Fréttablaðið - 29.05.2021, Side 28
Franski sætabrauðskokkur
inn Aurore Pelier á sér draum
um kökuverslun í Parísarstíl í
Reykjavík og hefur sett af stað
söfnun á Karolina Fund til að
freista þess að láta drauminn
verða að veruleika.
Aurore Pelier lærði listina að útbúa alvöru franskt sætabrauð í hinum virta skóla Institut Paul Bocuse og öðlaðist í
framhaldi reynslu á virtum stöðum í
höfuðborg Frakklands. Hún starfaði
á Four Seasons George V hótelinu, KL
Pâtisserie, Un Dimanche A Paris og
Lancaster.
„Ég hef nú starfað í þessum geira
í fimmtán ár en að opna mína eigin
verslun hefur alltaf verið draumur
inn. Sá draumur varð enn sterkari
þegar ég vann við hliðina á Kevin
Lacote, frægum frönskum bakara,
fyrir opnun verslunar hans KL Pat
isserie Paris árið 2017.“
Aurore ólst upp í Angers, lítilli
borg í Anjouhéraði í vesturhluta
Frakklands, sem er rómað fyrir
matargerð sína og vín. Eftir að hafa
búið og starfað ellefu ár í París þar
sem hún byggði upp starfsferil sinn
langaði Aurore að breyta til. „Ég hef
mikinn áhuga á norrænni matar
gerð og menningunni almennt.“ Hún
hafði heimsótt Ísland tvisvar áður en
hún tók ákvörðun um að flytja hing
að árið 2019 og byrja upp á nýtt. Hún
fann fljótt að Ísland hentaði henni
fullkomlega. „Stærð Reykjavíkur er
þægileg, náttúran er innan seilingar
og samfélagsgerðin hentar mér vel.“
París bíður á sínum stað
Hún segir fjölskyldu sína dreifða um
Frakkland en að flestir vinanna séu
í París. „Ég sakna Frakklands oft,
matarins, menningarinnar, náttúru
vínanna, sætabrauðsins, listaflór
unnar og auðvitað vinanna. En ég
er að reyna að byggja eitthvað upp
í Reykjavík og er sátt við líf mitt eins
og það er í dag. París verður áfram á
sínum stað og bíður þess að ég heim
sæki hana,“ segir hún brosandi.
Aurore starfar nú sem matreiðslu
maður á veitingastaðnum Dill en
mun jafnframt verða gestasæta
brauðskokkur á kaffihúsi í sumar.
„Einnig hef ég unnið með matvæla
fyrirtækjum að framleiðslu minna
eigin makkaróna og aðstoðað við
ýmsa viðburði.“
Eins og fyrr segir dreymir Aurore
um að opna sína eigin sætabrauðs
verslun í frönskum anda en hún seg
ist strax hafa fundið að það vantaði
hér á landi. Til þess að draumurinn
geti orðið að veruleika hefur hún
sett af stað söfnun á Karolina Fund
þar sem hægt er að leggja verkefn
inu lið með því að kaupa af henni
sætindi eða námskeið í franskri
sætabrauðsgerð.
Vantaði hágæða sætabrauðsbúðir
„Þegar ég f lutti til Íslands tók ég
eftir að það voru ekki til franskar
hágæða sætabrauðsbúðir og mig
langar til að verða sú fyrsta til að
opna slíka í þessu yndislega landi.
Þetta yrði kökuverslun í Parísarstíl
þar sem boðið yrði upp á hágæða
sætabrauð, allt heimabakað að
sjálfsögðu. Mér finnst gaman að
bjóða upp á franska klassík eins og
sítrónu marenstertu Saint Honoré,
sem er klassískur franskur eftirrétt
ur, eða makkarónur. En svo er líka
enn skemmtilegra að gefa þessum
frönsku réttum smá íslenskt ívaf,
eins og til dæmis eldfjallið með
reyktu súkkulaði ganache í tilefni
af nýja eldgosinu. Mér finnst líka
gaman að vinna með árstíðirnar og
staðbundnar afurðir og er að reyna
eftir bestu getu að nýta hráefni vel
og nota endurunnar umbúðir,“ segir
hún.
Lokastaðsetning verslunarinnar
er ekki frágengin en Aurore er bjart
sýn á að fá góða staðsetningu mið
svæðis þar sem hún geti boðið upp
á kökur, kaffi og heitt súkkulaði.
„Mig langar jafnframt að bjóða upp
á námskeið fyrir litla hópa og að
staðurinn sé þannig hannaður að
hægt sé að fylgjast með kökunum
verða til.“
Þó nokkur tími er enn til stefnu
í söfnuninni en samkvæmt reglum
Karolinasjóðsins þarf sá sem efnir
til söfnunar að ná takmarki sínu eða
öll framlög eru endurgreidd.
Skoða má söfnun Aurore á: karo
linafund.com/project/view/3335
Og á vefsíðu hennar má finna
nánari upplýsingar um hana sjálfa
og framtíðarverkefnið: sweet
aurora reykjavik.com/ ■
Sætir franskir draumar
Aurore Pelier er
franskur sæta-
brauðskokkur,
eða pastry chef.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
Aurore hefur
starfað við fagið
í fimmtán ár og
lærði við hinn
virta franska
hótelrekstrar-
skóla Institut
Paul Bocuse.
MYND/AÐSEND
Sitrónu-marengstertan er ein af þessum klassísku sem
Aurore dreymir um að bjóða upp á í verslun sinni.
Safaríkar sítrón-
ur henta einnig
vel í makka-
rónubakstur.
MYND/AÐSEND
Björk
Eiðsdóttir
bjork
@frettabladid.is
Möndludeigsbotnar
180 g smjör
¼ tsk. salt
135 g flórsykur
60 g möndlumjöl
1 mjög stórt egg
310 g hveiti
Hrærið öllu saman, f letjið deigið
þykkt út og geymið í ísskáp yfir nótt.
Fletjið þá deigið þunnt út og skerið
það út í tvo hringi, nokkru stærri en
bökuformin sem á að nota.
Smyrjið tvö bökuform, leggið
deigið yfir og þrýstið því niður,
pikkið deigbotninn með gaffli og
látið standa í ísskáp í klukkustund.
Hitið ofninn í 180 gráður og bakið
í 10 mínútur.
Sítrónukrem
75 ml sítrónusafi
90 g sykur
2 meðalstór egg
120 g smjör
Setjið sítrónusafann í pott og hitið
að suðu. Þeytið sykur og egg saman
í skál.
Hellið sjóðandi sítrónusafa smátt
og smátt út í og þeytið á meðan.
Hellið hrærunni aftur í pottinn
og hitið þar til hún þykknar og
sýður. Hrærið stöðugt í eina mínútu
á meðan hræran sýður.
Setjið smjörið í skál, hellið sjóð
heitri blöndunni yfir, hrærið vel og
látið kólna.
Hellið blöndunni jafnt í bökuskelj
arnar og frystið í klukkustund.
Ítalskur marengs
100 g eggjahvítur
280 g sykur
50 ml vatn
Setjið sykur og vatn í lítinn pott og
sjóðið þar til hitinn mælist 120 °C á
hitamæli.
Þeytið eggjahvíturnar vel í hræri
vél.
Hellið sykursírópinu saman við í
mjórri bunu og þeytið stöðugt, þar
til marengsinn er farinn að kólna.
Sprautið marengsinum á kaldar
bökurnar og notið brennara til að
brúna hann.
Bök ur nar má sk rey t a með
nýrifnum eða sykruðum sítrónu
berki.
Sítrónumarengsbaka
28 Helgin 29. maí 2021 LAUGARDAGUR