Skessuhorn - 07.07.2021, Blaðsíða 28
MIðVIKudAGuR 7. júlÍ 202128
Vörur og þjónusta
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmir 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
8
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
Sími: 860-0708 • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
Pennagrein
Það eru ekki margir bæir á Íslandi
sem státa af eyjum á landsvæði sínu
og hvað þá eyju sem hefur verið
hluti af atvinnu- og menningarsögu
samfélagsins. Brákarey í Borgar-
nesi er nokkuð stór í hlutfalli af
landflæmi hins byggða svæðis og
er staðsett við suðurodda bæjarins.
Eyjan tengist bænum með nokkuð
íkónískri brú sem er byggð á þriðja
áratugnum og þar við brúarsporð-
inn rís stórhýsi frá fimmta áratugn-
um sem bæjarbúar í daglegu tali
nefna BTB húsið. Í samtvinnun
við klettamyndanir virkar það eins
og hliðstólpi að eyjunni. Á þenn-
an hátt minnir eyjan dálítið á Akró-
pólís í Aþenu sem er miðpunktur
siðmenningarinnar frá Grikklandi
hinu forna.
Það er því ekki nema von að
eyjan hafi aðdráttarafl og þegar
ferðaþjónustan stóð sem sterkast
fyrir heimsfaraldur lá straumur fót-
gangandi gesta yfir brúnna, í þeirri
von að þar væri eitthvað spennandi
að sjá. Það verður að segjast að það
hljóta að hafa verið vonbrigði þeg-
ar „gengið var í gegnum hliðið“ og
uppgötva þann blákalda raunveru-
leika sem þar var. Málið er nefni-
lega að Brákarey man fífil sinn
fegurri og hefur gengið í gegnum
langt hnignunartímabil. Vonandi
náði það tímabil hámarki í ár þegar
hús sláturhússins voru dæmd óör-
ugg vegna brunahættu. Nú standa
húsin auð, af fólki að minnsta kosti,
og takast á við óvissu framtíðarinn-
ar.
Winston Churchill sagði að það
ætti aldrei að láta góðar hamfar-
ir fara til spillis (e. Never Waste A
Good Crisis) og nú eftir heimsfar-
aldur og lokanir vegna brunavarna
skapast einstakt tækifæri til að
byggja upp blómlega byggð í Brák-
arey. Á hinni margrómuðu Borgar-
nessíðu á Facebook birtist á dög-
unum færsla þar sem talað var um
þessi tækifæri. Þar var viðruð hug-
mynd um blandaða byggð íbúða-
og atvinnuhúsnæðis í eyjunni, hug-
myndir um baðstaði, veitingastaði,
vinnustofur listafólks, léttan iðnað
og fleira, og urðu líflegar umræð-
ur í athugasemdakerfinu eins og er
siður á Borgarnessíðunni. Það er
því ljóst að tilfinningar eru miklar
fyrir Brákarey og margir hafa skoð-
un á hvað á að gera við svæðið.
Ég hef lengi verið talsmaður
uppbyggingar í Borgarnesi og fátt
er mér meira eitur í beinum en
stöðnun og hugsunarháttur aftur-
haldssemi. Þess vegna finnst mér
ég knúinn til að skrifa þetta grein-
arkorn þar sem ég tek heilshugar
undir margar af þeim hugmynd-
um sem komu fram á umræddri
Facebook grúppu. Reyndar hef ég
lengi talað fyrir því að í Brákarey
verði byggð upp margvísleg menn-
ingarstarfsemi en í bland við aðra
starfsemi eins og rekstur atvinnu-
reksturs, veitingastaða, ferðaþjón-
ustu o.s.frv. Árið 2011, þegar ég
var nýskriðinn til landsins frá námi
í Skotlandi vakti ég athygli á hversu
mikil tækifæri leynast í Borgarnesi
og ekki síst í Brákarey. Því er ekki
úr vegi að rifja upp að eyjan er það
stór að hún getur auðveldlega rúm-
að stórhýsi á borð við Óperuhúsið
í Sydney. Þá, rétt eins og nú er það
staðreynd að allir þessir fermetr-
ar eru dýrmæt auðlind fyrir okkar
samfélag. Í ljósi umræðu sem vakn-
aði eftir fyrri birtingu tek ég fram
að ég er ekki að mæla með bygg-
ingu óperuhúss í Brákarey.
Ég sé í hillingum Brákarey sem
blómlegt hverfi í Borgarnesi. Þar
væru fjölbreytt fyrirtæki með starf-
semi, þ.e. verktakar við hlið vinnu-
stofa listamanna, matarhandverks-
fólks, veitingastaða og gistiþjón-
ustu. Þarna væri blómleg menning í
sýningarhúsum og í vinnustofunum
og hægt væri að baða sig í laug í ætt
við Guðlaugu á Akranesi. Í bland
við allt saman er íbúðabyggð sem
er með vönduðum íbúðum í bygg-
ingum sem allir ættu að vera stolt-
ir af að búa í. Mannvirki í Brákarey
eru ýmist nýbyggð eða uppgerð
hús, en farið hefur fram húsakönn-
un sem sker úr um hvað skal vernda
og hvað skal rífa. Allt tekur mið af
staðaranda og yfirbragðið er faglegt
og sendir skilaboð að Borgarnes sé
bær sem tekst á við framtíðina með
bros á vör.
Til þess að þessi framtíðarsýn
gæti orðið að veruleika þurfa allir
að taka höndum saman og vinna
samkvæmt sínum hlutverkum.
Stjórnmálamenn og það fólk sem
tekur ákvarðanir
sér um stefnumót-
unina með samtali
við íbúa og hags-
munaaðila, hönn-
uðir sjá um útfærslu og hönnun,
fjárfestar og verktakar um fram-
kvæmdir og almenningur sér um
að gæða lífinu, hvort sem um er
að ræða íbúa, gesti eða atvinnurek-
endur. Í þessu samhengi er rétt að
minna á að skipulagsfræðingar og
arkitektar hafa í verkfærakistu sinni
áhöld við hönnun svæða og bæjar-
umhverfa. Þar má nefna greiningar
á veðurfari, þarfagreiningar og mat
á ýmsum þolmörkum. Allt vísinda-
legar greiningar sem koma sér vel
þegar byggingar eru mótaðar. Og
ekki bara byggingar - heldur það
allra mikilvægasta í arkitektúr sem
er rýmið á milli bygginganna þar
sem mannlífið á að dafna. Það er
líka gagnlegt þar sem hverfin eru
til þess gerð að efla önnur hverfi og
starfsemina þar og koma með vís-
bendingar um næstu uppbygging-
arskref í samfélaginu.
Helsta ógn við þessa framtíðar-
sýn er ekki óveður, mengaður jarð-
vegur né áhugaleysi fjárfesta, held-
ur er neikvæðni og niðurtal góðra
hugmynda mun líklegri að stöðva
framþróunina. Nú er löngu kom-
inn tími til að snúa blaðinu við og
horfa bjartsýnum augum til fram-
tíðarinnar. Vandamál eru til þess að
leysa þau og ef að veðráttan ein á
að koma í veg fyrir uppbyggingu í
Brákarey ættu margir þéttbýlisstað-
ir um allan heim, hvað þá hringinn
í kringum Ísland, þar sem vindhæð-
in fer oft á ári yfir fjörutíu sekúndu-
metrana að vera óbyggilegir með
öllu. Í því samhengi er rétt að óska
Eyjamönnum til hamingju með
blómlega byggð og að samfélagið
þar geti ekki beðið eftir að halda
Þjóðhátíð 2021 eftir faraldurinn.
uppbygging í Brákarey er allra
hagur og við sem samfélag höfum
ekki efni á því að láta tækifærið
renna okkur úr greipum. Ég kalla
því eftir samfélagssáttmála um að
allir sem vettlingi geta valdið að sjá
til þess að uppbygging menningar-
starfsemi, íbúðabyggðar, ferðaþjón-
ustu og létts iðnaðar eigi sér stað í
Brákarey. Við erum með perlu í
fórum okkar og það væri glapræði
að leyfa henni ekki að skína. Áfram
Brákarey og áfram Borgarnes.
Sigursteinn Sigurðsson
Höf. er arkitekt og Borgnesingur.
Brákarey
Pennagrein
Heilsugæslur um landið eiga að vera
fyrsti viðkomustaður fólks í heilbrigðis-
þjónustunni. Þær eru mikilvægur hlekk-
ur og eiga fyrst og fremst að þjóna íbú-
um viðkomandi sveitarfélags eða hverf-
is. Fjöldi lækna og starfsfólks á heilsu-
gæslum tekur mið út frá fjölda skráðra
íbúa hvers umdæmis fyrir sig. Hvert
sveitarfélag eða umdæmi hverrar heilsu-
gæslu getur verið mjög mismunandi
að stærð, fjölda íbúa og að landfræði.
Vegalengd að næstu heilsugæslu getur
verið allt frá nokkrum kílómetrum upp
í hundruð kílómetra endana á milli, þá
sér í lagi á landsbyggðinni.
Á undanförnum árum hefur reynst
erfitt að manna stöður lækna á heilsu-
gæslum víða á landsbyggðinni. Starfs-
umhverfi heilsugæslunnar er erfitt í
fámennum en víðfeðmum héruðum.
læknar sem gefa sig í slíkt umhverfi
þurfa að standa langar vaktir og oft og
tíðum undir miklu álagi. Til lengdar eru
þessar vinnuaðstæður lítt spennandi né
heilbrigt umhverfi fyrir fjölskyldufólk.
Sólarhringurinn getur verið undir í
vinnu, álagið og ábyrgðin mikil. Enginn
endist í slíku vinnuumhverfi.
Þrír læknar fyrir allt að
tólf þúsund manns
Starfssvæði heilsugæslunnar í Borgar-
nesi samanstendur af Borgarbyggð,
Skorradalshreppi ásamt Eyja- og Mikla-
holtshreppi. Fjöldi íbúa á starfssvæðinu
eru um 3.900 manns en fjöldi lækna við
heilsugæslustöðina er að jafnaði þrír. já,
það eiga þrír læknar að þjóna þessu víð-
feðma landsvæði, en ekki hefur þó verið
fullmannað í þessar stöður undanfarin
ár. Þrátt fyrir að íbúar séu skráðir 3900
þá er mikil dulin búseta á svæðinu. Þessi
tala getur þrefaldast yfir sumartímann
þar sem fjöldi fólks er staðsett í sum-
arbústöðum vítt og breitt um Borgar-
fjörð nokkra mánuði á ári. Þá er ótalin
sú mikla umferð ferðamanna um svæð-
ið. læknir sem yfirgefur heilsugæslu-
stöð eftir 8 tíma vinnudag getur átt von
á því að fá útkall upp í Húsafell sem er
í 62 km. fjarlægð frá Borgarnesi. Hann
verður að sinna aðilanum þrátt fyrir að
hann sé ekki „skráður“ á viðkomandi
heilsugæslu. Þá liggur þjóðvegur 1 í
gegnum svæðið með tilheyrandi umferð
sem því fylgir, læknir í Borgarnesi þarf
að vera tilbúinn til hendast með sjúkra-
bíl upp á Holtavörðuheiði um miðja
nótt til þess að sinna slysi.
Nú hafa tveir læknar við heilsugæsl-
una í Borgarnesi sagt starfi sínu lausu.
Heilsugæslan í Borgarnesi hefur ver-
ið viðurkennd sem
kennslustöð og má
því ráða inn sérnáms-
lækna eða kandídata sem vinna undir
handleiðslu sérfræðilæknis á staðnum.
Eins og staðan er í dag hefur ekki tek-
ist að ráða í þrjár sérfræðistöður lækna.
Þriðja staðan hefur hingað til verið
skipuð sérnámslækni eða kandídat. Til
þess að hægt sé að manna stöðina með
kandídötum eða sérnámslæknum þarf
að vera sérfræðilæknir á stöðinni. Eins
og staðan er núna er ekki búið að ráða
sérfræðilækni í fullt starf í haust, hvað
tekur þá við?
Íbúar finna nú þegar fyrir miklu álagi
á heilsugæslunni, erfitt er að fá tíma
hjá lækni og getur biðin talið nokkrar
vikur. Það er erfitt að sjá eftir góðum
læknum og enn erfiðara þegar er algjör
óvissa ríkir um framhaldið. Miklu skipt-
ir að fólk hafi aðgang að lækni sem er
á staðnum og þekkir sögu fólks og fjöl-
skyldna. Við vitum öll að einstaklingur
sem þekkir vel til er fljótari að setja sig
inn í flókar aðstæður heldur en afleys-
ingarlæknar sem koma og fara. Það er
samfélagslega mikilvægt að hafa fast-
ráðna lækna á heilsugæslum.
Horfa þarf á
starfsumhverfið í heild
Það er orðið augljóst að breytinga er
þörf, það þarf að meta hvert svæði fyrir
sig. Það þarf að taka með í reikninginn
stærð landsvæðis, umfang, samgöngur
og landslag mannlífs og náttúru. Starfs-
svæði heilsugæsla eru margvísleg og
mismunandi um allt land. Ekki er leng-
ur hægt að horfa einungis í íbúatölu
þegar meta á starfsumhverfi lækna og
annars heilbrigðisstarfsfólks.
Hér áður fyrr létu læknar bjóða sér
ýmsar aðstæður en það er ekki boðlegt
lengur. læknar, ljósmæður og þeir sem
sinna svæðinu vilja og þurfa að eiga sér
eðlilegt fjölskyldulíf ef þeir eiga að end-
ast í starfi í fámennu en víðfeðmu hér-
aði. Fjarlækningar eru góðar og gildar
en þeim verður ekki viðkomið ef til-
kynnt er um hjartaáfall í Húsafelli eða
slys á Holtavörðuheiði. Það þarf að
standa vörð um heilsugæsluna, fyrsta
skrefið í því væri að meta hvert starfs-
svæði upp á nýtt þegar horft er til fjölda
starfandi lækna og gera vinnuumhverfið
meira aðlaðandi. Þannig má betur hlúa
að heilsu þjóðarinnar.
Halla Signý Kristjánsdóttir
Höfundur er þingmaður Framsóknar
og er í framboði fyrir flokkinn í Norðvest-
urkjördæmi.
Verður héraðið
læknislaust?