Skessuhorn


Skessuhorn - 07.07.2021, Page 16

Skessuhorn - 07.07.2021, Page 16
MIðVIKudAGuR 7. júlÍ 202116 Það verður líf og fjör um næstu helgi í Borgarnesi eða Happiness eins og það er oft kallað. Ekki nóg með að hestamenn á Vesturlandi skeiði um víðan völl og haldi fjórð- ungsmót rétt fyrir ofan bæinn, þá verður Hinseginhátíð Vesturlands haldin með pompi og prakt um helgina. Fjörið hefst strax á morg- un, fimmtudag, þegar gleðisveitin drusla á bömmer þjófstartar há- tíðinni með tónleikum á Bara Öl- stofu lýðveldisins. Á föstudegin- um verður allt Vesturlandið skreytt í regnbogalitum og allir hvattir til að skreyta bæinn sinn og þá munu öll sveitarfélögin á Vesturlandi flagga regnbogafánum í tilefni há- tíðarinnar. Þá ætlar Snæfellsbær að mála götu í regnbogalitunum og í Borgarnesi verður Himnastiginn við Skallagrímsvöll málaður í litum regnbogans. Á laugardeginum hefst dagurinn með Regnbogaspinning hjá Gunnu dan en síðan verður fjölbreytileik- anum fagnað með Gleðigöngu til að styðja við réttindabaráttu hin- segin fólks á Vesturlandi. Fremst- ur í flokki þar verður Borgnes- ingurinn Ingvar Breiðfjörð Skúla- son sem ætlar að gera allt vitlaust á mest skreytta vagninum. Eftir gönguna verður skemmtidagskrá í dalhallanum og í Skallagrímsgarði þar sem meðal annars verður boð- ið upp á hoppukastala, leikhóp- inn lottu, sölutjöld og almenna gleði. Síðar um kvöldið verður ball í Hjálmakletti með engum öðrum en Páli Óskari. Á sunnudeginum verður þetta í rólegri kantinum og byrjað á fræðslukaffi í Borgarnesskirkju og svo verður fjölskyldu- og regnboga- messa í framhaldi á sama stað. Veggur regnbogans Í tilefni þessarar hátíðar kíkti blaðamaður Skessuhorns í Borgar- nes í síðustu viku og það vakti at- hygli að þegar ekið er inn í Borg- arnes, þá blasir við veggur í regn- bogalitunum. Þessi veggur var mál- aður af krökkunum í vinnuskólan- um í Borgarnesi síðasta sumar og var þeirra hugmynd og er mikil bæjarprýði. Síðan var kíkt í kaffi til Guðrúnar Steinunnar Guðbrands- dóttur og þar var með henni Ing- var Breiðfjörð Skúlason en þau sitja bæði í stjórn félagsins Hin- segin Vesturland ásamt Alexand- er Aroni Guðjónssyni. Systurnar Guðrún og Bjargey Anna fengu á síðasta ári styrk frá uppbygging- arsjóði Vesturlands fyrir verkefnið Hinsegin Borgarbyggð og ætluðu þær að halda hinsegin hátíð í Borg- arnesi. Vegna Covid-19 var hátíð- inni frestað en nú er loks komið að þessu. Markmiðið þeirra var þó alltaf að stofna félag fyrir hinseg- in fólk á Vesturlandi samhliða því að halda hátíð og það var gert í í febrúar á þessu ári. Auka sýnileika úti á landi Í viðtali við Skessuhorn í tilefni þess sagði Guðrún, eða Gunna eins og hún er oftast kölluð: „Okkur langar að auka fræðslu hér á Vesturlandi og myndum vilja bjóða upp á fræðslu í skólum og jafnvel vera í samstarfi við nemendafélög og foreldrafé- lög á svæðinu. Sjálf er ég kennari í Grunnskólanum í Borgarnesi og ég hef, bæði í gegnum reynslu og námið mitt, kynnt mér vel málefni sem tengjast hinsegin fólki og sér- staklega börnum. Það er oft erfið- ara að vera hinsegin í litlum sam- félögum og því þykir okkur mikil- vægt að auka sýnileika úti á landi með stofnun svona félags,“ segir Gunna. „Sjálf er ég hinsegin og ég fann það bæði þegar ég ólst upp og svo þegar ég flutti aftur út á land, hvað það er lítill sýnileiki hinsegin fólks úti á landi,“ segir hún en sjálf ólst hún upp á Mýrunum. „Það var erfitt að alast upp úti á landi og líða eins og maður væri einn í heimin- um sem hinsegin manneskja og mig langar að gera það sem ég get svo krökkum í dag líði betur en mér leið. Ég vil líka að þau þurfi ekki að sækja stuðning á höfuðborgarsvæð- ið heldur geti fengið hann í sinni heimabyggð.“ Eigum við ekki að fara að djamma? Þegar Gunna var búin að hella upp á kaffi var fyrsta spurningin til þeirra hvenær þau hefðu fyrst áttað sig á því að vera samkynhneigð? Gunna segir að hún hafi alveg áttað sig á því sem unglingur og hafi reynt allt til þess að vera það ekki. „Þegar ég hugsa til baka þá fann ég að ég var öðruvísi en það var eng- in umræða. Ég bjó upp í sveit og hitti ekki neinn og vissi ekki neitt. Maður reyndi að gera allt til þess að enginn myndi fatta þetta. Ég var orðin frekar gömul þegar ég kom út úr skápnum, rétt komin yfir þrí- tugt. En var búin að búa með konu í mörg ár án þess að vera með yfir- lýsingar, við vorum bara vinkonur. Þegar við byrjuðum saman þá vor- um við hér í Borgarnesi en við flutt- um suður til að hverfa í fjöldann.” Ingvar segist ekki eiga svona dag sem hann kom út úr skápnum því hann var ekki að pæla í því sjálfur. „Ég er oft spurður að því en ég veit það ekki. Þetta breytir mig engu og vonandi verður það bara svoleiðis. Maður sá þetta bara þegar ég kom út. Ég sagði mömmu og pabba þetta fyrst og mínum nánustu og þau tóku þessu mjög vel. Ég beið til dæmis með það þangað til síð- ast að segja strákavinunum mínum frá þessu og þeir voru bara eitthvað: dööö, alveg drullusama. Þeir voru ekkert að pæla í þessu og þeim var alveg sama. Ég gleymi samt aldrei þessu samtali með strákunum, þetta var í Skalló og við vorum að labba saman: „Strákar, ég verð að segja ykkur, ég er hommi.“ Og þeir bara; „Eigum við ekki að fara að djamma?“ Ég hef aldrei orðið fyr- ir fordómum í lífinu, þetta er svo mikið í manni sjálfum en auðvitað lendir fólk í fordómum. Ég man á þessum árum rétt eftir aldamót- in að þá fórum við bara á ákveðna skemmtistaði til að skemmta okk- ur. Í dag er varla hægt að reka gay bar í Reykjavík því hann er fullur af gagnkynhneigðu fólki og við erum bara allsstaðar.“ Það á enginn regnbogann Gunna býr í Borgarnesi með tveim- ur dætrum sínum í húsi við Þor- steinsgötu sem hún hefur verið að dunda sér við að taka í gegn. Hún á eldri stelpuna með sinni fyrrum sambýliskonu og þær hafi langað mikið í barn og þá ákváðu þær að koma út úr skápnum. „Þannig að við skelltum okkur til danmerkur árið 2005 á Stork-klinik þar, og það tókst bara í fyrsta og ég gekk með barnið. Við skildum fljótlega eftir að hún fæddist en síðar þegar mig langaði í annað barn að þá fór ég ein í þetta og þá var hægt að gera þetta hérna heima. Þá pantaði ég frá sömu klíníkstofu þannig að þær systurnar eru alsystur.“ En aftur að Hinseginhátíðinni, Gunna og Ingvar segja að þau hlakki mikið til helgarinnar og von- ast til að sjá Borgarnes fullt af fólki að skemmta sér í öllum regnbogans litum. Eða eins og Ingvar bendir réttilega á: Það á enginn regnbog- ann en við erum öll með honum í liði.“ vaks Ingvar Breiðfjörð verður á mest skreyttasta vagninum í Gleðigöngunni. Hinseginhátíð Vesturlands um næstu helgi Gunna ásamt dætrum sínum, Birtu Rún og Hugrúnu Hönnu.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.