Fréttablaðið - 29.05.2021, Page 32

Fréttablaðið - 29.05.2021, Page 32
Sjöfn Þórðardóttir sjofn@ frettabladid.is Katrín Jakobsdóttir for- sætisráðherra er mikil fjölskyldumanneskja og líður best heima í faðmi fjölskyldunnar. Hún og eiginmaður hennar, Gunnar Sigvaldason, hafa búið sér og sonum sínum þremur fallegt heimili sem á sér sterka skírskotun í æsku Katrínar. Katrín hafði strax sterka skoðun á því hvernig eldhús hana langaði í. Hugurinn leitaði til uppvaxtarár­ anna og minninga frá eldhúsinu heima. Katrín segir að hjarta heimilisins slái í eldhúsinu og þar eigi fjölskyldan iðulega sínar bestu samverustundir. „Hjarta heimilisins slær í eld­ húsinu, þar borðum við saman og spjöllum um daginn og veginn,“ segir hún. Fyrsta sem vekur eftir­ tekt þegar inn kemur er eldhúsinn­ réttingin sem fangar augað og er mikil nostalgía, það er eins og við séum komin aftur til fortíðar, gamla tímans. „Eldhúsinnréttingin var teiknuð af vinkonu minni, Evu Huld Frið­ riksdóttur, þegar við fluttum inn og var smíðuð fyrir okkur. Ætlunin var að tengja við eldhúsinnrétting­ ar sjötta áratugarins enda er húsið byggt þá og ég alin upp í eldhúsi og íbúð frá þeim tíma.“ Litapallettan í innréttingunni er sérstaklega skemmtileg, er einhver saga bak við hana? „Þetta var nú bara ákvörðun – að meginliturinn væri hvítur og bjartur en svo kæmu aðeins hressari litir við sögu enda höfum við gaman af litum.“ Afslappað og heimilislegt Katrín leggur mikið upp úr því að hafa heimilið hlýlegt og öllum líði vel. „Ég held að ég sé nú frekar heimilisleg og afslöppuð. Vil gjarnan hafa snyrtilegt í kringum mig, nýta hlutina vel og hef gaman af litum í umhverfinu.“ Flestir hlutir heimilisins eiga sér sögu og eldhúsið prýða margir munir sem bæði ylja og rifja upp góðar minningar hjá Katrínu. „Þarna er til dæmis kaffikanna frá ömmu og afa, ketill sem mamma og pabbi fengu í brúðargjöf og tekanna sem vinkona mín hélt á heim frá París af því að mér fannst hún svo bráðnauðsynleg. Mikil ást á bak við þetta allt saman.“ Er einhver hlutur í eldhúsinu sem þú heldur meira upp á en annan? „Erfitt að segja. Góðir pottar eru auðvitað gulls ígildi því að mat­ seldin verður skemmtilegri og svo Katrín fékk innblástur frá æskuárunum Katrín Jakobsdóttir á sér leyndarmál í eldhúsinu sem hún upplýsir um. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Eldhúsinnréttingin var teiknuð af vinkonu Katrínar, Evu Huld Friðriksdóttur, þegar fjölskyldan flutti inn og var smíðuð fyrir þau eftir hugmyndum húsmóðurinnar. Borðkrókurinn er með stólum í stíl við innréttinguna. Þarna hafa eflaust mörg áhugaverð málefni verið rædd. Að sjálfsögðu eru bækur í eldhúsinu hjá Katrínu og ekki endilega mat- reiðslubækur. er pressukannan okkar í stöðugri notkun,“ segir Katrín. Á ísskápnum er fjöldi segla sem endurspegla mörg góð ráð og góðar lífsreglur. Katrín segir að það hafi ekki verið samantekin ráð að safna seglunum. „Eiginlega safna ég þeim ekki en þetta er samt 20 ára seglasafn. Þetta er svona eitthvað sem bara gerist. Nema auðvitað Abba­seglarnir sem voru keyptir eftir góða heimsókn á Abba­safnið í Stokkhólmi.“ Leyndarmál Katrínar Áttu þér eitthvert leyndarmál í eld- húsinu sem þú ert til í að af hjúpa? „Það er auðvitað hillupappírinn í skápunum, þekki engan annan sem er með jafn mikið dálæti á hillupappír og hann er líka mjög í anda sjötta áratugarins,“ segir Katrín og hlær. Katrínu finnst jafnframt ómissandi að hafa mat í hverju eldhúsi. „Hvernig væri eldhús án matar?“ segir hún og brosir. Stóra leyndarmálið hjá forsætisráðherra er líka afhjúpað. „Öll bestu samtölin fara fram í eld­ húsum þessa heims, held ég,“ segir Katrín að lokum. ■ Skemmtileg blanda af litum sem kemur vel út. Hjarta heimilis- ins slær í eldhúsinu, þar borð- um við saman og spjöllum um daginn og veginn. 4 kynningarblað A L LT 29. maí 2021 LAUGARDAGUR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.