Fréttablaðið - 15.05.2021, Page 16
ÍÞRÓTTIR
kristinnpall@frettabladid.is
FÓTBOLTI Hvort sem Chelsea eða
Barcelona hefur betur er ljóst að
það verður nýtt nafn skrifað á spjöld
sögunnar í úrslitaleik Meistara
deildar Evrópu í kvennaflokki um
helgina.
Chelsea er aðeins annað enska
félagið í 20 ára sögu keppninnar sem
leikur til úrslita en Barcelona stefnir
að því að verða fyrsta spænska liðið
til að bera sigur úr býtum í henni.
Börsungar hafa áður leikið til úrslita
en þá stóð hið ógnarsterka lið Lyon
í vegi þeirra fyrir fjórum árum. Um
leið verður þetta í fyrsta skiptið í sex
ár sem eitthvert annað lið en Lyon
verður krýnt besta lið Evrópu og
fyrsta sinn síðan 2007 sem lið utan
Þýskalands og Frakklands hampar
titlinum.
Undanfarin tvö ár hefur Chelsea
ekki tekist að komast yfir síðustu
hindrunina í átt að úrslitaleiknum
en með komu Pernille Harder hefur
öflugur sóknarleikur liðsins orðið
enn betri. Hin danska Harder og
hin ástralska Sam Kerr hafa náð
vel saman í sóknarlínunni og átt
stóran þátt í vegferð Chelsea að
úrslitaleiknum þar sem félag
ið hefur meðal annars slegið út
þýsku stórliðin Wolfsburg og Bay
ern Mün chen. Brottför hinnar
norskíslensku Maríu Þórisdóttur
til Manchester United virðist ekki
hafa sett strik í reikninginn þar
sem Chelsea varði enska meistara
titilinn eftir baráttu við Manchester
City og getur fylgt því eftir með sigri
í Meistaradeild Evrópu um helgina.
Líkt og Chelsea koma leikmenn
Barcelona inn í leikinn í Gautaborg
í sigurvímu eftir að hafa tryggt sér
spænska meistaratitilinn um síðustu
helgi þrátt fyrir að eiga átta leiki eftir.
Börsungar hafa verið óstöðvandi
í deildarkeppninni, unnið alla 26
leikina til þessa og skorað 128 mörk
en aðeins fengið á sig fimm. Þetta var
annar meistaratitill Börsunga í röð
og er Barcelona nú sigursælasta lið
Spánar frá upphafi. n
Nýtt nafn á bikarinn í Gautaborg
Danski markahrókurinn Pernille Harder hefur náð vel saman við hina ástr-
ölsku Kerr sem var markahæst á nýafstöðnu tímabili. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
hjorvaro@frettabladid.is
FÓTBOLTI Barcelona þykir líklegast
til þess að ná að landa samningum
við argentínska knattspyrnufram
herjann Sergio Agüero sem rennur
út á samningi hjá Manchester City
í sumar og hefur ákveðið að róa
á önnur mið. Barcelona, sem er í
miklum fjárhagsvandræðum, er
að leita leiða til þess að fjármagna
samninginn við þennan 32 ára
framherja sem hefur einnig leikið
með Atlético Madrid.
Þessi félagaskipti gætu hjálpað
forráðamönnum Barcelona við að
landa samningi við Lionel Messi
sem verður samningslaus í sumar.
Samlandarnir Messi og Agüero eru
góðir vinir.
Memphis Depay hefur einnig
verið orðaður við Barcelona, en þau
félagaskipti eru talin standa og falla
með því hvort Joan Laporta, forseti
Barcelona, ætli að veðja á Ronald
Koeman áfram í stjórastólnum hjá
liðinu. n
Agüero hugnast
tilboð Barcelona
Arsenal er eina enska
félagið sem hefur
unnið Meistaradeild
Evrópu í kvennaflokki.
Sergio Aguero er fjórði
markahæsti leikmaður
ensku úrvalsdeildar-
innar frá upphafi.
Njarðvíkingurinn varð fyrsti Íslendingurinn til að leika í litháísku deildinni og sló heldur betur í gegn á fyrsta ári sínu með Šiauliai. FRÉTTABLAÐIÐ/ŠIAULIAI
Tímabilið hefur verið ein
kennilegt hjá Elvari Má Frið
rikssyni á fyrstu leiktíð hans
með liði Šiauliai í Litháen.
Elvar Már segist hafa fundið
mikinn mun á sér innan
vallar eftir að kærasta hans
og barnið þeirra fluttu til Lit
háens.
hjorvaro@frettabladid.is
KÖRFUBOLTI Elvar Már Friðriksson
var á dögunum valinn verðmætasti
leikmaður litháísku efstu deildar
innar í körfubolta karla. Það sem
gerir þessa nafnbót ansi eftirtektar
verða er annars vegar að Elvar Már
leikur fyrir Šiauliai sem tryggði sér
sæti í úrslitakeppni deildarinnar
með góðum lokaspretti.
Elvar Már og liðsfélagar hans fara
inn í úrslitakeppnina með sjöunda
besta árangurinn. Hins vegar er
það svo sú staðreynd að Elvar Már
er aðeins fimmti leikmaðurinn í
sögu efstu deildar í Litháen, sem
er mikil körfuboltaþjóð, sem ekki
kemur frá heimalandinu.
Elvar Már skilaði rúmlega 15
stigum að meðaltali og átta stoð
sendingum í leikjum Šiauliai í
deildarkeppninni vetur.
„Þetta er búið að vera sveif lu
kennt og á margan hátt mjög skrýtið
tímabil. Í fyrsta lagi hefur árangur
liðsins inni á vellinum verið eins og
svart og hvítt fyrir og eftir áramót.
Eftir að hafa verið að móta liðið
framan af leiktíðinni fengum við
síðasta púslið, reynslumikinn leik
mann sem er fyrirliði lettneska
landsliðsins.
Þá fundum við taktinn og kom
umst á góðan skrið. Eftir að hafa
farið sjálfur vel af stað kom smá
lægð hjá mér í febrúar, en þá hafði
ég verið einn í nýrri borg í nýju landi
í fjóra mánuði.
Inn í það kom sóttkví og mikil
einvera þannig að ég var orðinn
frekar þungur,“ segir Elvar Már um
sitt fyrsta tímabil í Litháen.
Léttir að fá fjölskylduna
„Það sem hélt mér gangandi var
bæði það að ég vissi að fjölskyldan
væri á leiðinni út og svo stundirnar
með liðsfélögunum í landsliðinu,
Martin Hermannssyni, Hauki Helga
Pálssyni og Jóni Axel Guðmunds
syni í Call of Duty. Þar náði ég að
gleyma mér og fullnægja þörfinni
fyrir félagsleg tengsl.
Eftir að kærastan mín og barnið
okkar komu svo út í byrjun mars
léttist lundin hjá mér og ég byrjaði
að spila betur. Þetta er allt annað líf
eftir að hafa fengið þau út og það
sést berlega á mér inni á vellinum
hvað mér líður mikið betur andlega.
Við náðum sem betur fer að
koma okkur inn í úrslitakeppnina
og mætum þar hinu sögufræga liði
Rytas. Við förum inn í það einvígi
sem litla liðið en við eigum alveg
fína möguleika á að stríða þeim,
sérstaklega þar sem einvígið er upp
í tvö,“ segir landsliðsmaðurinn um
síðustu mánuði og framhaldið í Lit
háen.
„Það kom hins vegar enn eitt
stoppið í tímabilið hjá okkur, þar
sem tveir leikmenn greindust með
kórónaveiruna í vikunni og ég er
á leiðinni í seinni skimun á eftir
[síðdegis í gær]. Við erum nokkrir í
liðinu sem eru búnir að vera slappir
og með hita síðustu daga þannig
að það er bara að vona það besta í
seinni skimuninni.
Það er allavega búið að leyfa
okkur að fresta leiknum, en það var
í umræðunni að við þyrftum að gefa
leikinn ef við gætum ekki stillt upp
liði vegna veikindanna og sóttkvíar.
Þetta er f immta eða sjötta
sóttkvíin hjá mér í vetur og ég viður
kenni það alveg að þetta er orðið
frekar þreytt. Vonandi er ég Covid
laus og við getum byrjað einvígið
sem fyrst,“ segir Elvar, en planið er
að fyrsti leikur liðanna fari fram á
fimmtudaginn kemur. n
Skipst á skin og skúrir í vetur
Eftir að kærasta mín og
barnið komu svo út í
byrjun mars léttist
lundin hjá mér og ég
byrjaði að spila betur.
Elvar Már Friðriksson
hjorvaro@frettabladid.is
HANDBOLTI Arnar Gunnarsson mun
halda áfram störfum sem þjálfari
karlaliðs Neistans í handbolta en
liðið er staðsett í Þórshöfn í Fær
eyjum.
Arnar tók við þjálfun liðsins síð
asta sumar en hann hefur samhlið
því starfi verið yfirþjálfari yngri
flokka félagsins. Með nýjum samn
ingi eykst ábyrgð hans á þjálfun
elstu yngri flokka félagsins.
Neistinn hafnaði í þriðja sæti fær
eysku úrvalsdeildarinnar á nýlok
inni leiktíð en liðið tapaði svo í bik
arúrslitum fyrr á keppnistímabilinu.
F i n n u r H a n s s o n v e r ð u r
áfram aðstoðarþjálfari Arnars hjá
Neistanum en Finnur var á dögun
um ráðinn aðstoðarþjálfari færeyska
kvennalandsliðsins. n
Arnar verður
áfram í Færeyjum
15. maí 2021 LAUGARDAGUR