Skessuhorn - 30.06.2021, Blaðsíða 18
MiðVikuDAGur 30. júní 202118
Frá og með síðasta laugardegi, 26.
júní, gilda engar takmarkanir á
samkomum á landinu vegna Co-
vid-19. Ástandið hér á landi hef-
ur spurst út og hefur ferðamönn-
um fjölgað verulega síðustu tvær
vikurnar. Má því segja að íslenska
ferðasumarið sé farið að taka við
sér. ísland komst einmitt í heims-
fréttirnar á föstudaginn þegar öll-
um takmörkunum var aflétt inn-
anlands, fyrst allra Evrópuríkja.
umferð farþega gegnum Flugstöð
Leifs Eiríkssonar hefur fjölgað úr
um eitt til tvö þúsund á dag í um
fjögur til fimm þúsund og bara í
síðustu viku taldi blaðamaður yfir
100 vélar sem lentu á keflavíkur-
flugvelli og þá var helgin ekki tal-
in með. Blaðamaður Skessuhorns
lagði af stað í leiðangur í sannkall-
aðri sumarblíðu. Ekið var um Borg-
arfjörð og erindið að taka púlsinn á
ferðaþjónustunni í sveitinni. Bíltúr-
inn um Borgarfjörð bar þess merki
að ferðaþjónustan sé farin aftur í
gang. Mátti sjá nokkra Dacia Dus-
ter bíla á ferðinni ásamt sívinsæl-
um kúkú campers bílum sem eru
eins og lítil hús á hjólum. Þá mátti
af og til heyra framandi tungumál
á ýmsum vinsælum stoppistöðvum,
að ógleymdum íslendingum í sum-
arleyfisferðum sínum.
Fyrsta stopp, Ullarselið
á Hvanneyri
Fyrst var ekið áleiðis í nafla al-
heimsins, eins og þessi staður er oft
þekktur fyrir á samfélagsmiðlum,
eða Hvanneyri í Borgarfirði. Þar er
m.a. að finna ullarselið og Land-
búnaðarsafn íslands. „Það er eitt-
hvað af ferðafólki sem er að koma
til okkar. Mun meira en í fyrra,“
svarar Lára Lárusdóttir, starfsmað-
ur í ullarselinu, þegar blaðamaður
spyr hvort það sé eitthvað af fólki
að kíkja til þeirra. „Við finnum
að þetta er að fara af stað aftur og
erum bjartsýn á að gestum fari bara
fjölgandi,“ bætir hún kát við.
ullarselið og Landbúnaðarsafn
íslands er opið alla daga vikunnar
frá kl. 11:00-17:00. Gestir eru hvað
mest spenntastir fyrir að skoða
handspunna bandið sem er að sögn
Láru mjög sérstakt. „Fólk er bæði
að kaupa bandið og líka bara þreifa
á því. Svo er verslað svolítið af þess-
um klassísku lopapeysum. En eins
og með peysurnar úr handspunna
efninu, þá eru þær peysur mýkri.
ullin er þvegin minna og hún fær
að njóta sín mun betur. Verður ís-
lenskari fyrir vikið,“ bætir Lára við
að endingu.
Covid leiddi til jákvæðra
breytinga í Fossatúni
Steinar Berg í Fossatúni á bökkum
Grímsár segir greinilegt að ferða-
maðurinn sé að fara hægt af stað.
„Við erum að horfa á að vinna okk-
ur frá 95% tekjufalli upp í eitt-
hvað sem var eðlilegt hér áður fyrr
og erum á leiðinni, kannski komin
hálfa leið eins og staðan er í dag,“
segir Steinar jákvæður í samtali við
blaðamann. „Það er að koma inn
talsvert af pöntunum en þær eru
dreifðar á þetta ár og það næsta,“
bætir hann við.
Steinar segir Covid hafa leitt til
jákvæðra breytinga á rekstrinum
í Fossatúni. „Þetta er mjög fjöl-
þætt sem við erum að bjóða upp á
og höfum við verið að þróa okkar
þjónustu síðustu árin. Covid leiddi
að mörgu leyti til þessara breyt-
inga,“ útskýrir Steinar. „Við vorum
í upphafi með tjaldsvæði en lokuð-
um því svo, ætluðum okkur ekki að
vera í þeim rekstri. En svo þegar
Covid kom upp, þá stóð tjaldsvæð-
ið uppi sem skemmtileg eining sem
hentaði á breyttum tímum vegna
þess að svæðið er hólfað niður og
gaf meira færi á að hrúga ekki öll-
um saman. Við höfum útfært þær
hugmyndir síðan í fyrra þannig
að tjaldsvæðið er núna komið inn
í bókunarkerfið okkar bara eins
og herbergi, þú pantar þér stæði,“
bætir hann við. „Þessar breytingar
sem fylgja Covid, hvað þetta varð-
ar, eru komnar til að vera. Það var
til staðar ómenning í tjaldsvæðis-
málum. Allir hrúga sig og þar sem
var laust pláss þá var það bara tekið.
Það er ekki svoleiðis í dag, þú færð
þitt pláss, þitt hólf, hvernig sem það
er og það kemur enginn og tekur
það. Fólk getur verið rólegra. Við
höfum fengið alveg ofboðslega góð
viðbrögð við þessu.“
Fossatún er fjölskylduvænt svæði
í fallegri náttúru. Þar er tröllagarð-
ur sem búið er að þróa undanfar-
in ár og er að sögn Steinars mjög
vel sóttur. „Þetta er æðislegt svæði
og heilmikið í gangi. Við erum að
fá gesti alla daga vikunnar og erum
mjög bjartsýn á framhaldið,“ segir
Steinar að endingu.
Túristinn eltir
góða veðrið
Haldið var áleiðis áfram og stoppað
í Hvernum á kleppjárnsreykjum.
Íslenska ferðasumarið að taka við sér
Púlsinn tekinn á ferðaþjónustunni á nokkrum stöðum í Borgarfirði
Ungir drengir að baða sig í sólinni fyrir utan Ullarselið og Landbúnaðarsafn Íslands á Hvanneyri.
Steinar Berg Ísleifsson, ferðaþjónustubóndi í Fossatúni.
Fossatún í Borgarfirði.
Hverinn á Kleppjárnsreykjum.
Krauma, náttúrulaugar við Deildartunguhver. Að sögn Jónasar framkvæmda-
stjóra Kraumu fer sumarið afar vel af stað hjá þeim.