Skessuhorn - 07.07.2021, Blaðsíða 22
MIðVIKudAGuR 7. júlÍ 202122
Séra Geir Waage fyrrverandi sókn-
arprestur í Reykholti hélt ásamt
sóknarnefnd kveðjumessu á sunnu-
daginn eftir ríflega fjögurra ára-
tuga þjónustu. Við starfinu hef-
ur tekið séra Hildur Björk Hörpu-
dóttir. Húsfyllir var í Reykholts-
kirkju og hátíðleg stund í blíðskap-
arveðri. Eftir messu var boðið upp
á safnaðarkaffi að gömlum og góð-
Keppni á vegum Mótorhjóla- og
snjósleðaíþróttasambands Íslands
til Íslandsmóts í mótorkrossi verð-
ur haldið á braut Motorcrossklúbbs
Snæfellsbæjar sem staðsett er fyr-
ir utan Enni við Ólafsvík laugar-
daginn 24. júlí. Keppnin hefst um
kl. 10:30 og stendur til kl. 16:00.
Skessuhorn heyrði hljóðið í ja-
nusi jónssyni, formanni klúbbs-
ins. janus býr reyndar í Reykjavík
og starfar sem flugfjarskiptamaður
hjá Isavia en notar hvert tækifæri
til þess að fara vestur á heimaslóðir.
Hann er sem stendur í barneignar-
leyfi og þegar við hringdum í hann
var hann að leysa af sem ökumaður
á trailer en janus er með réttindi á
svo til allt sem er á fjórum hjólum
og hreyfist.
Starfsemi klúbbsins hafði verið í
lægð í allmörg ár en á Ólafsvíkur-
vöku 2017 stóðu félagar úr klúbbn-
um, þeir janus jónsson, Albert
Fannar jónsson og Konráð Har-
aldsson, fyrir skemmtikeppni sem
mjög góð mæting var á. Heppnað-
ist hún vel og fengu þeir í kjölfar-
ið fyrirspurnir um hvort ekki ætti
að endurvekja klúbbinn og halda
keppni að nýju. Feðgarnir Svan-
ur Tómasson og Stefán Svansson,
hjá TS Vélaleigu, aðstoðuðu við að
gera brautina tilbúna fyrir keppni
en brautinni hafði ekki verið haldið
við í mörg ár og ekki keppt á henni
frá 2007.
janus segir að starfsemi klúbbs-
ins hafi eiginlega lagst niður upp úr
2007 en hann hafi komið að honum
sem formaður í lok árs 2018. Sum-
arið 2019 hélt klúbburinn mót til
Íslandsmóts. „Það gekk furðu vel
miðað við að ég vissi nákvæmlega
ekkert hvað ég var að fara út í,“ seg-
ir janus. „Svo skemmir ekki fyrir að
mamma, Bjarney jörgensen, hefur
hjálpað að sjá um fjármálin.“
Fjölgun í klúbbnum
Klúbburinn hélt nýlega námskeið
fyrir nýliða í sportinu þar sem kenn-
ari af höfuðborgarsvæðinu kenndi
og á næstu dögum munu þeir reyna
að halda annað námskeið. „Við
urðum varir við mjög mikla fjölgun
iðkenda og vaxandi áhuga á mót-
orkrossi eftir að við fórum aftur af
stað með klúbbinn. Við erum mik-
ið spurðir út í sportið og eins hvort
við vitum um hjól til sölu og þess
háttar,“ segir janus.
Auk feðganna Svans og Stefáns
hjálpaði fyrirtækið Stafnafell einnig
mikið við að gera brautina klára í ár.
Þá segir janus að ótal margir hafi
komið að verkinu og þetta hefði
aldrei verið mögulegt ef fyrirtækin
í bæjarfélaginu hefðu ekki verið til-
búin að styðja félagið í þessu stóra
verkefni. „Það er svo skemmtilegt
að þegar maður tekur svona að sér
hvað það eru margir sem eru til-
búnir til að aðstoða mann og hlaupa
undir bagga,“ segir hann.
janus segir klúbbinn renna svo-
lítið blint í sjóinn með mótið í
júlí. „Í raun höfum við ekki hug-
mynd um hversu margir skrá sig
til leiks. Það er opið fyrir skrán-
ingu fram á fimmtudagskvöld fyrir
mótið þannig að það er ekki fyrr en
á föstudagsmorgun sem við vitum
nákvæman fjölda. Það skiptir hins
vegar ekki máli þannig lagað því
vinnan við mótið er sú sama hvort
sem keppendur eru tíu eða sjötíu.
Við erum að vonast til þess að fá
60 til 80 keppendur á mótið,“ seg-
ir janus. Hann bendir líka á slíkum
mótum fylgir oft talsverður fjöldi
áhorfenda og segist bjartsýnn á að
mótsdagurinn verði mjög skemmti-
legur.
frg
Geir Waage kvaddi söfnuð sinn
Séra Geir Waage blessar söfnuðinn í kveðjumessu sinni í Reykholti.
Ljósm. Guðni Páll Sæmundsson.
Janus Jónsson, formaður Motorcrossklúbbs Snæfellsbæjar. Ljósm. af.
Keppt í mótorkrossi í Ólafsvík
síðar í mánuðinum
Sigurður Ingi jóhannsson sam-
göngu- og sveitarstjórnarráðherra
og dagur B. Eggertsson borg-
arstjórinn í Reykjavík undirrit-
uðu í gær yfirlýsingu um lagn-
ingu Sundabrautar. Stefnt er að því
framkvæmdir við Sundabraut hefj-
ist árið 2026 og að brautin verði
tekin í notkun árið 2031. Ríki og
borg sammælast um það í yfirlýs-
ingunni að Sundabraut verði lögð
alla leið á Kjalarnes í einni sam-
felldri framkvæmd og að alþjóðleg
hönnunarsamkeppni verði hald-
in um útlit Sundabrúar, verði hún
fyrir valinu. Í yfirlýsingunni seg-
ir að næsta skref sé að gera félags-
hagfræðilega greiningu á þverun
Kleppsvíkur en að henni lokinni
verði hafist handa við að undirbúa
breytingar á aðalskipulagi borgar-
innar, sem feli í sér endanlegt leið-
arval Sundabraut.
mm
Viljayfirlýsing um
Sundabraut
Lífið bíður þín í
Borgarbyggð
Borgarbyggð hefur komið af stað
sérstakri herferð fyrir sumarið
2021 sem hófst í júní síðastliðn-
um. Markaðsherferðin tekur mið
af markaðsstefnumótun sveitar-
félagsins sem kynnt var í júlí á síð-
asta ári er fram kemur á heima-
síðu sveitarfélagsins. Þar kemur
fram að markaðsherferðin muni
standa yfir frá júní til ágúst á þessu
ári þar sem áhersla verður lögð á
að kynna sveitarfélagið sem væn-
legan búsetukost sem og spenn-
andi og áhugaverðan áfangastað
fyrir innlenda og erlenda ferða-
menn. unnið er með mismunandi
kynningarefni á helstu miðlum
landsins, til að mynda ljósmynd-
ir, myndbrot og vitnisburði íbúa í
sveitarfélaginu.
Þórdís Sif Sigurðardóttir sveit-
arstjóri segir það virkilega ánægju-
lega þá athygli sem auglýsing-
arnar hafa fengið. „Að sjá þær og
heyra í ólíkum miðlum er virkilega
skemmtilegt og fær mig til að langa
til að ferðast meira um sveitarfé-
lagið okkar. Það sem gleður mig
mest er að heyra af fólki sem hefur
ákveðið að skella sér í dagsferð upp
í Borgarbyggð og njóta lítils hluta
af því sem sveitarfélagið hefur
upp á að bjóða, með því erum við
að sjá beinan árangur auglýsing-
anna. Þessa dagana erum við svo
að leggja sérstaka áherslu á Hin-
segin hátíðina og Fjórðungsmótið
og geri ég ráð fyrir fullum bæ af
skemmtilegu fólki að njóta sam-
an,“ segir sveitarstjórinn ánægð.
Borgarbyggð hvetur alla íbúa til
þess að birta myndir úr sveitarfé-
laginu og merkja þær með myllu-
merkinu #sveitarfelagidborgar-
byggd og #bíðurþíníBorgarbyggð
glh
um sveitasið. Margir nýttu sér svo
að fara í beinu framhaldi á tónleika
Borgarfjarðardætra sem sungu í
kirkjunni síðdegis. Séra Geir flutti
við þessa kveðjustund kröftuga pre-
dikun þar sem hann minnti á frum-
kjarna kristinnar kirkju. Galt hann
varhug við að láta vindköst tíðar-
andans bera sig af hinni réttu leið,
eins og Bjarni Guðmundsson einn
kirkjugesta og kórfélagi orðaði það
svo skemmtilega að aflokinni at-
höfninni.
Séra Geir Waage og dagný Em-
ilsdóttir eiginkona hans hafa kom-
ið sér fyrir í nýju húsi sem þau
byggðu við Hallveigartröð í Reyk-
holti. Hyggjast njóta efri áranna á
staðnum þar sem þau hafa lifað og
stýrt málum í áratugi. „Hér höfum
við nóg fyrir stafni. Búum í skóg-
arjaðrinum og við grösugar flat-
irnar. Við munum halda áfram að
hlúa að gróðri og umhverfi okkar
eins og heilsan leyfir. Hyggjumst
njóta þess að halda áfram að nudda
í þessu við moldina og gróandann.
Svo verður ekki langt að fara, þeg-
ar þar að kemur, þar sem yndisleg
moldin bíður eftir manni þegar sá
tími kemur,“ segir Geir í samtali
við Skessuhorn.
Óhætt er að segja að Reykholts-
staður hafi í tíð séra Geirs sem
staðarhaldara tekið umskiptum.
lögð hefur verið áhersla á að skapa
skjól með skógi ofan við byggðina
og almennt hefur umhirðu staðar-
ins verið til sóma. Í tíð hans sem
Reykholtsprests var ný Reykholts-
kirkja og Snorrastofa byggð, gamla
kirkjan gerð upp og húsum gamla
héraðsskólans fengið nýtt hlut-
verk.
Í símaskrá titlar séra Geir Waage
sig nú sem pastor emeritus. „Gömlu
mennirnir voru ýmist kallaðir pa-
stor emeritus eða uppgjafarprestar,
höfðu gefið upp prestinn eða emb-
ættið. Mér finnst skemmtilegt heiti
að vera uppgjafarprestur en hyggst
engu að síður notast við latneska
heitið pastor emeritus.“
mm
Rómantíkin bíður þín í Borgarbyggð. Dæmi um auglýsingu úr herferð Borgar-
byggðar fyrir sumarið 2021.