Víkurfréttir


Víkurfréttir - 20.01.2021, Qupperneq 14

Víkurfréttir - 20.01.2021, Qupperneq 14
Ari Páll Ásmundsson: „Ég veit það ekki.“ Spurningin: Hvað ætlar þú að verða þegar þú ert orðinn stór? (Spurt árið 1983) Hlynur Jóhannsson: „Ég veit það ekki.“ Sævar Ingi Borgarsson: „Ég veit það ekki, kannski smiður.“ Guðbjörn Óskarsson Perrý: „Kannski læknir.“ Víkurfréttir • Fimmtudagur 13. október 1983 „Ég sjokkeraðist alveg þegar ég sá að hann tók upp þennan svakalega hníf, skildi ekkert hvað væri að ske. Maðurinn réðst á mig og stakk mig í siðuna vinstra megin. Við það kastaði ég mér niður og greip um andlitið, en hann stakk mig í herðarnar og rispaði mig einnig víðar um líkamann á meðan ég lá. Félagi hans kom þá að og tók hann með sér og hlupu þeir svo á brott. Þetta voru Bretar, en síðast þegar ég vissi hafði ekki tekist að hafa upp á þeim,“ sagði Sigurður Björgvinsson. Hann var í fríi með Keflavíkurliðinu í knattspyrnu á Benedorm, þegar hann varð fyrir þeirri óskemmtilegu reynslu að verða fyrir árás ókunnugs manns er hann var á gangi um miðjan dag ásamt einum félaga sinna úr liðinu. Sigurður var fluttur í sjúkrahús þar sem gert var að meiðslum hans, og lá þar í 2 daga. Á vinstri síðu hans er 30 cm langur skurður og þurfti um 70 spor til að sauma hann saman, en auk þess þurfti um 10 spor annars staðar á líkama hans. Sigurður kom heim aðfaranótt miðvikudags í síðustu viku og var skoðaður, en dvelur nú heima við og jafnar sig eftir þetta. „Þetta tekur rosalega á taugarnar, maður er ennþá í sjokki, þetta var svo óvænt svona um miðjan dag, að þetta skyldi ske. En málið er bara það, að svona hlutir eru alltaf að ske af og til í öðrum löndum, þó það komi ekki slík atvik fyrir hér á landi, en það er öruggt, að ég fer ekki til Spánar í bráð,“ sagði Sigurður að lokum. - pket. – segir Sigurður Björgvinsson sem varð fyrir óskemmtilegri reynslu á Benidorm Um 70 spor þurfti til að sauma saman skurðinn á síðu Sigurðar. „Sjokkeraðist alveg er ég sá hnífinn“ Víkurfréttir • Fimmtudagur 19. maí 1983 Stórbruni varð í frystihúsi Kefla- víkur hf. sl. þriðjudagskvöld er eldur kom upp í ísklefa hússins sem staðsettur er í suðurenda hússins. Allt tiltækt slökkvilið var þegar kallað út og þegar leið á kom Slökkvilið Miðneshrepps til hjálpar og voru um 50-60 slökkviliðsmenn að störfum, og einnig kom aðstoð frá slökkviliðinu á Keflavikurflug- velli sem kom með stóran tankbíl, en mjög illa gekk að ráða niður- lögum eldsins, sem breiddist út um allt frystihúsið með lofti, en með- fram allri lengjunni voru umbúða- geymslur sem eldurinn læsti sig í og varð húsið fljótt orðið alelda. Eftir fjögurra tíma slökkvistarf eða um miðnætti tókst loks að ráða niðurlögum eldsins að mestu. Frysti- húsið er mjög mikið skemmt, en þó slapp norðurendi hússins undan eldinum þar sem flökunarvélar eru staðsettar. Einnig sluppu frysti- tæki og pressur nokkurn veginn frá eldinum en þó kom þar mikill reykur og vatn. Aðstaða starfsfólks slapp einnig, beitningaraðstaða og humarvinnslan. Óvíst er að birgðir af frosnum fiski, um 13.000 kassar, hafi sloppið, en þær voru í stærsta frystiklefa hússins, en þegar blaðið fór í prentun í gær var það óljóst. Verðmæti þessa kassa eru um 18-20 milljónir króna virði. Tjónið skiptir tugum milljóna á húseign og vélabúnaði, en hjá fyrir- tækinu vinna um 120 manns og um 60-70 skólakrakkar yfir sumar- tímann, og ljóst er að margir munu missa atvinnu sína um óákveðinn tíma. Eldsupptök eru óljós ennþá, en talið er líklegt að kviknað hafi í út frá rafmagni. - pket. Þessi mynd var tekln skömmu eftir að slökkviliðið kom á vettvang. Eins og sjá má myndaðist mikill reykur sem lagðist yfir bæinn með hjálp norðanáttarinnar og olli tjóni á nærliggiandi húsum. Milljónatjón er stór- bruni varð í Keflavík hf. Víkurfréttir • Föstudagur 27. maí 1983 Vitað er að a.m.k. 11 íbúðir urðu fyrir skemmdum af völdum reyks er eldur kom upp í Keflavík hf. á dögunum, en þar sem enginn einn aðili er með rannsókn þessa máls á sinni könnu, er erfitt að vita nákvæmlega hve margar íbúðir skemmdust. Enn er unnið að rannsókn á eldsupptökum og mati brunatjónsins hjá Keflavík hf., og munu niðurstöður brátt liggja fyrir. Tjón á fiskafurðum varð mun minna en óttast var, og hefur öllum þeim fiski er átti að fara á Ameríkumarkað þegar verið skipað út í m.s. Hofsjökul, en aðeins þurfti að skipta um umbúöir á fiskinum og tók það á þriðja dag að vinna verkið. Að sögn Ólafs B. Ólafssonar, framkvæmdastjóra Keflavíkur hf., mun hum- arvinnsla fara fram í sumar þrátt fyrir brunann, en önnur frysting mun fara fram hjá Miðnesi hf., en þar verður borðum fjölgað svo fólk það sem starfaði við frystihús Keflavíkur hf. geti fengið vinnu út frá. - epj. Á annan tug húsa skemmdust vegna reyks Unnið að umbúðaskiptum. 14 // vÍkurFrÉttir á SuðurnESjuM Í 40 ár Á S U Ð U R N E S J U M Í 4 0 Á R ! Sjáðu 40 ára sögu Víkurfrétta á timarit.is Ekki er vika án Víkurfrétta!

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.