Fréttablaðið - 29.05.2021, Page 38
elín@frettabladid.is
Atvinnubílstjórar ættu að athuga
loftþrýsting að minnsta kosti
vikulega. Með því að hafa jafnan
þrýsting er hægt að draga úr sliti á
hjólbörðum.
Hægt er að spara eldsneyti með
ýmsum auðveldum ráðum þegar
maður ekur á stórum bílum. Jafn
þrýstingur í öllum dekkjum vegur
þar þungt. Gæta þarf að því að
loftþrýstingur sé jafn en jafn-
framt er ekki gott að aka á slitnum
dekkjum.
Til að spara eldsneyti er sömu-
leiðis nauðsynlegt að fylgjast með
ásum bílsins og eftirvagnsins.
Lélegir ásar og hjól leiða til
aukinnar eldsneytisnotkunar og
slits á dekkjum.
Bremsur skipta líka miklu máli.
Rétt er að yfirfara allan bremsu-
búnað einu sinni á ári. Einnig skal
forðast lausagang bílsins. Lausa-
gangur er óþarfur en margir telja
að hann sé besta leiðin til að hita
upp vélina. Lausagangur eykur
eldsneyti og losun bílsins. Slökkvið
því alltaf á vélinni þegar bifreiðin
stöðvast lengur en í 20 sekúndur
Góður stöðugur hraði er skynsam-
legur til að halda eldsneytisnotkun
í jafnvægi. Með stöðugum hraða
er hægt að lækka kostnað um 10%.
Þar utan dregur það úr slysahættu
og slitum á bifreið. Best er að halda
bílnum í langferð á 80 km hraða. ■
Eldsneytið sparað
Eldsneytisverð er hátt og nauðsynlegt að kunna að spara eldsneyti.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Til að geta fengið
vinnuvélaréttindi
þarf að hafa náð 17 ára
aldri og vera með bílpróf.
Heimir Guðmundsson
Startarar og alternatorar
Fyrir flestar gerðir fólksbíla, jeppa, vörubíla og vinnuvélar.
Varahluta og viðgerðaþjónusta, gerum föst verðtilboð í viðgerðir
Bíldshöfða 14 sími 553-1244
55ár í þjónustu
við bíleigendur!
ljosboginnehf@simnet.is ljosbogi n@ljosboginn.is
Startarar og alternatorar
Fyrir flestar gerðir fólksbíla, jeppa, vörubíla og vinnuvélar.
Varahluta og viðgerðaþjónusta, gerum föst verðtilboð í viðgerðir
Bíldshöfða 14 sími 553-1244
55ár í þjó tu
við bíleigendur!
ljosboginnehf@simnet.is
Startar r og rnatorar
Fyrir flestar gerðir fólksbíla, jeppa, vörubíla og vinnuvélar.
Höfum innig varahluti í alternatora og startara
Verktakar,
Iðnaðarmenn,
Húsbílaeigendur
Vorum að fá nýja sendingu
af vinnuvéladekkjum og vörubíladekkjum,
búkolludekk-hjólaskófludekk ofl, höfum einnig boddýhluti
og ljós fyrir vörubíla.
Bíldshöfða 14 • 110 Reykjavík
s: 696 1050 • okspares@okspares.is
Eigum til á lager hljóðlátar og handtækar
rafstöðvar frá 0.7KVA upp í 3 KVA.
Getum einnig útvegað rafstöðvar
frá 6 til 1000 KVA.
Startarar og alternatorar
Fyrir flestar gerðir fólksbíla, jeppa, vörubíla og vinnuvélar.
Varahluta og viðgerðaþjónusta, gerum föst verðtilboð í viðgerðir
Bíldshöfða 14 sími 553-1244
55ár í þjónustu
við bíleigendur!
ljosboginnehf@simnet.is ljosbogi n@ljosboginn.is
Startarar og alternatorar
Fyrir flestar gerðir fólksbíla, jeppa, vörubíla og vinnuvélar.
Varahluta og viðgerðaþjónusta, gerum föst verðtilboð í viðgerðir
Bíldshöfða 14 sími 553-1244
55ár í þjó tu
við bíleigendur!
ljosboginnehf@simnet.is
Startar r og rnatorar
Fyrir flestar gerðir fólksbíla, jeppa, vörubíla og vinnuvélar.
Höfum innig varahluti í alternatora og startara
Verktakar,
Iðnaðarmenn,
Húsbílaeigendur
Vorum að fá nýja sendingu
af vinnuvéladekkjum og vörubíladekkjum,
búkolludekk-hjólaskófludekk ofl, höfum einnig boddýhluti
og ljós fyrir vörubíla.
Bíldshöfða 14 • 110 Reykjavík
s: 696 1050 • okspares@okspares.is
Eigum til á lager hljóðlátar og handtækar
rafstöðvar frá 0.7KVA upp í 3 KVA.
Getum einnig útvegað rafstöðvar
frá 6 til 1000 KVA.
ljosboginn.is
Startarar og alte natorar
Fyrir flestar gerðir fólksbíla, jeppa, vörubíla og vinnuvélar.
Varahluta og viðgerðaþjónusta, gerum föst verðtilboð í viðgerðir
55ár í þjónustu
við bíleigendur!
ljosboginnehf@simnet.is ljosbogi n@ljosboginn.is
Startarar og alternatorar
Fyrir flestar gerðir fólksbíla, jeppa, vörubíla og vinnuvélar.
Varahluta og viðgerðaþjónus tilboð í viðgerðir
ljosboginnehf@simnet.is
Startar r og rnatorar
Fyrir flestar gerðir fólksbíla, jeppa, vörubíla og vinnuvéla.
Höfum innig va ahluti í alternatora og startara
Verktakar,
Iðnaðarme n,
Húsbílaeigendur
Vorum að fá nýja sendingu
af vinnuvéladekkjum og vörubíladekkjum,
búkolludekk-hjólaskófludekk ofl, höfum einnig boddýhluti
og ljós fyrir vörubíla.
Bíldshöfða 14 • 110 Reykjavík
s: 696 1050 • okspares@okspares.is
Eigum til á lager hljóðlátar og handtækar
rafstöðvar frá 0.7KVA upp í 3 KVA.
Getum einnig útvegað rafstöðvar
frá 6 til 1000 KVA.
Þjónu ta í meira
en 60 ár
1957-2021
Verktakar,
iðnaðarmenn,
húsbílaeigendur.
6 kynningarblað 29. maí 2021 LAUGARDAGURVÖRUBÍLAR OG VINNUVÉLAR
Vinnueftirlitið býður upp á
námskeið fyrir vinnuvéla
réttindi og gefur út réttindin
að verklegu prófi loknu. Til
stendur að gera breytingar
sem breyta fyrirkomulagi
vinnuvélaréttinda töluvert
oddurfreyr@frettabladid.is
Vinnuvélaréttindi gera fólki kleift
að vinna með alls kyns vinnu-
vélar. Vinnueftirlitið býður upp á
frumnámskeið fyrir minni vinnu-
vélar sem lýkur með bóklegu prófi
og veitir rétt til að hefja verklega
þjálfun undir umsjón kennara.
Námskeiðið er haldið í Teams-
fjarfundakerfinu, er 27 tímar og
fer fram á þremur dögum, yfirleitt
innan reglubundins vinnutíma.
Aldurstakmark í frumnám-
skeiðið er 16 ár og þremur mán-
uðum fyrir 17 ára afmælisdaginn
má viðkomandi svo fara að æfa
sig á tækin undir leiðsögn ein-
staklings með kennsluréttindi
á þau. Eftir verklega þjálfun á
vinnustað fer verklegt próf fram á
vinnustaðnum með prófdómara
frá Vinnueftirlitinu. Að því loknu
er sótt um vinnuvélaskírteini sem
veitir rétt til að stjórna tilgreindri
vinnuvél.
„Önnur leið til að ná sér í vinnu-
vélaréttindi er að taka grunnnám-
skeið hjá ökuskólum ví s vegar um
landið og eru nú þrír aðilar sem
bjóða upp á vinnuvélanám í net-
kennslu,“ segir Heimir Guðmunds-
son, sviðsstjóri vinnuvélasviðs hjá
Vinnueftirlitinu. „Það hefur gengið
vel að fá fólk af öllu landinu í það
nám, þá getur það klárað þetta á
sínum hraða og svo farið í upprifj-
unarpróf og bóklegt próf áður en
það tekur verklegt próf.“
Víðtækir starfsmöguleikar
„Til að geta fengið vinnuvéla-
réttindi þarf að hafa náð 17 ára
aldri og vera með bílpróf en
fyrir kranaréttindi eru reyndar
gerðar auknar kröfur varðandi
sjón,“ segir Heimir. „Margir taka
vinnuvéla éttindi samhl ða
almennu ökunámi, það þarf bara
að vera með ökuréttindi áður en
vinnuvélaréttindin eru gefin. Þá
er fólk búið að klára frumnám-
skeiðið og æfingatímabil með
leiðbeinanda sem tekur almennt
nokkrar vikur áður en verklega
prófið fer fram.
Vinnuvélaréttindi gefa ansi víð-
tæka starfsmöguleika. Algengustu
réttindin eru lyftararéttindi,
en það sækjast líka margir eftir
réttindum á jarðvinnuvélar og
valtara,“ segir Heimir. „Starfsfólk
með vinnuvélaréttindi verður
verðmætara í umsóknum um störf
sem krefjast þess að vélar séu not-
aðar, til dæmis í byggingariðnaði,
jarðvinnu og rafvirkjun.“
Miklar breytingar fyrirhugaðar
„Samkvæmt núverandi reglum eru
13 réttindaflokkar skilgreindir,
en í síðustu viku kom tillaga að
endurskoðun á reglunum inn í
samráðsgátt stjórnvalda og nú
er verið að safna umsögnum um
hana,“ segir Heimir. „Þar er verið að
fjölga flokkunum upp í 16 til þess
að fólk sé ekki með réttindi á óskyld
tæki vegna þess að þau lenda innan
sama skráningarflokks. Fjöldi
vinnuvéla hefur tvöfaldast á síðustu
15–20 árum og um leið hefur fjöl-
breytnin aukist verulega og því
þarf að fjölga flokkunum til þess
að öryggi sé í fyrirrúmi og fólk hafi
ekki réttindi á tæki sem eru mjög
ólík þeim sem það tók verklegt próf
á.
Stóra breytingin með nýju regl-
unum sem er í vinnslu verður svo
að Vinnueftirlitið hættir að halda
vinnuvélanámskeið og ætlar bara
að sjá um prófin. Það stendur til að
láta ökuskólana um námið héðan
í frá, en þeir hafa bæði reynsluna
og sérþekkinguna sem þarf,“ segir
Heimir. „Mörg stærri fyrirtæki vilja
líka gera þetta sjálf, fyrirtæki sem
senda til dæmis 50–80 manns í
þetta nám ár hvert vilja hafa þetta
hluta af nýliðafræðslunni.
Þetta er í raun hálfgerð bylting
og með þessu er nýr kafli í sögu
vinnuvélaréttinda á Íslandi,“ segir
Heimir. „Stóru grunnnámskeið
ökuskólanna eru kennd á þremur
helgum og þar fær fólk 80 stundir
af kennslu en ein af breytingunum
sem er fyrirhuguð er að leyfa það
að námskeiðin séu brotin niður
og kennd í minni bútum. Þá er til
dæmis hægt að taka stutt námskeið
til að fá bara lyftararéttindi. Það
er ávinningur fyrir atvinnurek-
endur að missa starfsmenn bara í
stuttan tíma og senda þá á ódýrara
námskeið. Við munum svo sjá um
vinnuverndarhlutann af náminu og
halda sérstakt námskeið um slysa-
varnir og frágang á vinnustöðum.
Svo getur starfsmaðurinn komið í
bóklegt og verklegt próf hjá okkur
og fengið réttindi.
Verklega prófinu verður líka
breytt, því við ætlum að gefa út
hæfnisviðmið í öllum 16 f lokk-
unum þar sem kemur fram hvað
fólk þarf að vita og kunna,“ segir
Heimir. „Nemendur eru svo
látnir framkvæma ákveðna hluti
á tækjunum og athugað hvort öll
öryggisatriði séu í lagi. Með því
að gera hæfnisviðmið formlegri
verður prófið faglegra.
En reglurnar eru enn í sam-
ráðsgátt og við hvetjum hags-
munaaðila til að koma sínum
athugasemdum á framfæri,“ segir
Heimir.
Fjölbreyttur nemendahópur
„Það eru um 2.000–2.500 manns
sem sækja sér vinnuvélaréttindi á
hverju ári, en fjöldinn er breyti-
legur eftir ástandinu í atvinnu-
lífinu,“ segir Heimir. „Af þeim
eru um 15–20% konur og margar
þeirra koma frá stórum vinnu-
stöðum eins og álverum.
Þetta er fólk á öllum aldri, en
sá elsti sem lærði í vetur var 83
ára, og nemendur koma frá öllum
landshlutum. Við byrjuðum að
kenna frumnámskeiðin á Teams
vegna faraldursins síðasta vor
og fengum gríðarlega jákvæð
viðbrögð við því frá fólki á lands-
byggðinni, sem gat þá tekið
námskeiðið heima í gegnum beint
streymi,“ segir Heimir. „Eina
áskorunin er þegar við höldum
námskeið á öðrum tungumálum,
en þá þarf að hafa túlk með
kennaranum. Námskeiðin eru
kennd á pólsku og ensku mjög
reglulega og við höfum verið að
prófa okkur áfram með að kenna
á ýmsum tungumálum og alls
höfum við haldið námskeið á um
6–7 tungumálum.
Frumnámskeið Vinnueftir-
litsins eru haldin um það bil aðra
hverja viku um þessar mundir
og næsta námskeið hefst 1. júní.
Námskeið á öðrum tungumálum
eru líka haldin nokkrum sinnum
á ári, en það fer eftir aðsókninni,“
segir Heimir að lokum. ■
Bylting vinnuvélaréttinda í vændum
Vinnuvéla
réttindi gefa
víðtæka starfs
möguleika og
starfsfólk með
vinnuvélarétt
indi verður
verðmætara
í umsóknum
um störf sem
krefjast þess að
vélar séu not
aðar, til dæmis
í byggingar
iðnaði, málun
og rafvirkjun.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTONBRINK
Heimir Guðmundsson er sviðsstjóri
vinnuvélasviðs hjá Vinnueftirlitinu.
MYND/AÐSEND