Skessuhorn - 07.07.2021, Blaðsíða 2
MIðVIKudAGuR 7. júlÍ 20212
Tími bæjarhátíða heldur áfram og
segja má að Borgarnes eigi svið-
ið um næstu helgi. Þar verður hald-
in Hinsegin hátíð Vesturlands. Stefnt
er að því að hafa hátíðina sem veg-
legasta og að Vesturland verði sem
mest skreytt. Í því skyni bjóða að-
standendur Vestlendingum að eign-
ast regnbogafána og styrkja gott
málefni í leiðinni. Síðar en þó ekki
síst er stórhátíð hestamanna fram-
undan; Fjórðungsmót Vesturlands
sem hefst í dag og er einnig í Borg-
arnesi.
Á morgun er gert ráð fyrir suðvest-
an átt, 5 til 13 metrum á sekúndu,
hvassast með SA-ströndinni. Skýjað
og dálítil rigning vestantil, en annars
bjart að mestu. Hiti 10 til 23 stig, hlýj-
ast í innsveitum austanlands en 9 til
14 gráður vestantil. Á föstudag, laug-
ardag, sunnudag og mánudag er
reiknað með suðlægum áttum, skýj-
að að mestu um landið vestanvert
en bjartara fyrir norðan og austan.
Einhver rigning verðum með köflum
á Vesturlandi fram yfir helgi en síst
þó á föstudag. Hlýtt loft ættað suður
úr höfum er yfir landinu og má búast
við að hiti fari yfir 20 gráður sums-
staðar norðaustan- og austanlands.
Gera má ráð fyrir að gosmóðu leggi
yfir Vesturland næstu daga.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessu-
horns hvort lesendur væru með lit-
að hár. 70% svarenda svöruðu spurn-
ingunni neitandi, 23% sögðu láta lita
hárið, 5% vildu ekki svara svona við-
kvæmri spurningu og 2% svarenda
sögðust lita hárið, en bara stundum.
Í næstu viku er spurt:
Hvað myndir þú helst vilja?
Systurnar Guðrún St. og Bjargey
Anna Guðbrandsdætur stóðu að
stofnun félagsins Hinsegin Vestur-
land í byrjun ársins. Félagið stendur
fyrir Hinsegin hátíð um næstu helgi
í Borgarnesi. Þær eru Vestlendingar
vikunnar að þessu sinni.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Vestlendingur
vikunnar
Veðurhorfur
Spá tveimur
milljónum á
næsta ári
LANDIÐ: Ferðamálastofa
spáir því að um 890 þúsund
erlendir ferðamenn muni
sækja landið heim í ár. Á
næsta ári er því hins vegar
spáð að gestafjöldinn verði
svipaður og hann var árið
2019, eða rétt tæplega tvær
milljónir erlendra ferða-
manna. -mm
Árstíðaleiðrétt
atvinnuleysi er
5,8%
LANDIÐ: Atvinnuleysi hér
á landi dróst saman um 2,8%
á milli apríl og maí í vor. Það
stendur nú í 5,8% samkvæmt
nýju mati Hagstofu Íslands.
Á meðal ungs fólks á aldr-
inum 16-24 ára, dróst at-
vinnuleysisstigið saman um
13,7% á milli mánaða. Þeg-
ar verst lét var atvinnuleysi
í sögulegu hámarki í maí á
síðasta ári þegar það slag-
aði í tíu prósentustig. Áætl-
að er að samtals séu 17.600
atvinnulausir á Íslandi, sem
eru 8,4% af vinnuaflinu, sem
telur um 210 þúsund manns.
Með árstíðaleiðréttingu nú
fer hlutfallið niður í 5,8%.
-mm
Nýtt samræmt
námsmat
í þróun
LANDIÐ: Nemendur í 4.,
7. og 9. bekk í grunnskól-
um geta tekið ný hæfnimið-
uð samræmd könnunarpróf
næsta vor. Hefðbundin sam-
ræmd könnunarpróf verða
því ekki lögð fyrir í haust. Í
tilkynningu frá menntamála-
ráðuneytinu kemur fram að
fyrirlögn þessara prófa verð-
ur fyrsta skrefið í átt að nýju
fyrirkomulagi samræmds
námsmats fyrir nemendur í
grunnskólum. Meginmark-
mið þess er að veita nemend-
um gagnlegar upplýsingar
um námslega stöðu þeirra og
vera kennurum, nemendum
og foreldrum til leiðsagnar
um áherslur í námi. -mm
Ekið um nýjan
vegarkafla
HOLTAV.H: Búið er að
leggja klæðningu á nýjan
vegarkafla á Heiðarsporði á
Holtavörðuheiði og hefur
umferð verið hleypt á nýja
veginn. Þar hefur umferðar-
hraði nú verið lækkaður nið-
ur í 50 km/klst. Vegfarend-
ur eru beðnir að virða hraða-
takmörkun og sýna tillits-
semi, segir í tilkynningu frá
Vegagerðinni. -mm
Breytingar sem miða að því að
mæta betur þörfum barna með
annað móðurmál en íslensku og
öðrum fjöltyngdum börnum í
leikskólum hafa nú verið kynntar
helstu hagsmunaaðilum. um er
að ræða breytingar þar sem aukin
áhersla er lögð á mikilvægi þess að
mæta beri hverju og einu barni út
frá menningarbakgrunni þess og
að námsumhverfi skóla henti öll-
um börnum sem þar stunda leik og
nám. Þá er áréttuð nauðsyn þess að
gagnkvæmur skilningur ríki milli
foreldra og starfsfólks leikskóla á
samspili náms og vellíðunar barna.
Þá bætist við vísun til þess að í leik-
skólum skuli leggja grunn að ís-
lenskunámi barna og veita þeim
ríkuleg tækifæri til að efla tungu-
málafærni sína í daglegu starfi og
leik, og að bera skuli virðingu fyr-
ir fjölbreyttum tungumálum og
leita leiða til að styðja við móður-
mál barna og virkt fjöltyngdi í dag-
legu starfi.
Tillaga að fyrrgreindum breyt-
ingum var unnin í víðu samráði við
hagsmunaaðila og birt í samráðs-
gátt stjórnvalda í febrúar síðast-
liðnum. uppfærð gerð aðalnám-
skrár leikskóla verður svo birt á vef
mennta- og menningarmálaráðu-
neytisins á næstu dögum.
mm
Miklar annir voru í bólusetn-
ingu vegna Covid-19 á Vestur-
landi í síðustu viku sem jafnframt
var stærsta vikan frá upphafi bólu-
setninga skömmu fyrir áramót-
in. Fólk var boðað til bólusetning-
ar með þeim bóluefnum sem í boði
eru; svo sem frá Astra Zeneca, Pfi-
zer og janssen. Hátt í þrjú þúsund
manns fengu boð í vikunni til að fá
efni frá Astra Zeneca og eitt þúsund
með Pfizer. Auk þess var talsvert
um að fólk fengi janssen bóluefnið.
Á miðvikudaginn var stærsti dagur-
inn, en þá voru 1716 einstaklingar
bólusettir á Akranesi og hátt í 900
í Borgarnesi. Auk þess var bólusett
í Stykkishólmi, Ólafsvík og Grund-
arfirði. Á fimmtudag var svo bólu-
sett á Hvammstanga, Búðardal og
Hólmavík.
Samkvæmt Heilbrigðisstofnun
Vesturlands verður gert hlé á bólu-
setningum frá 14. júlí til 4. ágúst.
Á Akranesi og í Borgarnesi er til að
mynda síðasti bólusetningardagur
fyrir sumarhlé í dag, miðvikudag-
inn 7. júlí. mm
Framkvæmdum við endurheimt
votlendis í landi jarðanna Hnausa
og Hamraenda á sunnanverðu Snæ-
fellsnesi lauk í desember á síðasta
ári. Þó ekki sé lengra síðan hefur
landið nú þegar tekið greinilegum
breytingum og framförum, segir í
tilkynningu frá landgræðslunni.
Í vor kölluðu Sameinuðu þjóð-
irnar eftir áhugaverðum og vel
heppnuðum endurheimtarverk-
efnum. Verkefnunum er ætlað að
vísa leiðina að því hvernig verk-
efni er æskilegt er að takast á við
á nýhöfnum áratugi endurheimtar
vistkerfa. landgræðslan sendi inn
umsókn fyrir verkefnið á Hnaus-
um og Hamraendum sem var sam-
þykkt. Verkefnið er þar með komið
í alþjóðlegan hóp 50 verkefna sem
fylgst verður með til ársins 2030.
um er að ræða tvær samliggjandi
jarðir sem ná yfir 100 hektara svæði
þar sem grafnir höfðu verið skurðir
sem náðu samtals 16 km að lengd.
„Á nýlegum loftmyndum af svæðinu
sést greinilega að vatnsstaða lands-
ins hefur hækkað og að náttúran
hefur þegar hafist handa við að færa
landið nær upprunalegu ástandi.
landeigendur hafa séð aukningu
í fuglalífi á svæðinu. Ber þar mest
á ýmsum tegundum vaðfugla svo
sem jaðraka, stelks og hrossagauks.
Einnig hefur sést meira af öndum
á svæðinu sem nýta sér tjarnir og
opið vatn sem myndast hafa eftir
að framkvæmdum lauk,“ segir í til-
kynningu landgræðslunnar
loks segir að ávinningurinn af
endurheimtinni sé margfaldur.
„utan þess að sporna gegn þeirri
miklu kolefnislosun sem á sér stað
úr framræstu landi skapast betri að-
stæður fyrir dýralíf og gróður sem
aftur skilar landi og vistkerfi í betra
jafnvægi. Votlendissvæði Hnausa
og Hamraenda er stærsta samfellda
votlendissvæðið sem hefur verið
endurheimt á vegum landgræðsl-
unnar. Endurheimt votlendis er
talsvert vandasamara og flóknara
ferli en að „moka ofan í skurði“ eins
og stundum er haldið fram. Eftir að
landeigendur hafa sótt um þátttöku
í verkefninu gerir starfsfólk land-
græðslunnar úttekt á svæðinu til að
sjá hvort það uppfylli sett skilyrði. Í
framhaldinu er svæðið kortlagt og
vatnsrennsli að og frá svæðinu at-
hugað. Einnig eru allir skurðir og
svæðin á milli þeirra kortlögð og
svæðin mynduð úr lofti. Í fram-
haldinu eru fengnir verktakar úr
heimabyggð eða landeigendur
framkvæma sjálfir verkið. Mikil-
vægt er að við jarðvegsvinnu vegna
endurheimtar votlendis sé unnið
eftir ákveðnu verklagi og heppnað-
ist vinna verktakans í landi Hnausa
og Hamraenda framar vonum.“
mm
Hnausar og Hamraendar eru fallegar jarðir við sjó á sunnanverðu Snæfellsnesi.
Skurðirnir sem voru grafnir á sínum tíma eru samtals 16 km að lengd og sést vel
marka fyrir þeim úr lofti. Það tekur langan tíma fyrir þau um merki að hverfa,
náttúran þarf tíma til að ná jafnvægi.
Vel heppnuð endurheimt votlendis á Snæfellsnesi
Breytingar á aðalnámskrá leikskóla
Rósa Marinósdóttir hjúkrunarfræðingur sprautar hér Kára Jón Sigurðsson með
bóluefni frá Janssen í Borgarnesi á miðvikudaginn.
Stærsta bólusetningarvikan
á Vesturlandi