Skessuhorn - 30.06.2021, Blaðsíða 23
MiðVikuDAGur 30. júní 2021 23
Sláttur er nú víða hafinn hjá bænd-
um um vestanvert landið, svo sem
í Dölum, Snæfellsnesi og Borgar-
firði. Grasspretta tók verulega við
sér í kjölfar úrkomu og hlýnandi
veðurs í síðustu viku. Á friðuðum
túnum hjá kúabændum er því kom-
in þokkaleg slægja. Á það ekki síst
við svæðið kringum Akrafjall þar
sem sprettur oft snemma.
Meðal bænda sem byrjuðu hey-
skap í liðinni viku var Haraldur
Benediktsson bóndi á Vestra-reyni
við Akrafjall. Haraldur sló heima-
túnið á miðvikudaginn og rúllaði
uppskerunni síðdegis á fimmtudag.
Honum til aðstoðar var Hjálmar
ingibergsson systursonur hans sem
léttir gjarnan undir í búverkunum.
Haraldur segir ágæta sprettu og því
ekkert að vanbúnaði að hefja slátt.
„Það var ekki eftir neinu að bíða
að slá heimatúnið,“ sagði Harald-
ur léttur í bragði, greip upp væna
heytuggu og bauð blaðamanni að
lykta af ilmandi töðunni. Var að því
búnu stiginn upp í Massey Fergu-
son dráttarvélina sem dró sam-
byggða Claas rúllu- og pökkunar-
vél, og rúllaði fyrstu uppskeru sum-
arsins glaður í bragði.
mm
um næstsíðustu helgi lagðist lít-
ið flutningaskip að bryggju á Akra-
nesi. um borð voru einingar sem
fljótlega var hafist handa við að
skipa á land. Á þriðjudag í liðinni
viku var ekið með þessar einingar
í lögreglufylgd að lóðinni Aspar-
skógum 19 í Skógarhverfi og tólf
íbúða húsi á tveimur hæðum raðað
upp á sökklana. Lauk því verki sam-
dægurs. næsta dag hófst tíu manna
lettneskur vinnuflokkur handa við
ýmsan frágang, meðal annars að
setja klæðningu utan á húsið og
reisa svalir en þær voru sömuleiðis
úr forsmíðuðum einingum. Einn-
ig koma íslenskir iðnaðarmenn að
verkinu, svo sem pípulögnum og
frágangi á lóð.
Það er fyrirtækið Modulus sem
byggir húsin og selur íbúðir í þeim.
Fyrr á þessu ári voru afhentar íbúð-
ir í systurhúsi við hliðina á Aspar-
skógum 21, sem allar seldust og
er nú flutt inn í þær. íbúðirnar eru
tveggja og þriggja herbergja, frá
56-73 fermetrar og er ásett verð frá
29,9 milljónum króna til 35,9 millj-
ónir. Samkvæmt fasteignasöluvef
Domus nova er afhending íbúða í
húsinu í ágúst - september á þessu
ári.
nýja fjölbýlishúsið við Aspar-
skóga 19 er einungis lítill hluti af
þeim húsum sem nú eru í byggingu
í Skógarhverfi. Þar er nú unnið í
fjölmörgum húsum á ýmsum bygg-
ingarstigum sem ýmist eru stað-
steypt eða reist úr forsmíðuðum
einingum.
mm
Flutt var inn í íbúðir fjölbýlishússins við Asparskóga 21 í vor en húsið á lóðinni fjær
verður eins útlítandi. Ljósm. mm.
Tólf íbúða blokk reist á einum degi
Einingar teknar af palli flutningabíls á þriðjudaginn og settar beint á sökkul
væntanlegs fjölbýlishúss. Ljósm. arg.
Meðan einingarnar eru enn á flutningabílnum eru umbúðir teknar utan af þeim
og þær því næst hífðar á sökkul. Inni í hverri einingu er allt frágengið en það var
gert í verksmiðju í Lettlandi. Ljósm. arg.
Neðri hæðin komin á sinn stað. Ljósm. arg.
Á fimmtudag var byrjað að slá lektum utan á húsið og undirbúið fyrir klæðningu.
Ljósm. mm.
Sláttur víða hafinn