 þúsund krónur og verði 700 þúsund á mánuði. Vara­ formaður fær einnig hækkun og fer úr 495 þúsundum í 515 þúsund. Aðrir stjórnarmenn hækka um 20 þúsund krónur og verða með 350 þúsund krónur. Þetta kemur fram í tilkynningu félagsins til Kaup­ hallarinnar. Stjórnar­ og nefndalaun tóku ekki breytingum á aðalfundi Haga árið 2020 og voru óbreytt frá starfsárinu 2019­2020. Nefndin mun svo kynna nýtt kaupréttakerfi á næsta aðal­ fundi. n Launahækkun á stjórnarmenn Aðalfundur Haga verður 3. júní. benediktboas@frettabladid.is GETRAUNIR Sunnlendingur skráði sig í sögubækurnar sem einn heppn­ asti Íslendingur síðari tíma þegar hann reyndist vera einn með allar tölurnar réttar í Lottóinu – í annað skipti á rúmum þremur árum. Í tilkynningu frá Lottó kemur fram að spilarinn fékk rúmar 10 skattfrjálsar milljónir. Maðurinn segist hafa valið sömu tölur um skeið eftir að hafa fyllst sérstakri tilfinningu þegar hann fékk þær í sjálfvali á sínum tíma. Það hugboð skilaði sínu svo sannarlega um síð­ ustu helgi. „Við sjáumst svo aftur eftir þrjú ár“, sagði sá heppni og brosti þegar hann kvaddi höfuðstöðvar Íslenskr­ ar getspár eftir að hafa fengið vinn­ inginn staðfestan í vikunni. n Vann í tvö skipti í Lottóinu með stuttu millibili Maðurinn fékk rúmar 10 milljónir. benediktboas@frettabladid.is SELTJARNARNES Starfsfólk leikskóla Seltjarnarness er ekki reiðubúið í stækkun á núverandi bráðabirgða­ húsnæði. Aðstaða fyrir nemendur og starfsfólk leikskólans sé nú þegar mjög af skornum skammti og þoli ek k i frekari f jölgun. Þetta kemur fram í bókun skóla­ nefndar Seltjarnarness sem fram fór í vikunni. Þar er bætt við að þetta hafi komið skýrt fram í málflutn­ ingi fulltrúa leikskóla í nefndinni. „Bent er á að fyrirhuguð frekari stækkun er bráðabirgðalausn og útlit fyrir að sama staða verði uppi á næsta ári við þörf á viðbótarplássi. Skólanefnd ítrekar þörfina á að hafist verði handa við byggingu nýs leikskóla sem fyrst svo við getum horft til lands í því að leysa þörf á húsnæði leikskólans til langs tíma,“ segir í bókun nefndarinnar. Minnihlutinn á Seltjarnarnesi segir í sinni bókun að fulltrúar þeirra harmi þá stöðu sem upp er komin í inntöku barna á leikskóla í bæjarfélaginu. Húsnæði skólans sé löngu komið að þolmörkum og það sama eigi við um langlundargeð starfsfólks. „Fulltrúarnir skora á bæjarráð að virða óskir stjórnenda og starfsfólks leikskólans að ekki verði enn og aftur byggt við leik­ skólann. Hagsmunir barna leik­ skólans verða ekki tryggðir með því að þrengja enn frekar að vinnuað­ stöðu og leikrými þeirra. Í staðinn óskum við eftir því að allur kraftur verði lagður í að flýta byggingu nýs leikskóla.“ n Vilja ekki enn einn plásturinn á leikskólann Bærinn stefnir á að taka inn börn frá 14 mánaða aldri inn í leikskólann. 8 Fréttir 15. maí 2021 LAUGARDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.