Fréttablaðið - 15.05.2021, Page 30

Fréttablaðið - 15.05.2021, Page 30
Lilja Stefáns- dóttir, Hanna Kristín Guð- jónsdóttir, Anna María Þórðar- dóttir, Sigrún Rósa Stein- dórsdóttir og Hulda Margrét Valgarðsdóttir. MYND/ÞORKELL ÞORKELSSON Á ársfundi Landspítalans 7. maí voru tólf starfsmenn heiðraðir fyrir störf sín. Þar á meðal var rakningarteymi Landspítala, sem í rúmt ár hefur rakið öll Covid-19 smit innan spítalans. Fréttablaðið ræddi við tvo starfsmenn rakningar-tey misins, þær Önnu Maríu Þórðardóttur og Hönnu K r istínu Guð- jónsdóttur, og spurði þær út í störf þeirra. „Í rauninni er Landspítalinn bara eins og sér heimur út af fyrir sig. Þetta er alveg rosalega flókinn vinnustaður og maður þarf alveg gífurlega mikla þekkingu á starf- semi og ferlum spítalans til að átta sig á dreifingu veirunnar,“ segir Anna María, sem auk vinnu sinnar í rakningarteyminu er sérfræðingur í hjúkrun hjá gæðadeild spítalans. Anna segir smitrakningu innan spítalans vera töluvert frábrugðna þeirri vinnu sem smitrakningar- teymi almannavarna fæst við úti í samfélaginu. „Þegar einstaklingur sem er smit- aður hefur haft einhvern kontakt við spítalann, þá erum við að tala um sjúklinga, aðstandendur, starfs- menn og gesti, þarf að hafa uppi á öllum þeim sem mögulega hafa komist í samband við hann og upp- fylla skilmerki fyrir útsetningu,“ segir Anna. Skilmerkin fyrir útsetningu sem bæði rakningarteymi Landspítala og rakningarteymi almannavarna notast við, eru þau að einstaklingur hafi verið í samskiptum við smit- aðan einstakling í minna en tveggja metra fjarlægð í meira en fimmtán mínútur til að teljast í smithættu. „Síðan hefur komið í ljós að við styttri snertingu við nánar aðstæð- ur er líka mikil hætta á smiti. Til dæmis þegar verið er að sinna sjúklingum, gefa súrefni og lyf, þá er miklu meiri smithætta heldur en almennt gerist,“ segir Anna. Mikil rafræn vöktun Ljóst er að þegar kemur að því að greina ferðir smitaðra einstaklinga innan Landspítala, er nauðsynlegt að fara út í mikla rannsóknarvinnu. Aðspurð um hvort að líkja mætti rakningarteyminu við spæjara, segir Hanna Kristín það ekki vera svo fjarri lagi. „Já, það má segja að það sé eins og að vera spæjari. Við Anna María ræddum oft um það á þessum dögum þegar mest var að gera að maður þyrfti að hafa gríðarmikla þekkingu á starfsemi spítalans og verkferlum, en ekki síður á húsa- kynnum og starfsfólki. Þar sem við höfum báðar unnið í fjöldamörg ár á spítalanum höfðum við þessa þekkingu,“ segir Hanna Kristín, en auk vinnu hennar í rakningar- teyminu er hún bæði hjúkrunar- fræðingur og ljósmóðir og starfar hjá gæðadeild spítalans. Anna María segir fyrsta skref rakningarinnar yfirleitt vera að ræða við þann smitaða, ef það er hægt. Í tilfellum þar sem hinn smit- aði er kominn inn á gjörgæslu eða í öndunarvél er slíkt þó augljóslega ekki í boði. „Ef það er mögulegt þá byrjar maður á að tala við þann smitaða og spyrja hann, hvert fórstu og hvern hittirðu? Samhliða því höfum við náttúrlega alls konar hjálpartæki, það er ótrúlega mikil rafræn vökt- un. Maður getur séð hverjir eru inn- stimplaðir á hverja einingu á hverri stundu sem að hafa þá mögulega komist í snertingu við viðkomandi,“ segir Anna María. Því næst þarf að tala við alla starfsmenn spítalans sem gætu hafa verið útsettir fyrir smiti, eða biðja stjórnendur að tala við þá, ef um er að ræða stórar einingar. Bara lítill hlekkur í stórri keðju Snertifletir þrifnir oft á dag „Alls staðar þar sem smitaður ein- staklingur fer, þarf að skoða hverjir voru þar á sama tíma og hverjir eru mögulegir snertifletir og panta þrif. Það eru gífurlega mikil þrif sem þurfa að fara fram þar sem smit- aður sjúklingur hefur verið,“ segir Anna og bætir við að í faraldrinum hafi almenn þrif á spítalanum verið aukin til muna, til dæmis séu allir snertifletir þrifnir fjórum sinnum á dag. Í þeim tilfellum þar sem er ekki hægt að rekja ferðir smitaðra ein- staklinga nákvæmlega þarf rakn- ingarteymið að kasta út víðu neti og jafnvel senda heilu deildirnar í skimun og úrvinnslusóttkví. Anna María segir fólk aldrei sent í sóttkví nema það sé rökstudd ástæða, enda sé sóttkví bæði íþyngjandi fyrir þá sem í henni lenda og raski miklu í starfsemi spítalans. „Landspítalinn er þannig stofn- un að það er aldrei hægt að loka honum. Þannig að hlutverk okkar var líka það að setja fólk í mismun- andi sóttkvíar,“ bætir Hanna Kristín við. Starfsmenn Landspítalans geta fengið undanþágu frá sóttvarna- reglum almannavarna til að sinna sínu starfi, þrátt fyrir að vera skráðir í almenna sóttkví. Þeir vinna þá samkvæmt mjög ströngum reglum í fullum hlífðarbúnaði til þess að tryggja öryggi sjúklinga og halda starfseminni gangandi. Vakin og sofin yfir veirunni Starfsmenn Landspítala hafa verið í framlínunni í baráttunni við COVID-19 sjúkdóminn frá upphafi faraldursins. Hanna Kristín og Anna María segja báðar að starf þeirra hafi oft verið mjög krefjandi og sum sím- tölin hafi verið erfiðari en önnur. „Já, vissulega var þetta oft erfitt. Fólki leið oft illa og þurfti stuðning og þetta voru stundum nokkur samtöl. Fólk var hrætt og óttaðist um fjölskyldu sína,“ segir Hanna Kristín og bætir við að í þessu séu hjúkrunarfræðingar góðir. Þegar faraldurinn stóð sem hæst voru að greinast allt að hundrað manns á dag úti í samfélaginu. Anna María segir það hafa verið mjög krefjandi að fylgjast með því hverjir þeirra tengdust Landspítal- anum. Stöðugt þurfti að fylgjast með hvort einhverjir hinna smit- uðu væru starfsmenn, inniliggjandi sjúklingar eða hefðu einhver tengsl við spítalann. „Maður er bara búinn að vera alveg vakinn og sofinn yfir þessu í rúmt ár. Fyrir utan smá „honey- moon“ síðasta sumar,“ segir Anna María kímin. Mikil samstaða á spítalanum Hanna Kristín segir mikla samstöðu hafa ríkt á milli rakningarteymisins og annars starfsfólks spítalans í gegnum faraldurinn. „Samstaðan hjá okkur var allt- af mjög góð en auðvitað er þetta mjög sérkennileg staða að vera alltaf heima hjá sér. Mann vantaði kannski tengslin við sitt fólk,“ segir hún en starfsmenn rakningarteym- isins hafa nánast eingöngu unnið í fjarvinnu undanfarið ár. Anna María tekur undir það og segir það hafa verið frábært hversu hreinskilnir og samvinnufúsir starfsmenn spítalans hafi verið. „Það eru einhvern veginn allir í sama liði og það vill enginn vera sá aðili sem dreifir veirunni, þannig að það eru allir alveg ótrúlega jákvæðir og gera í rauninni allt sem þeim er fyrir lagt til að koma í veg fyrir það. Margir hafa þurft að færa alveg ótrú- legar fórnir og gera það alveg mögl- unarlaust,“ segir hún. „Það hefur verið aðdáunarvert að fylgjast með því,“ bætir Hanna Kristín við. Allt í einu komin með ægivald Aðspurð um hvort það hafi ekki verið sérstakt að fá allt í einu vald til þess að skipa fólki í sóttkví segir Anna María svo vera. „Já, mér fannst ég allt í einu vera komin með svona ægivald yfir fólki og gat bara sveif lað töfrasprota. Sérstaklega í fyrstu bylgjunni þegar sóttkví var 14 dagar, það voru mjög stórar ákvarðanir sem maður var að taka með líf fólks og samstarfs- félaga,“ segir Anna og tekur fram að henni hafi þótt sérstaklega erfitt að skipa fólki sem eru sérfræðingar á sínu sviði í sóttkví. Eins og áður sagði var rakningar- teymið heiðrað á aðalfundi Land- spítala fyrir störf sín og segir Hanna Kristín það hafa verið einstaklega ánægjulegt. „Það var mjög ánægjulegt fyrir okkur að upplifa að það var tekið eftir okkar störfum.“ Anna María tekur undir það en ítrekar þó að rakningarteymið hefði aldrei getað sinnt störfum sínum ef ekki hefði verið fyrir gott samstarf við alla aðila tengda Landspítal- anum. „Við erum bara einn lítill hlekkur í þessari keðju. Þetta hefði ekkert verið hægt nema af því allir starfs- menn Landspítalans, sjúklingar, aðstandendur og gestir eru í sama liðinu,“ segir Anna María að lokum. n Mér fannst ég allt í einu vera komin með svona ægivald yfir fólki og gat bara sveiflað töfra- sprota. […] það voru mjög stórar ákvarð- arnir sem maður var að taka með líf fólks. Anna María Þórisdóttir, sérfræð- ingur í hjúkrun hjá Landspítala Rakningarteymi Landspítala nýtir sér ýmis gögn við vinnu sína, þar á meðal rafræna vöktun. MYND/ÞORKELL ÞORKELSSON Þorvaldur S. Helgason thorvaldur @frettabladid.is 30 Helgin 15. maí 2021 LAUGARDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.