Fréttablaðið - 15.05.2021, Qupperneq 38
Umsóknarfrestur til 27. maí
Sjá nánar á Job
Læknir óskast við umsjón
klínískra rannsókna
Deildarstjóri fræðsluþjónustu
Suðurnesjabæjar
Suðurnesjabær auglýsir stöðu deildarstjóra fræðslu-
þjónustu á fjölskyldusviði lausa til umsóknar.
Suðurnesjabær er næst stærsta sveitafélagið á Suður-
nesjum með um 3.700 íbúa og um 280 starfsmenn. Í Suður-
nesjabæ eru 2 leikskólar, 2 grunnskólar og tónlistarskólar.
Áhersla er að hjá sveitarfélaginu starfi fólk sem getur
veitt bestu þjónustu sem völ er á af þekkingu, ábyrgð og
metnaði. Fjölskyldusvið er samþætt þjónustueining og til
þess heyrir félags-, frístunda- og fræðsluþjónusta. Þá
sinnir fjölskyldusvið einnig félags- og fræðslumálum fyrir
sveitarfélagið Voga á grundvelli samnings, þar sem er
einn leikskóli og grunnskóli.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Stýra og bera ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi
fræðsludeildar.
• Eftirfylgni með lögum um leik-, grunn- og tónlistaskóla
og viðeigandi reglugerðir.
• Eftirlit og umsjón með aðbúnaði, skipulagi og árangri
skólastarfs í samvinnu við skólastjórnendur.
• Stuðningur og ráðgjöf við skólastjórnendur og aðra
forstöðumenn sem undir deildina heyra.
• Tengiliður skóla við mennta- og menningarmálaráðu-
neytið og Samband íslenskra sveitarfélaga.
• Teymisvinna þvert á deildir og stofnanir sveitar-
félagsins.
• Starfmaður fræðsluráðs Suðurnesjabæjar og sveitar-
félagsins Voga.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari.
• Framhaldsnám í stjórnun eða menntunarfræðum
æskileg.
• Farsæl reynsla af kennslu, stjórnun og mannaforráðum.
• Haldbær reynsla af áætlunargerð og greiningum.
• Þekking og reynsla í opinberri stjórnsýslu er æskileg.
• Leiðtogahæfni og góð færni í mannlegum samskiptum.
• Skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
• Hæfni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku.
Umsóknarfrestur er til og með 30. maí 2021
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til
að sækja um.
Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningar-
bréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og
rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starf deildarstjóra
fræðsluþjónustu.
Umsjón með starfinu hefur Guðrún Björg Sigurðardóttir,
sviðsstjóri fjölskyldusviðs, netfang
gudrun@sudurnesjabaer.is eða í síma 425-3000.
Umsóknum skal skilað á rafrænu formi á netfangið
afgreidsla@sudurnesjabaer.isSterk tengsl
í íslensku atvinnulífi
hagvangur.is
Vegna aukinna umsvifa leitum við að metnaðarfullum og drífandi aðila í starf viðskiptastjóra í
einkabankaþjónustu sem heyrir undir markaði í skipuriti bankans. Einkabankaþjónusta Arion banka
býður efnameiri einstaklingum og lögaðilum upp á sérsniðna fjármálaþjónustu. Hver viðskiptavinur
hefur sinn eigin viðskiptastjóra sem sér um eignasafnið og fjárfestir með markmið hans að
leiðarljósi. Viðskiptastjóri fylgist náið með hreyfingum á markaði og gerir breytingar samkvæmt
fyrirfram ákveðinni fjárfestingarstefnu sem mótuð er í samræmi við þarfir viðskiptavinar.
Arion banki atvinnaarionbanki.is
· Metnaður, samviskusemi og sjálfstæð vinnubrögð
· Drifkraftur og frumkvæði við öflun nýrra viðskiptavina
· Framúrskarandi samskiptahæfni
· Hæfni og geta til að tjá sig í ræðu og riti
· Háskólamenntun sem nýtist í starfi
· Próf í verðbréfaviðskiptum er æskilegt
· Reynsla af störfum á verðbréfamarkaði er kostur
Viðskiptastjóri í
einkabankaþjónustu
Nánari upplýsingar um starfið veita Kolbeinn Þór Bragason, forstöðumaður einkabankaþjónustu,
kolbeinn.bragason@arionbanki.is, og Hanna María Pálmadóttir mannauðsstjóri,
hanna.maria.palmadottir@arionbanki.is.
Umsóknarfrestur er til og með 23. maí 2021. Sótt er um starfið á www.arionbanki.is.
Fullum trúnaði er heitið og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur
verið tekin.
Hæfniskröfur
· Umsjón með eignasöfnum
viðskiptavina og fjárfestingar
· Samskipti og þjónusta við
viðskiptavini
· Greining fjárfestingartækifæra
· Öflun nýrra viðskiptavina
· Kynningar og gerð upplýsingaefnis
Helstu verkefni
4 ATVINNUBLAÐIÐ 15. maí 2021 LAUGARDAGUR