Fréttablaðið - 15.05.2021, Qupperneq 90
Dagdraumar er dansverk
fyrir börn sem er frumsýnt í
dag. Það er samstarfsverkefni
Ingu Marenar Rúnarsdóttur
og Júlíönnu Láru Steingríms-
dóttur sem sér um búninga og
sviðshönnun. Þær hafa starfað
mikið saman í gegnum tíðina.
Danshöfundurinn Inga Maren
sagði vinkonu sinni og reglulegri
samstarfskonu, búninga- og sviðs-
myndahönnuðinum Júlíönnu Láru
Steingrímsdóttir, frá hugmynd sinni
að barnabók í flugvél á leið frá Cann-
es. Júlíönnu Láru fannst sagan vera
sniðin fyrir dansverk fyrir börn og
í dag mun Íslenski dansflokkurinn
frumsýna dansverkið Dagdraumar.
Verkið fjallar um unga stúlku sem
leggur land undir fót og ferðast um
undur veraldar, um skóg og yfir sjó,
finnur dýr og ævintýri. Sýningin
er hin glæsilegasta og mikið hefur
verið lagt upp úr búninga- og sviðs-
myndahönnun. Hvort tveggja
er í höndum Júlíönnu Láru, leik-
mynda- og búningahönnuðar. Hún
hefur starfað við kvikmyndagerð og
í leikhúsi frá því að hún útskrifaðist
úr Central Saint Martins listaháskól-
anum í London árið 2010.
„Ég hef starfað reglulega hjá
Íslenska dansflokknum síðan 2012.
Móðir mín er kjólameistari og hefur
starfað í leikhúsi frá því að ég man
eftir mér, þannig að ég ólst upp í
leikhúsinu. Ég byrjaði til dæmis að
vinna baksviðs í Borgarleikhúsinu
meðfram náminu þegar ég var ung-
lingur í Verzló. Þar kynntist ég bæði
Ingu Maren, danshöfundi verksins,
og Ásgeiri Helga sem dansar í verk-
inu. Við höfum unnið mikið saman
í gegnum tíðina og þau dönsuðu til
dæmis í lokaverkefninu mínu úr
Central Saint Martins.
Við þrjú vorum einmitt í flugvél á
leiðinni frá Cannes fyrir nokkrum
árum þar sem við vorum að sýna
dúett eftir Ingu Maren og Ásgeir
Helga, þegar Inga Maren segir mér
frá hugmynd að barnabók sem hún
var búin að ganga með í maganum.“
Eftir að Inga Maren sagðiJúlíönnu
söguna hvatti hún hana til að vinna
frekar með hugmyndina.
„Ég sagði við hana að þetta væri
auðvitað fullkomin saga til að gera
dansverk fyrir börn, en það er ein-
mitt verkið sem við erum að frum-
sýna í dag. Í millitíðinni unnum við
Inga til dæmis verkið Ævi þar sem
Inga Maren samdi og dansaði sóló,
ég gerði leikmynd og búninga. Svo
erum við með annað verk í pípun-
um á næsta leikári sem ber titilinn
Þoka.“
Júlíanna Lára segir að þeim Ingu
þyki best að vinna náið saman frá
byrjun og byrja löngu áður en dans-
ararnir koma að verkinu.
„Okkur finnst gott að vera komnar
með drög að leikmynd, búningum,
tónlist og hreyfiefni áður en við
byrjum að æfa. Þegar við byrjuðum
að vinna Dagdrauma var fyrst á
dagskrá að finna út hvaða dýr væri
Draumkenndir
búningar í
Dagdraumum
Júlíanna Lára Steingrímsdóttir.
MYND/SAGA SIG
Júlíanna ákvað að nýta sem mest úr geymslum Dansflokksins í gerð búninganna.
MYND/HÖRÐUR SVEINSSON
Mikil hugsun fór í hvaða dýr væri skemmtilegt að túlka með dansi og búningum.
MYND/HÖRÐUR SVEINSSON
Júlíanna Lára
segir mikilvægt
að passa upp
á hreyfigetu
þegar búningar
eru hannaðir
fyrir dansverk.
MYND/HÖRÐUR
SVEINSSON
Það stendur til
að fara á flakk
með verkið og
því var mikil-
vægt að sviðs-
myndin væri
hreyfanleg.
MYND/HÖRÐUR
SVEINSSON
Steingerður
Sonja Þórisdóttir
steingerdur
@frettabladid.is
skemmtilegt að túlka, það var mikil-
vægt að hvert dýr væri með eftir-
sóknarverðan eiginleika, slangan
er til dæmis liðug, hérinn hleypur
hratt og hoppar hátt og svo fram-
vegis. Um leið og dýrin voru ákveðin
sá ég búningana ansi skýrt fyrir mér
og vissi nákvæmlega hvernig ég vildi
hafa þá.“
Hún segir að það þurfi að hugsa
út í margt þegar búningar eru
gerðir fyrir leiksýningu og sérstak-
lega fyrir dansverk, þar sem hreyfi-
getan þarf að vera einstaklega góð
og sniðin eftir því.
„Einnig fannst mér mikilvægt
að leyfa líkömum dansaranna að
njóta sín og ég vildi líka ekki fela
andlit þeirra, því að mínu mati eru
dansarar einstaklega góðir í að tjá
tilfinningar án orða. Leikmyndin
var síðan fyrst og fremst hugsuð
sem leikmynd sem auðvelt væri að
ferðast með og hægt að setja upp
í hvaða rými sem er. Við fengum
síðan Auði Þórhallsdóttur til liðs
við okkur og hún teiknaði fyrir
okkur allar fallegu myndirnar sem
skreyta leikmyndina,“ útskýrir Júlí-
anna Lára.
Mikil áhersla var lögð á að nýta
það sem til var og hófst ferlið með
því að farið var í gegnum geymsl-
urnar.
„Ég safnaði saman öllu sem ég
gat mögulega nýtt úr geymslum
Dansflokksins, til dæmis eru fjaðr-
irnar á svaninum úr blævængjum
úr verki sem ég gerði fyrir flokkinn
fyrir nokkrum árum og sjórinn úr
gömlum samkvæmiskjólum. Boð-
skapur verksins er einmitt að vera
ánægður með sjálfan sig og það sem
maður hefur.“ n
Boðskapur
verksins er
einmitt að
vera
ánægður
með sjálfan
sig og það
sem maður
hefur.
54 Lífið 15. maí 2021 LAUGARDAGUR