Fréttablaðið - 29.05.2021, Qupperneq 48
BYGGINGARFULLTRÚI ÓSKAST TIL STARFA
Starf auglýst sbr. 8. gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Byggingareftirlit og umsjón með byggingarmálum
sveitarfélagsins.
• Ráðgjöf er varðar byggingarmál ásamt móttöku og
afgreiðslu á byggingarleyfisumsóknum.
• Framkvæmd úttekta og útgáfa leyfa ásamt yfirferð
og staðfestingu eignaskiptayfirlýsinga.
• Samskipti við hagsmunaaðila.
• Önnur verkefni sem viðkomandi er falið af
deildarstjóra skipulags- og byggingarmála.
Menntun og hæfniskröfur:
• Viðkomandi skal hafa löggildingu sem hönnuður
skv. 25. gr. mannvirkjalaga nr.160/2010.
• Æskilegt er að viðkomandi hafi góða þekkingu og
reynslu á sviði byggingarmála.
• Góð almenn tölvukunnátta. Þekking á OneSystem
er kostur.
• Mikil samskipta- og samstarfshæfni ásamt
frumkvæði og öguðum vinnubrögðum í starfi.
• Þekking í íslensku, rit- og talmáli er kostur, og
jafnframt þekking á ritun álitsgerða, minnisblaða,
bréfaskrifta og sambærilegra skjala.
• Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er
kostur.
Við leitum eftir öflugum og drífandi einstaklingi sem
sýnir metnað og frumkvæði í starfi. Borgarbyggð
hefur einsett sér að leggja aukna áherslu á
notendamiðaða þjónustuhönnun, tækniframþróun og
þjónustu við íbúa og viðskiptavini.
Í þeirri vegferð sem er framundan ætlum við að efla
þjónustu sveitarfélagsins og vera tilbúin að mæta
áskorunum framtíðarinnar. Áhersla verður lögð á
þverfaglegt samstarf í verkefnamiðuðu umhverfi og frekari
þróun innra starfs sem leiði í senn til framúrskarandi
þjónustu og öflugs vinnuumhverfis.
Í skipulags- og byggingardeild starfa sex starfsmenn,
deildarstjóri, byggingarfulltrúi, skipulagsfulltrúi auk
þriggja annarra starfsmanna. Markmið Borgarbyggðar er
að leggja áherslu á teymisvinnu og samstarf, með það
að markmiði að afgreiða mál skjótt og örugglega.
Erum við að leita að þér?
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns
eru hvattir til að sækja um.
Umsóknir skulu berast í gegnum Alfreð:
https://borgarbyggd-3.alfred.is
Nánari upplýsingar veitir Guðný Elíasdóttir deildarstjóri
skipulags- og byggingarmála,
gudny.eliasdottir@borgarbyggd.is, nr. 433-7100.
Umsóknarfrestur er til og með
5. júní 2021
Helstu verkefni og ábyrgð
• Umsjón með móttöku og skráningu erinda og skjala
• Samræmir og hefur með höndum skipulag, ábyrgð og umsjón með skjalamálum bæjarins
• Umsjón og eftirlit með skjalastefnu og þróun hennar
• Endurskoðun og mótun verklags við skjalastjórnun
• Umsjón með skjalamálum og skjalasafni, málaskrá, málalykli, geymsluskrá
• Gerð skjalavistunaráætlana, verklagsreglna og vinnuleiðbeininga fyrir skjalavörslu
• Eftirfylgni með skjalaskráningu
• Skipulagning og framkvæmd með fræðslu og kennslu í skjalamálum
• Ráðgjöf, stuðningur og þjónusta við stjórnendur og starfsmenn um skjalamál
• Þátttaka í þróun rafrænna skila til Þjóðskjalasafns
• Almenn skrifstofustörf og þjónusta við íbúa og aðra viðskiptavini
• Ýmiss sérverkefni sem upp kunna að koma og starfsmanni eru falin
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi svo sem bókasafns- og upplýsingafræði
• Mjög góð þekking og reynsla af skjalamálum er skilyrði
• Góð þekking eða reynsla á opinberri stjórnsýslu og málefnum sveitarfélaga er mikilvæg
• Þekking og reynsla af skjalavistunarkerfinu GoPro er mikill kostur
• Góð tölvuþekking og skilningur á öryggis- og upplýsingatækni er nauðsynleg
• Góð samskipta- og samstarfshæfni, jákvætt viðmót og rík þjónustulund
• Sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfni
• Frumkvæði, metnaður og nákvæmi í starfi
• Gott vald á íslensku og ensku ásamt hæfni í tjáningu í ræðu og riti
Tímabundið laust starf
Skjalastjóra Seltjarnarnesbæjar
seltjarnarnes.is
Seltjarnarnesbær auglýsir starf skjalastjóra laust til umsóknar. Um er að ræða tímabundið starf til 12 mánaða.
Starfshlutfall er 100%.
Leitað er eftir öflugum skjalastjóra til starfa á bæjarskrifstofunni og heyrir starfið beint undir sviðsstjóra
Þjónustu- og samskiptasviðs. Skjalastjóri hefur það hlutverk að leiða og þróa skjalamál sveitarfélagsins og
ber ábyrgð á að farið sé eftir gildandi lögum og reglum um skjalavistun. Í boði er áhugavert starf sem reynir
á öguð vinnubrögð, samskiptahæfni og fagmennsku.
Umsóknarfrestur er til og með 10. júní nk. Miðað er við að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf, þar sem gerð er grein fyrir
ástæðum umsóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið og upplýsingar um umsagnaraðila.
Tekið er við umsóknum í gegnum ráðningarvef Seltjarnarnesbæjar www.seltjarnarnes.is
Nánari upplýsingar veitir María Björk Óskarsdóttir, sviðsstjóri Þjónustu- og samskiptasviðs
Seltjarnarnesbæjar, maria.b.oskarsdottir@seltjarnarnes.is
Í samræmi við jafnréttisáætlun Seltjarnarnesbæjar eru einstaklingar af öllum kynjum hvattir til að sækja um.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Launakjör eru samkvæmt
kjarasamningi Seltjarnarnesbæjar og viðkomandi stéttarfélags. Jafnlaunavottun er í gildi hjá Seltjarnarnesbæ.
Sjálandsskóli
• Kennari á miðstig
• Þroskaþjálfi
Leikskólinn Akrar
• Aðstoðarleikskólastjóri
• Leikskólakennari
Leikskólinn Krakkakot
• Deildarstjórar
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns,
eru hvattir til að sækja um.
Nánari upplýsingar má finna á ráðningarvef
Garðabæjar https://starf.gardabaer.is
gardabaer.is
STÖRF HJÁ
GARÐABÆ
Leikskóli Seltjarnarness
• Deildarstjórar, fullt starf.
• Leikskólakennarar, fullt starf.
• Leikskólaleiðbeinendur, fullt starf.
Nánari upplýsingar um störfin og skil umsókna
má finna á Ráðningarvef Seltjarnarnesbæjar
www.seltjarnarnes.is – Störf í boði
Umsóknarfrestur er til 14. júní næstkomandi.
Í samræmi við jafnréttisáætlun Seltjarnarnesbæjar
eru karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um störf.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands
íslenskra sveitarfélaga og hlutaðeigandi stéttarfélaga.
Seltjarnarnesbær
Laus störf
seltjarnarnes.is
Erum við
að leita
að þér?