Fréttablaðið - 15.05.2021, Blaðsíða 50
Fjármála- og efnahagsráðuneytið leitar að
framúrskarandi vörustjóra (e. product
manager) til að vera leiðandi í vöruþróun á
notendaviðmóti og notendaupplifun á vef
Ísland.is og snjallforritum Stafræns Íslands.
Starfið felur í sér ábyrgð og þátttöku
í stafrænum umbreytingarverkefnum
í samvinnu við stofnanir hins opinbera.
Umsókn þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem
gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir
hæfni. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Starfið er tímabundið til tveggja ára. Til greina kemur að
ráða tvo sérfræðinga. Laun eru skv. kjarasamningi Félags
háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins. Um fullt
starf er að ræða. Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns,
eru hvattir til að sækja um. Umsóknir gilda í 6 mánuði frá því
að umsóknarfrestur rennur út, sbr. reglur nr. 1000/2019 um
auglýsingar lausra starfa.
Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. í upplýsingatækni,
stafrænum lausnum eða tengdum greinum.
A.m.k. 5 ára reynsla í sambærilegu starfi/verkefnum.
Reynsla og þekking á vöruþróun, verkefnastjórnun og
stafrænni hönnun sem byggist á hugmyndafræði hönnunar-
hugsunar (e. design thinking).
Skilningur og þekking á notendaupplifun og reynsla af þróun
notendaviðmóts.
Greiningarhæfni, lausnamiðuð og öguð vinnubrögð.
Framúrskarandi samskiptahæfni og þjónustulund ásamt
áhuga og getu til að leiða teymisvinnu.
Þekking á sjálfsafgreiðsluferlum, stefnumótun og breytinga-
stjórnun er æskileg.
Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti er skilyrði.
Nánari upplýsingar veita:
Andri Heiðar Kristinsson (andri.kristinsson@fjr.is) og
Aldís Stefánsdóttir (aldis@fjr.is) í fjármála- og efnahags-
ráðuneytinu.
Umsóknir berist á starfatorg.is.
Umsóknarfrestur er til og með 17. maí nk.
Öllum umsóknum verður svarað.
Brennur þú fyrir bættri notendaupplifun?
Vörustjóri í fremstu röð
•
•
•
•
•
•
•
•
Intellecta ehf. Síðumúla 5 108 Reykjavík 511 1225 intellecta.is
Intellecta er sjálfstætt þekkingarfyrirtæki stofnað árið 2000. Við vinnum með stjórnendum
við að auka árangur, bæta rekstur og efla stjórnun. Ráðgjafar Intellecta hafa sterkan faglegan
bakgrunn og víðtæka alþjóðlega reynslu. Þennan grunn notum við í samvinnu við viðskiptavini
til að móta hugmyndir sem skipta máli og í innleiðingu lausna sem skila árangri.
Árangur fyrirtækja ræðst af þekkingu,
getu og reynslu starfsmanna.
Hver einstök ráðning er mikilvæg
fjárfesting og er hagur bæði fyrirtækis
og viðkomandi einstaklings að vel
takist til.
Hafðu samband við okkur og sjáðu
hvað við getum gert fyrir þig.
RÁÐNINGAR