Fréttablaðið - 29.05.2021, Page 42
Lögfræðingur
á sviði sveitarstjórnar- og byggðamála
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Embættis- eða meistaraprófi í lögfræði.
• Mjög góð þekking á stjórnsýslurétti.
• Þekking á málefnum sveitarfélaga æskileg.
• Gott vald á íslensku í ræðu og riti og ensku.
• Kunnátta í einu Norðurlandatungumáli kostur.
• Þekking á áætlunargerð æskileg.
• Frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt, sem og í hóp.
• Drifkraftur, metnaður og skipulagshæfileikar.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið auglýsir
eftir lögfræðingi á skrifstofu sveitarstjórnar-
og byggðamála.
Helstu verkefni eru m.a. afgreiðsla stjórnsýsluverkefna á
sviði sveitarstjórnar- og byggðamála, verkefni tengd eftirliti
ráðuneytisins með stjórnsýslu sveitarfélaga og utanumhald
því tengdu, vinna við gerð lagafrumvarpa og samningu reglu-
gerða, aðkoma að gerð samninga o.fl. Þá mun starfsmaður
taka þátt í starfshópum á verkefnasviði skrifstofunnar, m.a.
varðandi stefnumótun, samskipti við stofnanir, Alþingi og
almenning.
Um er að ræða fullt starf. Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi Félags háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins
og fjármálaráðherra. Athygli er vakin á því að í samræmi við byggðastefnu stjórnvalda er starfið auglýst án staðsetningar.
Nánari upplýsingar veitir Guðný E. Ingadóttir, mannauðsstjóri, í síma 545 8200.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Umsóknarfrestur er til og með fimmtudagsins 10. júní nk.
Umsóknum skal skila rafrænt á Starfatorgi – starfatorg.is eða á Alfred – alfred.is.
Athygli er vakin á því að umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
SÁLFRÆÐINGUR ÓSKAST
Á FRÆÐSLU- OG MENNINGARSVIÐ
gardabaer.is
Garðabær óskar eftir að ráða sálfræðing til starfa á fræðslu- og menningarsvið í 100% starfs-
hlutfall. Sálfræðingur hefur umsjón með greiningum, sinnir ráðgjöf og stýrir þeim verkefnum
sem undir hann heyra.
Starfssvið:
• Ráðgjöf til foreldra og starfsfólks leik- og grunnskóla
• Forvarnarstarf með áherslu á að efla skólana við að leysa mál sem upp koma
• Athuganir og greiningar á börnum, ráðgjöf og eftirfylgd mála
• Fræðsla og námskeið fyrir foreldra, nemendur og starfsfólk skóla
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Sálfræðimenntun og réttindi til að starfa sem sálfræðingur
• Þekking á þroska og þroskafrávikum barna
• Hæfni til að starfa í hópi fagaðila
• Góðir skipulagshæfileikar
• Færni í samskiptum
• Sjálfstæði í vinnubrögðum
Æskilegt er að umsækjandi hafi þekkingu á skólastarfi og reynslu af sálfræðilegri greiningu
og ráðgjöf vegna barna.
Umsóknarfrestur er til og með 7. júní 2021.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Eiríkur Björn Björgvinsson sviðsstjóri fræðslu- og
menningarsviðs í síma 525-8500 eða netfang eirikurbjorn@gardabaer.is
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Nánari upplýsingar má finna á ráðningarvef Garðabæjar https://starf.gardabaer.is
Aðstoðarskólameistari
Kvennaskólans í Reykjavík
Kvennaskólinn í Reykjavík auglýsir starf aðstoðarskóla-
meistara til næstu fimm ára laust til umsóknar frá og með
1. ágúst 2021.
Aðstoðarskólameistari er staðgengill skólameistara og
vinnur með honum við daglega stjórn og rekstur skólans
sbr. 8. grein laga um framhaldsskóla nr. 92/2008.
Aðstoðarskólameistari skal uppfylla skilyrði í ákvæðum
laga um lögverndun á starfsheiti og starfsréttindum grunn-
skólakennara, framhaldsskólakennara og skólastjóra.
Reynsla og menntun í stjórnun menntastofnana er æskileg.
Laun eru í samræmi við kjarasamning KÍ og stofnana-
samning Kvennaskólans í Reykjavík. Ekki þarf að sækja um
á sérstöku umsóknareyðublaði en í umsókn þarf að greina
frá menntun (og staðfesta með afriti af prófskírteinum),
fyrri störfum og öðru því sem umsækjandi telur að máli
skipti.
Umsóknir sendist rafrænt til Hjalta Jóns Sveinssonar
skólameistara í netfangið hjalti@kvenno.is fyrir 14. júní
2021, sem gefur jafnframt frekari upplýsingar. Öllum um-
sóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur
verið tekin. Á heimasíðu skólans, www.kvenno.is, er að
finna ýmsar upplýsingar um skólann og starfsemi hans.
Skólameistari
4 ATVINNUBLAÐIÐ 29. maí 2021 LAUGARDAGUR