Skessuhorn


Skessuhorn - 07.07.2021, Síða 14

Skessuhorn - 07.07.2021, Síða 14
MIðVIKudAGuR 7. júlÍ 202114 Í fréttum RúV á mánudag sagði að mikil mengun hafi mælst í Hvalfirði og viðbúið að hún hafi líka verið mikil á Akranesi. Kom fram í fréttinni að styrkur brenni- steinsdíoxið hafi numið um 900 míkrógrömmum á rúmmetra. Mengunin sem um ræðir kem- ur að hluta beint frá gosstöðvun- um á Reykjanesi en einnig er um að ræða mengunarský sem fyrst lagði leið sína í átt til Grænlands en er nú komið aftur yfir landið. Brennisteinsdíoxíð (SO2) er lit- laus lofttegund með sterkri lykt sem getur haft áhrif á húð, augu og öndunarfæri. Brennisteinsmengunarspá Veð- urstofu Íslands sýnir hvernig gert er ráð fyrir að gosmóða frá eldgos- inu í Fagradalsfjalli verður næsta sólarhringinn. Samkvæmt spánni þegar þetta er ritað (á þriðjudegi) er gert ráð fyrir að gosmóðuna leggi yfir stóran hluta Vesturlands á miðvikudag. Veðurspáin gerir svo ráð fyrir svipaðri vindátt fram yfir næstu helgi þannig að líklegt er að gosmóðan hegði sér með svipuðum hætti. Það er umhverfisstofnun sem hefur með höndum loftgæðamæl- ingar á landinu og á vef stofnun- arinnar má finna yfirlit yfir slíka mæla. Þegar vefsíðan er skoðuð vekur athygli að loftgæðamælar eru í talsverðum mæli staðsettir á Suðurnesjum á höfuðborgarsvæð- inu en utan þessara svæða er ekki um jafn auðugan garð að gresja. Einu loftgæðamælarnir sem er að finna á Vesturlandi eru þrír mæl- ar umhverfis stóriðjuna í Hval- firði. Norðan við það svæði þarf að fara allt norður til Akureyrar til að finna næsta mæli. Margir fundið fyrir einkennum lausleg könnun meðal starfs- fólks Skessuhorns og vina þeirra leiddi í ljós að margir hafa fund- ið fyrir gosmenguninni í hálsi og öndunarfærum síðustu daga. Sér- staklega finnur starfsmaður með astma fyrir einkennum. Það er áhyggjuefni að þegar stórvara- söm efni eins og brennisteins- díoxíð SO2 leggur yfir byggð- ir landsins að loftgæðamælingar skuli ekki vera meiri og betri en raun ber vitni. Sérstaklega þegar einn af þessum fáu mælum sýn- ir gildi sem nema um þreföldum heilsuverndarmörkum útgefnum af opinberum aðilum. Samkvæmt Vísindavefnum eru skaðleg áhrif SO2 tengd því þeg- ar efnið kemst í neðri öndunar- veginn, niður í lungun og það er þá sem geta komið fram alvarlegri einkenni svo sem astmi og bjúg- ur í lungum. Skammtímaáhrifin þegar styrkur er lágur, eru fyrst og fremst erting í augum, nefi og koki og jafnvel höfuðverkur. Ef gildin fara hærra, til dæmis yfir 500-600 µg/m3 getur farið að bera á hósta, sérstaklega hjá ein- staklingum með undirliggjandi lungnasjúkdóma. Einkenni koma strax fram um leið og mengunar verður vart í þeim styrkleika sem hefur áhrif á einstaklinginn en hverfa líka um leið og mengunin er horfin. Það er því full ástæða til þess að vara alla við, ekki einvörðungu þá sem eru viðkvæmir við mengun- inni, og að hvetja alla til þess að fara varlega og fylgja í öllu leið- beiningum sem Almannavarn- ir hafa gefið út um viðbrögð við SO2 mengun frá eldgosum. frg Icelandair Group og Slysavarna- félagið landsbjörg skrifuðu í vik- unni undir áframhaldandi sam- starfssamning til næstu fimm ára, en félagið hefur frá árinu 2014 verið einn af aðalstyrktaraðilum landsbjargar. Samningurinn var undirritaður við einn vinsælasta ferðamannastað landsins um þessar mundir, gosstöðvarnar í Geldinga- dölum. Við sama tilefni var tilkynnt um nýja viðurkenningu, Verndar- vænginn, sem Icelandair mun veita árlega fyrir eftirtektarvert starf björgunarsveitar. Fyrsti Verndar- vængurinn var veittur björgunar- sveitinni Þorbirni í Grindavík fyr- ir öflugt og mikilvægt starf við gos- stöðvarnar. Samstarfssamningur Icelandair og Slysavarnafélagsins landsbjarg- ar kveður á um beinan fjárhags- legan styrk auk sérstakra styrkja til flugferða innanlands og milli landa. Einnig verður lögð áhersla á sam- starf Icelandair og landsbjargar hvað varðar forvarnir og upplýs- ingagjöf til erlendra ferðamanna, öryggisþjálfun og gerð viðbragð- sáætlana. Horft verður til þess að efla vefinn Safetravel.is enn frekar en vefurinn er öflug og góð upplýs- ingamiðstöð fyrir ferðamenn. Auk þess mun Icelandair koma upplýs- ingum um vefinn áfram til flugfar- þega um sínar dreifileiðir. undan- farin ár hafa landsbjörg og Ice- landair verið í virku samstarfi varð- andi öryggisþjálfun, gerð viðbragð- sáætlana og viðbrögð við flugatvik- um. Þetta samstarf verður eflt enn frekar á næstu árum. mm Í tilefni af fréttum um vegalagn- ingu um dynjandisheiði, frestun eða flýtingu framkvæmda þar, vill stjórn Vestfjarðastofu og sveitar- stjórnir Ísafjarðarbæjar, Bolungar- víkur, Súðavíkurhrepps, Tálkna- fjarðarhrepps og Vesturbyggðar koma eftirfarandi á framfæri: „Hin mikla framkvæmd dýrafjarðargöng mun ekki nýtast til fulls fyrr en veg- ur um dynjandisheiði er fullgerð- ur frá Mjólká í Vatnsfjörð ásamt Bíldudalsvegi. um er að ræða nýjan veg í stað 70 ára gamals vegar sem ekki hefur notið nema lágmarks viðhalds frá upphafi. Heilsársteng- ing milli norðan- og sunnanverðra Vestfjarða skiptir miklu máli fyr- ir vaxandi atvinnulíf og samfélag á Vestfjörðum. Hér skipta máli mán- uðir og ár og því mikilvægt að bjóða út næsta áfanga strax á þessu ári þar sem sú framkvæmd tekur 2-3 ár.“ Þá segir í ályktun sveitarfélagan- na að auk heilsárstengingar innan Vestfjarða styttir dynjandisheiði ásamt framkvæmdum í Gufudalss- veit leiðina Ísafjörður – Reykjavík um 50 kílómetra auk þess að skapa heilsárs hringleið um alla Vestfirði, Vestfjarðaleiðina, 950 km. hring um Vestfirði, dali og Strandir. „Æskilegt væri að bjóða út alla framkvæmdina í einu til að flýta framkvæmdum og ekki síður til að ná fram eins mikilli hagkvæmni og hægt er. Hvert útboð kostar tíma og peninga auk þess sem fyrirsjáan- leiki hlýtur að vera æskilegur fyrir framkvæmdaaðila einnig. Stjórn Vestfjarðastofu og sveitarstjórnir á norðan og sunnanverðum Vest- fjörðum hvetja Alþingi, ráðherra samgöngu- og sveitarstjórnarmála og Vegagerðina til að taka höndum saman og finna leið til að flýta fram- kvæmdum á dynjandisheiði eins og kostur er. Vegakerfið á Vestfjörðum þolir einfaldlega ekki frekari tafir á samþykktum vegaframkvæmdum,“ segir í lok ályktunar sveitarfélagan- na. mm Skjámynd af vef Umhverfisstofnunar, loftgaedi.is sem sýnir staðsetningu loftgæðamæla á Íslandi. Aðeins þrír loft- gæðamælar á öllu Vesturlandi Ný Dýrafjarðargöng munu ekki nýtast til fulls fyrr en vegur um Dynjandisheiði verður fullgerður. Mótmæla frestun fram- kvæmda á Dynjandisheiði Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík hlýtur fyrsta Verndarvænginn, nýja viðurkenningu sem Icelandair mun framvegis afhenda á hverju ári. Bogi Nils Bogason forstjóri og Bogi Adolfsson formaður Þorbjarnar við gosstöðvarnar í Geldingadölum. Icelandair Group styrkir Landsbjörg og kynnir nýja árlega viðurkenningu Við stöndum öll saman

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.