Fréttablaðið - 29.05.2021, Síða 4
BJÓÐUM UPP Á 37” - 40” BREYTINGAPAKKA
BREYTINGAVERKSTÆÐI ÍSBAND,
SMIÐSHÖFÐA 5, SÉRHÆFIR SIG Í
BREYTINGUM Á RAM PALLBIFREIÐUM.
ÍSBAND UMBOÐSAÐILI RAM Á ÍSLANDI
RAM 3500
BÍLL Á MYND RAM 3500 LARAMIE SPORT MEGACAB MEÐ 35” BREYTINGU
VERÐ FRÁ 7.421.210 KR. ÁN VSK.
9.202.300 KR. M/VSK.
UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR
S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
n Tölur vikunnar
900
manns hafa nýtt sér átakið
Hefjum störf.
6
mánaða töf varð á
dómsmáli vegna
dómaraskorts.
70
prósent svarenda í könnun
sjá fram á að fjölga starfs-
fólki á næstu þremur
mánuðum.
5
þúsund krónur er andvirði
nýrrar ferðagjafar stjórnvalda
til landsmanna.
309
þúsund krónur eru lágmarkslaun
flugmanna hjá Play samkvæmt
kjarasamningi.
n Þetta sögðu þau
Hannes
Pétursson
rithöfundur
Græðgi útgerð-
arauðvaldsins
er hemjulaus.
Leigugjald af
fiskveiðiauð-
lind þjóðarinnar er fyrir þeim
óréttlátur, ef ekki lagalaus skattur.
Veiðikóngarnir segja það ef til vill
ekki bláköldum orðum, „en maður
heyrir andardráttinn“ eins og þar
stendur. n
Katrín
Kristjana
Hjartardóttir
stjórnmála-
fræðingur
Stjórnendur
þurfa að hætta
að einblína á líf-
aldur starfsmanna og einblína mun
fremur á vilja og áhuga eldra fólks
til þess að vinna. Þannig er stuðlað
að fjölbreyttara atvinnuumhverfi
þar sem allur aldur, kyn og kyn-
þættir mætast, með ólíka sýn og
upplifun. Við búum vel hérlendis,
en ekki nógu vel út frá samsetningu
ólíkra hópa, enda okkar samfélag
rótgróið og barnauppeldi oft eftir
bókinni. n
Kjartan Bjarni
Björgvinsson
formaður
Dómarafélagsins
Við umf jöllun
um aukastörf
dómara er brýnt
að hafa í huga
að enginn hópur einstaklinga á
íslenskum vinnumarkaði býr við
eins strangar takmarkanir á því að
taka að sér aukastörf og dómarar.
Dómarar geta ekki tekið að sér slík
störf nema afla fyrirfram leyfis
eftirlitsnefndar um dómarastörf.
Sú nefnd hefur að vísu veitt þá
undanþágu að slíkt leyfi þurfi ekki
til kennslustarfa í takmörkuðum
mæli. n
Formaður Félags íslenskra
atvinnuflugmanna vill að
opinberir eftirlitsaðilar kanni
lögmæti samninga Play við
Íslenska flugstéttafélagið.
„Þetta eru bara félagsleg
undirboð og ekkert annað –
alveg í sinni tærustu mynd,“
segir Jón Þór Þorvaldsson.
gar@frettabladid.is
KJARAMÁL „Að bjóða fólki upp á
þetta í óreglulegri vaktavinnu er
náttúrlega fyrir neðan allar hellur,“
segir Jón Þór Þorvaldsson, formaður
Félags íslenskra atvinnuflugmanna
(FÍA), um samninga Íslenska f lug-
stéttafélagsins (ÍFF) og flugfélagsins
Play um kjör flugmanna.
Jón Þór kveðst hafa séð samninga
Play og Íslenska flugstéttafélagsins
hvað f lugmenn snertir og segir
taxtana þar langt undir öllum
launum.
„Það er enginn maður á Íslandi
sem er að vinna fyrir 309 þúsund
krónur á mánuði í óreglulegri
vaktavinnu. Það þarf ekkert að
miða það við flugmenn, það er bara
hvergi borgað svona illa,“ segir for-
maður FÍA, sem vísar í launatöflu
f lugmanna hjá Play þar sem laun
byrjenda eru 309 þúsund krónur.
„Auðvitað hlýtur að þurfa að
skoða það hvort þetta sé hreinlega
löglegt,“ svarar Jón Þór aðspurður
hver hann telji áhrif samninga Play
og Íslenska flugstéttafélagsins vera
á stétt íslenskra atvinnuflugmanna.
„Hver gaf umboð sitt til samn-
ingsgerðar? Voru það flugmenn eða
flugfreyjur? Voru það flugvirkjar?
Hver var þá kosinn til þess að vera
í forsvari? Og ef þannig hefur verið
staðið að því; hverjir kusu þá um
samninginn?“
Jón Þór ítrekar að ekki þurfi að
horfa sérstaklega á flugmenn varð-
andi samninga Play og ÍFF.
„Þú gætir kannski séð svona taxta
fyrir ófaglært fólk í dagvinnu ein-
göngu en þú gætir aldrei séð þetta
fyrir ófaglært fólk til dæmis í vakta-
vinnu, hvað þá óreglulegri vakta-
vinnu, og alls ekki fyrir faglært fólk
sem er með 15 milljóna króna nám
á bakinu,“ segir formaður FÍA.
Aðspurður hvað FÍA geti gert
fyrir sitt leyti segir Jón Þór félag-
ið geta boðið f lugmönnum aðild
að félaginu. „Þá myndi FÍA sem
stéttarfélag geta boðist til þess að
ganga til samninga við Play fyrir
hönd þeirra sem það mundu vilja
og boðið fram aðstoð okkar þann-
ig,“ útskýrir hann.
Sem fyrr segir dregur Jón Þór lög-
mæti samninga Play og ÍFF í efa en
kveður það ekki beint í verkahring
FÍA að gera gangskör í að fá úr því
skorið. Það hlutverk hafi opinberir
eftirlitsaðilar, eins og til dæmis
Vinnumálastofnun og félagsmála-
ráðuneytið.
„Við erum með kjörna fulltrúa
sem eru í þessum hlutverkum og
hluti af okkar skattfé fer í að reka
þessar stofnanir. Ef opinberir eftir-
litsaðilar standa ekki undir sínu
lögbundna hlutverki þá má fara
að spyrja sig að því til hvers þeir
séu hreinlega. Það er nákvæmlega
þetta sem þessir eftirlitsaðilar eiga
að ganga úr skugga um og standa
vörð um. Þetta eru bara félagsleg
undirboð og ekkert annað – alveg í
sinni tærustu mynd,“ undirstrikar
Jón Þór. Skoða eigi málið í víðara
samhengi.
„Það má skoða hverjir eru á
hinum endanum í öllum þessum
málum sem hafa verið að koma upp
í íslenskri f lugstétt. Þá má nefna
Bláfugl og þetta dæmi. Af hverju
eru það Samtök atvinnulífsins sem
standa á bak við þetta? Eru þau ekki
hluti af þessum stóru Lífskjara-
samningum á vinnumarkaðnum?
Er alveg sama hvernig aðildarfélög
Samtaka atvinnulífsins haga sér?“
spyr formaður FÍA. n
Formaður segir laun flugmanna
hjá Play fyrir neðan allar hellur
Jón Þór Þor-
valdsson,
formaður
Félags íslenskra
atvinnuflug-
manna, gagn-
rýnir Play-samn-
ingana harðlega.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
Ef opinberir eftirlits
aðilar standa ekki
undir sínu lögbundna
hlutverki má fara að
spyrja sig að því til
hvers þeir séu hrein
lega.
Jón Þór Þorvaldsson, formaður
Félags íslenskra atvinnuflug-
manna.
4 Fréttir 29. maí 2021 LAUGARDAGUR