Víkurfréttir


Víkurfréttir - 20.01.2021, Qupperneq 7

Víkurfréttir - 20.01.2021, Qupperneq 7
afsláttur af NicotinellFruit til 31. janúar 2021. 15% Óvenju hátt hlutfall prófað eða nota nikótínpúða „Samkvæmt niðurstöðum úr könnun (Ungt fólk) frá Rannsóknum og greiningu sem gerð var í 8.–10. bekk í grunnskólum Reykjanesbæjar kom fram að óvenju hátt hlutfall nemenda hafa prófað eða nota nikótínpúða. Púðarnir eru bannaðir börnum undir átján ára aldri og varað er við notkun þeirra þar sem púðarnir geta verið banvænir. Of stór skammtur getur verið banvænn. Ég legg til að tekið verði saman forvarnarefni um skaðsemi níkótínpúða og sent til allra skóla og foreldra barna á unglingastigi í Reykjanesbæ,“ segir í tillögu sem Anna Sigríður Jóhannes- dóttir, fulltrúi D-lista í lýðheilsuráði, lagði fram á síðasta fundi ráðsins. Lýðheilsuráð tekur undir tillöguna og felur lýðheilsu- fulltrúa að móta verkefnið. Þar til löggjöf verður breytt og aðgengi takmarkað hvetur lýð- heilsuráð söluaðila til þess að tak- marka sýnileika nikotínpúða eftir fremsta megni. Geðrækt eldri borgara í Reykjanesbæ til skoðunar Lýðheilsuráð Reykjanesbæjart hefur falið lýðheilsufulltrúa að móta verkefni er snýr að eflingu geðheilsu eldri borgara í Reykjanesbæ með þátttöku allra helstu hagsmunaaðila bæjarfélagsins. Markmiðið er að bæta geðheilsu, draga úr félagslegri einangrun og efla samstarf. Dæmi um samstarfsaðila væru Félag eldri borgara á Suðurnesjum, kirkjurnar, félagsþjónustan, félagsstarf á Nesvöllum, íþrótta- og tóm- stundafulltrúi, Rauði krossinn, Öldungaráð Reykjanesbæjar og Heil- brigðisstofnun Suðurnesja. Verkefnið fellur undir aðgerðaráætlun í lýðheilsumálum 2021, segir í gögnum frá síðasta fundi ráðsins. „Ein besta ákvörðun sem ég hef tekið“ Keilir brautskráir á sjöunda tug nemenda Keilir brautskráði 66 nemendur við útskrift skólans föstudaginn 15. janúar. Vegna aðstæðna og reglna um fjöldatakmarkanir var útskriftin með öðru sniði en vanalega og fór athöfnin fram í beinu streymi. Útskriftarnemum gafst þó tækifæri til að senda inn umsagnir um námstímann sinn hjá Keili sem voru lesnar upp af forstöðumönnum í stað formlegrar ræðu fyrir hönd útskriftarnema. Við athöfnina voru 58 nemendur brautskráðir af Háskólabrú og átta nemendur úr fótaaðgerðafræði. Jóhann Friðrik Friðriksson, fram- kvæmdastjóri Keilis, flutti ávarp. Athöfnin var heldur óhefðbundin að þessu sinni, vegna aðstæðna og reglna um fjöldatakmarkanir fór út- skriftin fram í beinu streymi. Með útskriftinni hafa nú 3.984 nemendur lokið námi við deildir skólans sem var stofnaður á Ásbrú í Reykjanesbæ í maí 2007. Í lok ársins 2020 voru yfir eitt þúsund nemendur skráðir í nám og nám- skeið á vegum Keilis og hafa aldrei fleiri aðilar lagt stund á nám við skólann en nú. Munar þar mestu að nú leggja tveir árgangar stund á nám til stúdentsprófs með áherslu á tölvuleikjagerð við Menntaskólann á Ásbrú, auk þess sem mikil aukning hefur verið á ásókn í opna fram- haldsskólaáfanga við skólann. Þá býður Keilir nú í annað sinn upp á fjölmennt undirbúningsnámskeið til inntökuprófs í læknisfræði en þau hafa verið haldin undanfarin ár við góðan orðstír framhaldsskóla- nema af öllu landinu. Þá hafa aldrei fleiri einstaklingar lagt stund á nám í Háskólabrú Keilis en á núverandi námsári. Hæsta meðaleinkunn í sögu Háskólabrúar Háskólabrú Keilis brautskráði sam- tals 58 nemendur úr öllum deildum. Berglind Kristjánsdóttir, forstöðu- maður Háskólabrúar, flutti ávarp og stýrði brautskráningunni. Dúx Há- skólabrúar var Kristinn Frans Stef- ánsson sem útskrifaðist með 9,82 í meðaleinkunn – þá hæstu í sögu Háskólabrúar. Hann fékk gjafir frá Arion banka og Keili sem og viður- kenningu fyrir góðan námsárangur. Þá voru lesnar upp umsagnir út- skriftarnema. Með útskriftinni hafa samtals 2.099 nemendur útskrifast úr Há- skólabrú Keilis frá fyrstu útskrift skólans árið 2008 og hafa langflestir þeirra haldið áfram í háskólanám, bæði hérlendis og erlendis. Aldrei hafa jafnmargir nemendur stundað frumgreinanám í Keili og á þessu námsári en á annað hundrað um- sóknir bárust í fjarnám Háskólabrúar sem hófst í byrjun janúar. Þeir bætast við fjölmennasta hóp ný- nema í Háskólabrú sem hófu nám síðastliðið haust og stunda þar með núna yfir þrjú hundruð nemendur frumgreinanám í Keili. Fjórða útskrift úr fótaaðgerðafræði Átta nemendur brautskráðust í fjórðu útskrift námsbrautar Keilis í fótaaðgerðafræði. Arnar Haf- steinsson, forstöðumaður Íþrótta- akademíu Keilis, flutti ávarp og stýrði útskriftinni. Arnheiður S. Þorvaldsdóttir fékk viðurkenningu fyrir góðan námsárangur með 9,5 í meðaleinkunn en þetta er hæsta lokaeinkunn sem gefin hefur verið í fótaaðgerðafræðinámi Keilis frá upphafi. Fékk hún gjafir frá Praxis og Áræði. Þá voru lesnar upp umsagnir útskriftarnema. Með útskriftinni hafa nú um þrjátíu einstaklingar lokið námi í fótaaðgerðafræði frá Keili en skólinn hefur boðið upp á námið frá febrúar 2017. Einungis eru um tíu nemendur samþykktir í námið hverju sinni og verður næst tekið við nýnemum á haustönn 2021. Fótaaðgerðafræði er löggilt starfsgrein og teljast fótaað- gerðafræðingar til heilbrigðisstétta. Nám í fótaaðgerðafræði hjá Keili tekur eitt og hálft ár og eru áfang- arnir kenndir á þremur samliggjandi önnum. Bóklegir áfangar eru kenndir í fjarnámi með reglulegum staðlotum og verklegir áfangar eru kenndir í aðalbyggingu Keilis á Ásbrú í Reykja- nesbæ. Vilja setja upp deilileigu fyrir rafhlaupahjól í Reykjanesbæ Hopp Mobility ehf. hefur lagt fram erindi í Reykjanesbæ um að veitt sé leyfi fyrir Joseph Feyen til að opna og reka stöðvalausa deilileigu fyrir rafhlaupahjól í Reykjanesbæ. Þjónustan væri rekin sem sérleyfi (e. franchise) undir formerkjum Hopp Mobility ehf., sambærileg og í Reykjavík og Vestmannaeyjum. Í erindinu segir að sérleyfið væri tímabundið í tvö til þrjú ár sem eina deilileigan á svæðinu. Umhverfis- sviði Reykjanesbæjar hefur verið falið að gera drög að tímabundnum samningi til reynslu um afnot af bæjarlandi fyrir og rekstur á stöðva- lausri deilileigu fyrir rafhlaupahjól og leggja fyrir umhverfis- og skipu- lagsráð. Umhverfis- og skipulagsráðs Reykjanesbæjar frestaði erindin á fjarfundi sem haldinn var 15. janúar síðastliðinn. Forsetafrúin, Eliza Reid, prófaði rafhlaupahjól á síðasta ári. Mynd af Facebook-síðu Hopp vÍkurFrÉttir á SuðurnESjuM Í 40 ár // 7

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.