Fréttablaðið - 15.05.2021, Qupperneq 24
Við erum draumadúó
Fatahönnuðurinn Eygló Margrét
Lárusdóttir og listamaðurinn
og grínistinn Hugleikur Dagsson
frumsýna nýtt samstarf sitt á
HönnunarMars.
„Þetta er fatalína sem er
byggð á myndasögubókinni
Opinberun eftir Hugleik. Ég
gjörsamlega féll fyrir þeirri
bók. Litasamsetningarnar og
teikningarnar eru svo ótrúlega
fallegar og svo hef ég alltaf
verið svolítið geimnörd. Þetta
höfðaði mjög sterkt til mín,“
segir Eygló.
„Ég er bara upp með mér að
einhver hafi lesið þessa bók.
Hún var ein af mínum tilraunum
til að gera ekki kúk-og-piss en
enginn las hana því hún var
ekki kúk-og-piss. Og svo er ég
skammaður fyrir að gera bara
kúk-og-piss. „Can’t win in this
bransi, am I right?“ Það er samt
alveg smá kúk-og-piss í Opin-
berun. En ég er glaður að Eygló
notaði það ekki,“ segir Hug-
leikur og hlær.
Hvernig kom samstarfið til?
„Hugleikur vildi verða tísku-
pési,“ fullyrðir Eygló.
„Ég vildi verða tískupési,“
viðurkennir Hugleikur.
Eygló segir samstarfið hafa
gengið mjög áreynslulaust fyrir
sig.
„Eiginlega bara draumadúó.
Það hefur alltaf skipt mig mjög
miklu máli að það sjáist að
ég hafi notið þess að hanna
línurnar mínar. Að þær séu svo-
lítið skemmtilegar. Það er alveg
augljóst í þessu tilviki,“ bætir
hún við.
„Já, áreynslulaust er rétta
orðið. Hún sagði bara „ég vil
taka þetta og þetta og gera
þetta og þetta“ og ég sagði bara
„go crazy“,“ segir Hugleikur.
„Ég byrjaði að grúska í bók-
unum hans í janúar. Sá fljótt að
ég vildi vinna með geimþemað
hans í Opinberuninni. En svo á
þetta verk hins vegar eftir að
lifa að eilífu,“ segir Eygló.
„Ég skrifaði bókina 2011, held
ég. Svo lá hún í dvala í áratug og
Eygló vakti hana á hárréttum
tíma.“
Hvert er mikilvægi Hönnunar-
Mars í íslensku listasenunni?
„Ég er hrifinn af praktískri
fegurð. Og þykir hæfileikinn til
að geta dregið slíkt yfir í hina
fýsísku vídd göldrum líkastur,“
svarar Hugleikur.
„HönnunarMars er í sérstöku
uppáhaldi hjá mér. Það kemst
ekkert annað að hjá mér þá
daga enda er ég rosalega dugleg
að fara og sjá sem flest. Þetta er
bara maraþon,“ bætir Eygló við.
Eygló byrjaði að glugga í bækur Hugleiks fyrir ári. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Sýnir tillögur að nýjum líkamspörtum
Vöruhönnuðurinn Harpa Hrund
Pálsdóttir skoðar óvenjulegar
lausnir til að nýta og endurskoða
vandamálið sem skapast hefur í
heiminum vegna rusls.
„Ég lærði vöruhönnun í Lista-
háskóla Íslands. Eftir útskrift
flutti ég til Kaupmannahafnar og
fór í starfsnám hjá „altmuligt“
hönnuðinum Henrik Vibskov.
Þegar ég kom heim eftir það
ævintýri sótti ég um í MA Design
námið í LHÍ sem þeir Garðar Eyj-
ólfsson og Thomas Pausz voru
að taka yfir og þeir buðu mig
velkomna í það,“ segir hún.
Segðu mér frá verkefninu þínu
og hönnun sem þú sýnir á há-
tíðinni í ár.
„Verkefnið mitt tekur á vanda-
málinu sem rusl er. Mér fannst
kominn tími á að endurskoða
það hvernig við tæklum þetta
vandamál. Eitt skipti þegar ég
var í Sorpu fannst mér eins og
vélarnar væru að tyggja ruslið,
þá fékk ég þá hugmynd að við
gætum bara borðað ruslið okkar.
Sú hugmynd leiddi mig í rann-
sóknir á líkamanum og hverju
við þyrftum að breyta við hann
til þess að geta borðað rusl. Því
sýni ég tillögur að nýjum líkams-
pörtum,“ útskýrir Harpa.
Þessi áhugi kviknaði fyrst í
vöruhönnunarnáminu.
„Svo lá það í dvala þangað til
fyrir um tveimur árum þegar ég
þurfti að fara ansi margar Sorpu-
ferðir í vinnunni minni.“
Harpa segist oftast fá inn-
blástur úr sínu nánasta umhverfi.
„Það tengist oft einhverju sem
ég er að gera í mínum hversdegi,
eins og að fara rosa oft á Sorpu,“
segir hún og hlær.
Hvert finnst þér mikilvægi
hátíðar sem þessarar vera fyrir
íslensku listasenuna?
„Það er svo mikilvægt að sýna
sig og sjá aðra. Það er kannski
klisja en samtalið er svo mikil-
vægt og það gerist á hátíðum
eins og HönnunarMars.
Þessi HönnunarMars í ár er
mikilvægur fyrir mig því ég er
að taka þátt í fyrsta skipti með
mína eigin hönnun og er hrika-
lega spennt fyrir því með dassi
af stressi.“
HönnunarMars er nú haldinn
í þrettánda sinn, og það í maí
vegna Covid-19. Stjórnandi
hátíðarinnar, Þórey Einars-
dóttir, segir starfsmenn
og þátttakendur hafa sýnt
mikinn dugnað við að aðlaga
hátíðina breyttum aðstæðum.
Hönnunarhátíðin Hönn-unarMars er nú haldin í þrettánda skiptið og eru viðburðir henni tengdir haldnir víðs
vegar um höfuðborgarsvæðið. Um
er að ræða stærstu hönnunarhátíð
landsins, sem er haldin í maí í ár
vegna Covid-19. Hátíðin hefur þurft
að aðlaga sig breyttri heimsmynd
og var til að mynda haldin í júní í
fyrra. Þórey Einarsdóttir er stjórn-
andi hátíðarinnar.
„HönnunarMars fæddist í miðju
hruni, árið 2009. Hátíðin kemur inn
með krafti á hverju ári, veitir inn-
blástur og gleði ásamt því að varpa
ljósi á þann skapandi kraft sem
hönnunarsamfélagið hér á landi
hefur að geyma. HönnunarMars er
ein af sex borgarhátíðum Reykja-
víkurborgar. DNA hátíðarinnar er
síbreytilegt eftir því hvaða hönn-
uðir og arkitektar taka þátt hverju
sinni. Og það er akkúrat það sem
gerir hátíðina einstaka,“ segir Þórey.
Hvert er mikilvægi Hönnunar-
Mars fyrir listasenuna á Íslandi?
„Á HönnunarMars gefst tími
fyrir samtalið. Það er mikilvægt
að geta átt samtal. Og að kanna og
kynnast því hvað kollegar þínir eru
að gera. Í daglegu amstri gefst oft
ekki tími fyrir það. Þannig verða
til tengingar og þræðir sem annars
hefðu ekki orðið til. Það má segja
að HönnunarMars sé á sama tíma
uppskeruhátíð hönnunarsam-
félagsins, þar sem almenningi gefst
kostur á að sjá það sem er í gangi
hverju sinni. Hátíðin er stærsta
kynningaraflið þegar kemur að því
að miðla íslenskri hönnun og arki-
tektúr hérlendis og erlendis og því
gríðarlega mikilvægur vettvangur,“
svarar hún.
HönnunarMars er einstakur að
því leyti að allar greinar hönnunar
og arkitektúrs koma saman undir
einni regnhlíf sem skapar fjöl-
breytta dagskrá með eindæmum,
að sögn Þóreyjar.
„Það að hafa aðgengi að fjöl-
breytileikanum í formi viðburða
og sýninga er einstök upplifun.
Bæði fyrir hönnuðina, arkitektana
og almenning. HönnunarMars er
sannkölluð þátttökuhátíð þar sem
almenningi gefst einstakt tækifæri
til að fá innsýn í hugarheim hönn-
uða og arkitekta. Með dagskrá sem
er svona fjölbreytt er óhætt að full-
yrða að það sé eitthvað fyrir alla.“
Þórey viðurkennir að það hafi
sannarlega reynt á að skipuleggja
hátíð af þessari stærðargráðu í
skugga heimsfaraldurs.
„Dagsformið er misjafnt en heilt
yfir hefur það gengið vel og þökk
sé frábæru teymi HönnunarMars,
þátttakendum sjálfum og ekki síst
öllum okkar frábæru samstarfsaðil-
um. Eftir þetta ár er komin ákveðin
reynsla í að hvíla í óvissunni og að
aðlaga sig aðstæðum hverju sinni.
Þetta hefur verið mjög lærdómsríkt,
svo ekki sé meira sagt.“
Þórey segir að af nógu verði að
taka og dagskrá í boði fyrir alla
aldurshópa.
„Já, svo sannarlega. Nú er Hönn-
unarMars í maí að bresta á í allri
sinni dýrð. Á dagskránni eru um
85 sýningar sem breiða úr sér um
bæinn og er dagskráin fjölbreytt
sem aldrei fyrr og það er eitthvað
fyrir alla. Þykjó, Krakkaklúbbur-
inn Krummi á Listasafni Íslands,
Maðurinn í skóginum og Allir út
að leika eru til dæmis frábærir við-
burðir fyrir fjölskylduna að upplifa
saman svo fátt eitt sem nefnt,“ segir
hún.
Getur þú bent á einhverja við-
burði sem þú ert sérstaklega spennt
fyrir, eða er það eins og að velja á
milli barnanna sinna?
„Já, það er eiginlega eins og að
gera upp á milli barnanna sinna,“
segir Þórey og hlær. „Hins vegar
get ég lofað því að það er mikið um
áhugaverðar og skemmtilegar nálg-
anir í dagskránni, til dæmis í vinnu-
ferlum og þverfaglegum samstarfs-
verkefnum þar sem hönnuðir úr
ólíkum greinum vinna saman. Nú
geta gestir sett saman sína dagskrá
á heimasíðu HönnunarMars, sett
inn í dagatölin og skipulagt næstu
daga,“ bætir hún við.
Fyrir þá sem vilja leiðsögn um
dagskrána er tilvalið að kíkja á
dagskrársíðuna og f inna Minn
hönnunarMars, þar sem vel valdir
einstaklingar hafa rýnt dagskrána
og valið sýningar til að sjá.
„HönnunarMars býður alla vel-
komna og við erum spennt að sjá
bæinn lifna við í næstu viku.“ n
Einstakt tækifæri
til að fá innsýn í
hugarheim hönnuða
Tíðar ferðir í Sorpu urðu Hörpu Hrund
innblástur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Þórey Einars-
dóttir er
stjórnandi
HönnunarMars.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Steingerður
Sonja Þórisdóttir
steingerdur
@frettabladid.is
Það má
segja að
Hönnunar-
Mars sé á
sama tíma
uppskeru-
hátíð
hönnunar-
samfélags-
ins.
Hönnunar-
Mars
stendur
yfir 19. til
23 maí.
24 Helgin 15. maí 2021 LAUGARDAGUR