Skessuhorn - 07.07.2021, Blaðsíða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 27. tbl. 24. árg. 7. júlí 2021 - kr. 950 í lausasölu
Stefnir á
listnám
Catherine Soffía Guðnadótt-
ir á Akranesi byrjar í haust nám
í Myndlistarskólanum í Reykja-
vík. Fyrr í sumar tók hún þátt í
samkeppni um mynd framan á
blað Hinsegin daga sem kem-
ur út í byrjun ágúst, nokkru fyrir
Gleðigönguna í Reykjavík. Í við-
tali við blaðamann segir Cath-
erine að samkomutakmarkanir á
tímum Covid-19 hafi gefið henni
kærkomið tækifæri til að finna sig
sjálfa. Gagnstætt mörgum þakkar
hún því fyrir þetta tímabil.
Sjá bls. 18
Veðrið lék við
landsmenn
Óhætt er að segja að einmunablíða
hafi einkennt Vesturland um liðna
helgi. Tjaldstæði fylltust, bæjarhá-
tíðir voru haldnar og fjölmarg-
ir aðrir viðburðir stórir og smáir.
Framundan er svo þétt viðburða-
dagskrá. Meðal annars Fjórð-
ungsmót Vesturlands og Hinsegin
Vesturland, en báðar þessar hátíð-
ir verða í Borgarnesi. Á meðfylgj-
andi mynd er Tryggvi Konráðsson
sem sýndi tvo af glæsifákum sínum
á Ólafvíkurvöku á laugardaginn.
Sjá bls. 26
Fékk Covid
á Tene
Guðbjörg Halldórsdóttir frá Borg-
arnesi varð fyrir því í aprílbyrjun á
þessu ári að smitast af Covid-19.
Hún var þá stödd á vinsælu Te-
nerife eyjunni í Atlantshafi með
vinkonum sínum í fríi. Guðbjörg
segir frá upplifun sinni þegar hún
lá í einangrun í tíu daga á spítala
á Tenerife, frá ættgengum sjúk-
dómi sem hún lifir með ásamt því
að segja frá baráttu sinni fyrir rétt-
indum ungmenna þar sem hún sit-
ur í stjórn Samfés á Íslandi.
Sjá bls. 27
Rauðhærðust
Hefð er fyrir
því að á Írskum
dögum á Akra-
nesi að keppt
er um að vera
rauðhærðust-
ur Íslendinga.
Til mikils er
að vinna; pen-
ingagjöf frá Icelandair. Að þessu
sinni var það hún Vigdís Birna sem
vann titilinn þegar keppt var um
hann í 22. skiptið, en keppendur
voru tólf. Vigdís Birna er 13 ára og
býr á Akranesi og á Hvítárvöllum í
Borgarfirði.
Sjá bls. 20-21
ALLA LEIÐ
Vegabréf
Um síðustu helgi fóru nokkrir frístundabændur út í Seley á Breiðafirði og rúðu eyjaféð sem þar er á sumarbeit. Þar sem féð er flutt snemma á vorin út í eyjuna þarf að
fara sérstaka ferð til sumarrúnings þegar hlýrra er orðið í veðri. Ljósm. sá.
Sumarleyfi fyrir
íbúðalánið þitt
arionbanki.is
Viðskiptavinir með íbúðalán hjá Arion banka geta
gert eins mánaðar greiðsluhlé í sumar.
sími 437-1600
Okkar vinsæla veitingahús er opið
alla daga frá kl. 11:30 til 21:00
Borðapantanir á
landnam@landnam.is
og í síma 437-1600
Hinsegin
Vesturland
Til hamingju!