Víkurfréttir


Víkurfréttir - 20.01.2021, Síða 13

Víkurfréttir - 20.01.2021, Síða 13
Víkurfréttir • Fimmtudagur 23. júní 1983 „The food at the Glóðin is the best,“ Shuttle747 Crew. Þessa setningu má sjá á áritaðri mynd sem áhöfnin á geimskutlunni Enterprise afhenti Axel Jónssyni eiganda Glóðarinnar, sem flest allir Suðurnesjamenn þekkja nú orðið af eigin raun. „Þeir voru mjög ánægðir, sögðust vera búnir að fara á 30 staði í heim- inum en þetta væri sá besti matur sem þeir hefðu fengið,“ sagði Axel. Hvað þeir fengu sér? „Blandaða sjávarrétti. Vissi enginn í afgreiðslunni hverjir þessir menn voru, var ekki fyrr en þeir réttu mér myndina að uppgötvaðist.“ Glóðin er nú búin að vera opin í rétt rúma 2 mánuði og að sögn Axels hefur reksturinn gengið ágætlega og sýnt sig að hefur verið þörf fyrir svona stað hér á Suðurnesjum. Með haustinu stendur til að opna á efri hæð Glóðarinnar sal undir veislur og fundi. - pket. Víkurfréttir • Fimmtudagur 1. september 1983 „Jú, þetta þótti svaka mál á sínum tíma,“ sagði Villi í Pulsuvagninum, er hann var spurður hvers vegna hann væri með „u“ í pulsunum sfnum en ekki „y“ eins og flest allir hafa það. „Ég talaði við Guðna Kol- beins, hinn mikla íslenskufræðing í Háskólanum, og spurði hann út í þetta, og hann svaraði því á þá leið að hann myndi halda áfram að biðja um pulsu en aftur á móti skrifa pylsu. Hérna biðja allir um pulsu með „ui“, og til hvers þá að skrifa „pylsuvagninn“ í stað „pulsu- vagninn“? sagði Villi, eða Vilberg Skúlason, eins og hann heitir nú fullu nafni. Villi byrjaði með vagninn 1. apríl 1980 og var opnunartfmi óreglu- legur til að byrja með, en traffíkin jókst alltaf og Villi ákvað að snúa sér alfarið að þessu, og í dag er hann á fullu í pulsubisness og er með opið á hverjum degi frá kl. 11.30–21 virka daga en lengur um helgar, eins og flestir Suðurnesjamenn nú orðið kannast við, enda vinsælt að koma viö hjá Villa eftir böllin og fá sér í svanginn. „Jú, það er alltaf nóg að gera og traffíkin hefur aukist með hverju ári þennig að ég þarf ekki að kvarta. Um helgar er ég alltaf með einhvern með mér til aðstoðar, því eftir böllin sér- staklega myndast oft örtröð hér við vagninn.“ Eru aldrei nein læti? „Það verður að segjast eins og er, að unga fólkið í dag er mjög til fyrir- myndar. Hér hefur lögreglan aldrei þurft að hafa nein afskipti af ólátum í fólki og ég er mjög ánægður á meðan svo er,“ sagði Vilberg Skúlason að lokum, því ekki vildi blaðamaður tefja hann frá störfum, því það var kominn kúnni í lúguna sem vildi fá „eina með öllu.“ - pket. Villi lætur af hendi úrvals fæðu til eins besta viðskiptavinar Pulsuvagnsins, Gísla Jónassonar. „Maturinn á Glóð- inni er sá besti“ – sögðu áhafnarmeðlimirnir á geimskutlunni Enterprise „Ætla áfram að biðja um pulsu – en skrifa pylsu“ PEBS – Rætt við Villa í Pulsuvagninum Víkurfréttir • Fimmtudagur 13. október 1983 Um kl. 8.55 sl. laugardag er lög- reglumennirnir Hörður Óskarsson og Skúli Björnsson voru á eftirlits- ferð í nágrenni Keflavíkurhafnar, urðu beir varir við að kona hafði fallið í höfnina. Jafnhliða því sem þeir óskuðu eftir frekari aðstoð lögreglumanna, stakk Hörður sér í sjóinn á eftir konunni, sem þá var að verða örmagna. Tókst Herði að synda með konuna að báti sem þarna var, en fyrir til- viljun voru menn í lóðsbátnum og brugðu skjótt við og komu á staðinn, og með hjálp þeirra og lög- reglumannanna sem komnir voru á staðinn tókst að ná konunni upp og var hún síðan flutt í Sjúkrahúsið í Keflavík þar sem hún fékk góða aðhlynningu. Algjör tilviljun réði því að lög- reglan var þarna á staðnum og mun það hafa orðið konunni til lífs, en að sögn þeirra lögreglumanna sem þarna voru, þá sýndi Hörður Óskarsson af sér mikið afrek þarna og voru viðbrögð hans hárrétt að öllu leyti. Þessi björgun vekur upp spurn- ingu hvers vegna lögreglan hefur ekki yfir að ráða gúmmíbjörgun- arbát t.d. á kerru, eins og lögreglan í Reykjavík hefur á sínum snærum. Væru þeir með bát gæti það skipt sköpum varðandi bjarganir í höfnum Suðurnesja, því í dæminu hér að ofan er það algjör tilviljun að lóðsbátinn sé tilbúinn til aðstoðar. Hefði þetta skeð að nóttu til eða á einhverjum öörum tíma, hefði verið óvíst um örlög konunnar. Er því hér um lífsspursmál að ræða að einhverjir aðilar gefi lögreglunni gúmmíbát til björgunar úr höfnum, því þó takist að synda að þeim sem bjargarer þurfi, gengur oft illa að koma viðkomandi á land án þess að lítill bátur sé til staðar. - epj. Höröur Óskarsson lögreglu- maður sýndi mikið afrek þegar hann bjargaði konunni frá drukknun í Keflavíkurhöfn. Hörður Óskarsson, lögreglumaður, stakk sér eftir konunni Konu bjargað frá drukknun í Keflvíkurhöfn Pétur B. Snæland teiknaði skopmyndir í Víkurfréttir á níunda áratug síðustu aldar. Hann sá skoplegar hliðar á fréttum blaðsins. Hér skellti hann í mynd við frétt sem birtist á forsíðu Víkurfrétta í júlí 1983. Myndin birtist svo í næsta tölublaði á eftir sem var eftir verslunar- mannahelgi þetta herrans ár. Fréttina má lesa á for- síðu þessa blaðauka Víkur- frétta þar sem ferðast er aftur til ársins 1983. á timarit.is ÖLL BLÖÐIN FRÁ 1980 OG TIL DAGSINS Í DAG vÍkurFrÉttir á SuðurnESjuM Í 40 ár // 13

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.