Fréttablaðið - 15.05.2021, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 15.05.2021, Blaðsíða 34
Fiðluleikarinn Hulda Jóns- dóttir er einn af fimm meðlimum í kvintettinum Wooden Elephant, sem gefur út áhugaverða umritun á Radiohead-plötunni Kid A í byrjun júní. johannamaria@frettabladid.is Hulda byrjaði ung að læra á fiðlu en sá sjálfa sig ekki fyrir sér sem atvinnutónlistarmann, í það minnsta ekki í fyrstu. „Ég byrjaði að læra fjögurra ára gömul. Mamma er tónlistarkennari og skráði mig á biðlista fyrir Suzuki- fiðlutíma þegar ég var á öðru ári. Í upphafi var þetta ekki mitt val, eins og algengt er, en ég man samt að mér fannst fiðlur og í raun öll strengjafjölskyldan afskaplega falleg, bæði að horfa og hlusta á, og var mjög sátt við að ég fengi að læra að spila á svoleiðis.“ Vildi rannsaka eldgos Fyrstu árin var fiðlunámið lítið annað en partur af hversdeginum eins og að fara í skólann eða á fimleikaæfingar. „Ég gat ekki séð hvernig það sem ég var að læra gæti þróast út í það sem atvinnu- tónlistarmenn gera og lét mig þess í stað dreyma um að verða ýmislegt annað þegar ég yrði stór. Á tímabili var ég mjög heilluð af hugmyndinni um að verða jarð- eðlisfræðingur og rannsaka eldgos, jarðskjálfta og flóðbylgjur. Ég veit ekki hvort það var nýtt umhverfi, tungumálið eða skólinn, en veturinn 2002-2003, þegar fjölskylda mín bjó í Minnesota, varð ég almennt áhugasamari um fiðluna og fór að æfa mig marga klukkutíma á dag að eigin frumkvæði. Þegar við fluttum aftur til Íslands lærði ég hjá Lilju Hjaltadóttur og Guðnýju Guð- mundsdóttur í Tónlistarskólanum í Reykjavík og lauk diplómanámi í Listaháskóla Íslands 2009.“ Hvað heillar þig við fiðluna sem hljóðfæri? „Þó að fiðlur séu falleg hljóð- færi að horfa á, þá er það samt tónninn og hljómurinn sem á hug minn og hjarta. Hér eru ábyggilega ýmsir ósammála, en mér finnst fátt fallegra en þegar spilað er á fiðlu af kunnáttu og næmi. Það er hins vegar líka mjög erfitt að spila vel á fiðlu og gríðarlega tímafrekt að halda sér í góðu formi, og sú áskorun heillar mig líka. Flesta daga allavega,“ segir Hulda og kímir. Fór í Juilliard Haustið 2009 flutti Hulda til New York og hóf nám við The Juilliard School. Aðalkennarar hennar þar voru Robert Mann, David Chan og Laurie Smukler og hún lauk meist- aranámi vorið 2015. Í millitíðinni, áður en hún flutti til Danmerkur, kom Hulda við í Þýskalandi. „Eftir margra ára skipulagt nám var mikil breyting að vera allt í einu í lausu lofti í nýju landi, en mjög hollt engu að síður og nákvæm- lega það sem ég þurfti á að halda á þessum tímapunkti.“ Þar fékk hún tveggja ára samning um akadem- íustöðu hjá Staatsoper Hamburg með hálfa vinnuskyldu, fyrir ungt fólk sem er að klára eða er nýbúið í námi. „Í Hamborg kynntist ég mörgum spennandi tónlistar- mönnum og spilaði á samningi hjá kammersveit sem heitir Ensemble Resonanz. Það voru brjálæðislega mikil forréttindi að fá að kynnast og vinna svona náið með þeim, en þau vinna með mörgum af albestu tónlistarmönnum heims.“ Elsta sinfóníuhljómsveit í heimi Hulda fann að lausamennskan átti ekki við hana til langframa og haustið 2017 vann hún prufuspil um fiðluleikarastöðu í Kaup- mannahöfn. „Í dag starfa ég sem uppfærslumaður 2. fiðlu í Det Kongelige Kapel í Kaupmanna- höfn, sem fróðir menn segja að sé elsta sinfóníuhljómsveit í heimi. Hljómsveitin á rætur að rekja aftur til ársins 1448 þegar Kristján konungur fyrsti lét stofna blásara- sveit við hirð sína. Við spilum mjög fjölbreytt verkefni í Det Kongelige Teater, hvort heldur er í óperu- og ballettuppfærslum sem og sinfón- íska- og kammertónlist.“ Hvernig er að vera tónlistarkona í Danmörku? „Það er á heildina litið frábært. Við fengum nýlega leyfi til að mæta aftur í vinnuna eftir langan Covid-dvala, sem er auðvitað mjög jákvætt og skemmtilegt. Hljóm- sveitin mín hefur frábæra aðstöðu og mjög góð vinnuskilyrði og réttindi og ég hef fengið alveg nýja sýn á hvað það er mikilvægt eftir heimsfaraldurinn.“ Nafnið er dulin tilvísun Hulda spilar með kvintettinum Wooden Elephant en nafnið segir hún dulda tilvísun í Trójuhestinn. „Við spilum risastór listaverk á viðarhljóðfæri en fílar eru risa- stórir og Trójuhesturinn var líka stór og byggður úr tré. Einnig erum við, líkt og hesturinn góði, ekki öll þar sem við erum séð, þar sem við notum að auki alls konar áhöld og skran til að koma verkunum til skila á sem áhrifaríkastan hátt.“ Kvintettinn kom fyrst saman á tónleikum á tónlistarhátíð í Suður-Þýskalandi í maí 2017 og á því fjögurra ára starfsafmæli í vikunni. „Við þekktumst flest innbyrðis en höfðum ekki spilað saman í þessari samsetningu. Til- viljun réð því að þetta þróaðist út í að verða eins stórt verkefni og það er orðið, því upphaflega voru þetta bara þessir einu tónleikar á þessari einu hátíð. Í salnum voru umboðs- menn frá öðrum hátíðum í salnum sem buðu okkur að koma fram á sínum hátíðum og svona hefur eitt leitt af öðru og boltinn bara rúllað áfram. Kvintettinn er mjög alþjóðlegur en við erum með fimm ríkisföng og búum í fimm löndum. Við komum upprunalega frá Írlandi, Íslandi, Bretlandi, Búlgaríu og Nor- egi og við búum í London, Kaup- mannahöfn, Berlín, Dijon og Osló. Faraldurinn hefur orsakað að það er orðið meira en ár síðan við hitt- umst síðast, en fyrir heimsfaraldur hittumst við að jafnaði 1-2 sinnum í mánuði og spiluðum á tónleikum einhvers staðar í Evrópu. Það mun koma í ljós hvernig framhaldið þróast hjá okkur þegar tónlistar- heimurinn vaknar hægt og rólega úr Covid-dvalanum, en við erum sem betur fer ennþá með töluvert af tónleikum á dagskránni fyrir árið 2022. Æðruleysi er víst dyggð,“ segir Hulda og dæsir. Eruð þið að sérhæfa ykkur í sér- stakri tónlistartegund eða kemur allt til greina? „Við sérhæfum okkur í að umrita raftónlist fyrir strengja- hljóðfæri og tökum alltaf fyrir eina heila plötu í einu. Plötur eru heildarlistaverk líkt og sinfóníur og sónötur, og þó svo að það megi vel hlusta á eitt lag í einu eða einn kafla í einu, er það allt önnur upplifun að hlusta á allt verkið frá upphafi til enda. Víóluleikarinn okkar, Ian Ander- son, á heiðurinn af útsetning- unum, en hann vinnur alla grunn- vinnuna. Svo prófum við okkur áfram á æfingum og á tónleikum, breytum og bætum eftir þörfum og prófum oft nýja hluti á sviðinu. Við notumst mikið við tónmál og tækni sem aðallega er notuð í nútímabókmenntum klassískrar tónlistar, en svo leitum við líka að innblæstri á ólíklegustu stöðum. Notumst til dæmis við mjólkur- þeytara, borvél og munnhörpur til að ná tilætluðum áhrifum.“ Endurvinna Radiohead-plötu Kvintettinn gefur út sína fyrstu plötu þann 4. júní og er platan umritun hljómsveitarinnar á Kid A eftir Radiohead. „Titillinn er Landscapes, Knives & Glue – Radiohead’s Kid A Recycled. Nafnið er í senn tilvísun í titil for- síðumyndar upphaflegu plötunnar sem Stanley Donwood gerði og í umræðuna um umhverfisvána sem veitti honum innblástur við gerð myndarinnar, og á ennþá meira erindi við okkur í dag rúmum 20 árum seinna.“ Aðspurð hvort fleiri plötur séu á döfinni, segir Hulda umritanir, ábreiður og útsetningar á verkum annarra listamanna, líkt og það sem Wooden Elephant vinnur með, á mjög gráu svæði. „Það er ekki hlaupið að því að fá tilskilin leyfi til að gefa út okkar efni á lög- legan hátt. Auðvitað vonumst við til þess að geta aflað okkur rétt- inda frá fleiri listamönnunum, en við erum ótrúlega þakklát Radio- head fyrir að hafa treyst okkur fyrir þessu verkefni.“ Fram að útgáfu er hægt að panta plötuna, á stafrænu formi og á geisladisk á bandcamp-síðu hljóm- sveitarinnar, iTunes og Amazon, og einnig er hægt að hlusta á þrjár smáskífur á flestum streymisveit- um. Eftir útgáfu verður einnig hægt að nálgast alla plötuna í streymi á Spotify og Apple Music. n Við leitum líka að innblæstri á ólík- legustu stöðum. Not- umst til dæmis við mjólkurþeytara, borvél og munnhörpur til að ná tilætluðum áhrifum. Hulda Jónsdóttir Mjólkurþeytarar, borvélar og Radiohead Hulda sá ekki fyrir að hún myndi enda sem atvinnutónlistarmaður við kon- unglega sinfóníuhljómsveit í Kaupmannahöfn. MYNDIR/PATRYCJA MAKOWSKA. LÍTTU VIÐ Á BELLADONNA.IS Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Verslunin Belladonna GOZZIP Henriette Síð tunika Fæst líka í svörtu Stærðir 40-56 Verð kr. 14.980 EIRA – stuttermatunika Fæst líka í bleiku Stærðir 42-56 Verð kr. 10.990 Við erum söngvarar framtíðarinnar! Vertu með! soffia@songskolinn.is ✆ 552 7366 INNRITUN! 4 kynningarblað A L LT 15. maí 2021 LAUGARDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.